Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Morðingja hinnar níu ára gömlu Oliviu leitað: „Við munum finna þig“

Mikil sorg ríkir í Liverpool um þessar mundir.
Mikil sorg ríkir í Liverpool um þessar mundir.

Lögreglan í Liverpool leitar nú logandi ljósum að morðingja hinnar níu ára gömlu Oliviu Pratt-Korbel. Móðir stúlkunnar særðist í árásinni.

Blessuð sé minn­ing Oliviu

Að kvöldi síðastliðins mánudags var ókunnugur maður á gangi ásamt öðrum manni fyrir utan heimili Oliviu í Liverpool er grímu­klæddur byssu­maður réðist að honum. Maðurinn, sem fjöl­miðlar í Bretlandi hafa fullyrt að sé smákrimmi að nafni Joseph Nee, flúði inn á heimili Oliviu og móður hennar Cheryl Kerbel og skot­maðurinn á eftir honum. Fjórum skotum var hleypt úr byssu hins grímu­klædda manns en þegar árásin var yfirstaðin var Olivia látin og móðir hennar og Nee, særð. Nee fékk í sig fjöldi skota en flúði á svörtum Audi sem vinur hans keyrði. Var Cheryl flutt á sjúkrahús til aðhlynningar en Nee var hand­tekinn í gær og fékk þá aðhlynningu. Skot­maðurinn slapp af vettvangi áður en lögreglu bar að garði og hefur ekki enn fundist. Mirror fjallaði meðal annarra um málið.

Joseph Nee hefur áður setið inni fyrir inn­brot, fíkni­efna­sölu og fleiri glæpi.

Lögreglan í Liverpool hefur staðið í ströngu undan­farið vegna tveggja annarra morða sem framin hafa verið en í báðum tilfellum hafa meintir morðingjar náðst. Segist hún fullviss um að morðingi Olivu muni finnast. „Við munum finna þig,“ sagði rannsókna­lögreglu­stjórinn Mark Kameen á blaðamanna­fundi í morgun. „Fulltrúar okkar halda áfram viða­mikilli rannsókn á málinu og ég get staðfest að við leitum allra leiða til að leysa þetta.“ Sagði hann ennfremur að morðinginn hafi enn ekki gefið sig fram og kom svo með skilaboð til hans: „Skilaboð mín til hans eru þau sömu, við unum okkur ekki hvíldar fyrr en við finnum þig og við munum finna þig.“

Mikil sorg ríkir í Liverpool um þessar mundir.

Hér fyrir neðan má sjá myndbands­upptöku sem BBC birti, þar sem heyra má skot­hvelli fyrir utan heimilið sem og á heimilinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“