Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Vítalía sögð aldrei hafa mætt til lögreglu: „Þetta er stórt skref“

Skjáskot úr þættinum Eigin konur
Skjáskot úr þætt­inum Eigin konur

Í mars síðastliðnum tilkynnti Vítalía Lazareva að hún hefði bókað tíma hjá lögreglu til þess að kæra meint brot þriggja þjóð­þekktra manna gegn henni. RÚV greinir frá því að Vítalía hafi hins vegar ekki veitt lögreglu neinar frekari upplýsingar um málið eftir það.

Sögð hafa beðið um 150 milljónir

Mennirnir sem Vítalía hefur sakað um kynferðis­brot gegn sér í sumar­bústað í desember árið 2020, þeir Þórður Már Jóhannesson, Ari Edwald og Hreggviður Jónsson, hafa nú kært hana og Arnar Grant fyrir tilraun til fjár­kúgunar, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífs. Þau Vítalía og Arnar áttu í ástar­sambandi á þeim tíma sem Vítalía sagði brotin hafa verið framin.

Vítalía og Arnar eru sögð hafa farið fram á 150 milljónir króna frá þremenningunum gegn því að hún félli frá því að kæra þá fyrir kynferðis­brot gegn sér.

Segja hana aldrei hafa mætt til lögreglu

Í mars síðastliðnum tilkynnti Vítalía á Twitter að hún hefði bókað tíma hjá lögreglu til að kæra meint brot mannanna þriggja gegn henni. Í frétt RÚV er hún hins vegar sögð aldrei hafa mætt í þann tíma og hafi ekki veitt lögreglu frekari upplýsingar um málið þrátt fyrir að á eftir því hefði verið gengið. Heimildir frétta­stofu RÚV herma ennfremur að Vítalía hafi eftir þetta ekki bókað annan tíma hjá lögreglu og að engin kæra hafi verið lögð fram vegna málsins.

„Ég vaknaði bara klukkan átta og hugsaði að í dag væri kominn dagurinn til þess að gera þetta,“ sagði Vítalía í samtali við Mannlíf daginn sem hún birti færsluna á Twitter.

„Ég er bara að standa með sjálfri mér,“ sagði Vítalía við blaðamann. „Það tók mig tíma að gera þetta náttúru­lega, þetta er stórt skref. Ég er að vinna í sjálfri mér. Við verðum bara að halda áfram; ég er ekki að fara í stríð við neinn, ég er bara að gera það sem er rétt að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá