Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Jay Leno sýnir nýja andlitið eftir þriðja stigs brunann: „Nei, Dave, það er kviknað í mér“

Jay Leno
Jay Leno Mynd: Michael Albov

Jay Leno sýndi nýja andlit sitt í viðtalið við Kelly Clarkson, eftir að hafa fengið þriðja stigs bruna í fyrra.

Grín­goðsögnin Jay Leno snéri aftur fyrir framan mynda­vélarnar nýverið í spjall­þætti Kelly Clarkson. Þar tjáði hann sig um slysið sem hann lenti í fyrir nokkrum mánuðum og sýndi glænýtt andlit en hann hlaut þriðja stigs brunasár á andliti. Hið nýja andlit er, ótrúlegt nokk, alveg eins og hið gamla, slík eru lækna­vísindin orðin.

Grín­istinn hlaut þriðja stigs brunasár á andliti, hand­leggjum og höndum þegar eldur kviknaði í bensíni sem skvettist á hann í nóvember síðastliðnum. „Þetta er hið glænýja andlit,“ sagði Jay við þátta­stjórn­andann, Kelly Clarkson. „Það er satt. Þetta er ótrúlegt.“

Í viðtalinu sem birtist í gær rifjar Jay upp hið óhugnanlega slys sem varð er hann vann í einum af safnbílum hans en grín­istinn er annálaðu bíladellu­karl. Kryddaði hann söguna með örlitlu spéi, enda grínisti mikill. „Ég var að vinna í bílnum og fékk fullt af bensíni yfir andlitið og það kviknaði í því,“ útskýrði hann og bætti við í gaman­sömum tón: „Ég hafði verið að borða Flamin’ Hot Dorito og þegar ég beit í flögu, þá kviknaði í andlitinu mínu.

Tók hann fram í heldur alvarlegri tóni, að slysið hefði verið „nokkuð slæmt“ og að hann hefði hlotið þriðja stigs brunasár. Sagði hann svo að hann hefði jafnað sig furðuvel og benti á hökuna og sagði: „Maður hefði haldið að það væri hægt að sjá rennilás hér eða eitthvað en nei.“ Bætti hann við: „Þetta er í annað sinn sem ég er hið nýja andlit grínsins. Ég var það eitt sinn á níunda áratugnum og aftur núna.“

En hvernig gerðist slysið í raun? „Þetta var árgerð 1907 af White Steam-bíl,“ sagði Leno í viðtali við Today 14. desember síðastliðnum. „“Eldsneytis­leiðslan var stífluð, þannig að ég var undir henni. Það hljómaði stíflað og ég sagði: „Blástu lofti í gegnum leiðsluna,“ og svo gerði hann það. Og allt í einu búmm, ég fékk fullt af bensíni á andlitið. Og svo hljóp neisti í flug­ljósið og það kviknaði í andlitinu. Ég sagði við vin minn „Dave, það er kviknað í mér“ og vinur minn sagði „Einmitt.“ Og ég sagði „Nei, Dave, það er kviknað í mér“ og þá sagði Dave „Ó Guð minn góður,“ og dró mig undan bílnum og stökk á mig og kæfði eldinn.“

Hér má sjá hversu ótrúlega vel Jay hefur náð sér en það er ekki að sjá að hann hafi hlotið þriðja stigs brunasár fyrir nokkrum mánuðum.

Fyrir og eftir slysið. Enginn munur.

Það var Eonline sem fjallaði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt