Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Páll um blaðamenn: „Þeir skálda fréttir og taka bullukolla sem trúverðugar heimildir“

„Þeir skálda fréttir og taka bullu­kolla sem trúverðugar heimildir,“ segir Páll Vilhjálmsson, kennari í Fjölbrautar­skóla Garða­bæjar og blaða­maður, um blaðamenn í nýrri og harðyrtri blogg­færslu og telur stéttina óþarfa. „Upplýsinga­samfélagið gerir blaðamenn óþarfa. Þeir hafa hvorki þekkingu né fagkunnáttu fram að færa sem eftir­spurn er eftir.“

Þá vill Páll meina að blaðamenn leiðist á glæpa­brautir og skáldi fréttir. „Til að gera sig gildandi leiðast sumir blaðamenn á braut glæpa og siðleysis.“

Réttast þykir Páli að afnema ríkis­styrki fjölmiðla og að leggja ætti RÚV niður, sem hann endar á að gefa viðurnefnið Glæpa­leiti. „Ríkis­valdið heldur lífinu í fjöl­miðlum sem annars myndu ekki þrífast. Á meðan blaðamenn eru sumpart óþarfir og að einhverju leyti lögbrjótar freistast ríkis­valdið til að halda uppi fjöl­miðlum með almannafé. Nær væri að hætta öllum styrkjum og leggja niður RÚV. Blaða­mennskan sinnti þá nauðsyn­legum verkefnum en væri síður til óþurftar. Þaggað yrði niður í Glæpa­leiti í eitt skipti fyrir öll.“

Hér að neðan má lesa færslu Páls í heild:

Blaða­mönnum fækkar jafnt og þétt. Það er ástæða sameiningar tveggja stéttar­félaga þeirra, Ff og BÍ. Upplýsinga­samfélagið gerir blaðamenn óþarfa. Þeir hafa hvorki þekkingu né fagkunnáttu fram að færa sem eftir­spurn er eftir.

Einu sinni svöruðu blaðamenn spurningunni ,,er þetta frétt.“ Ef já, þá varð úr frétt í fjölmiðli. Ef nei, þá engin frétt. Til að eitthvað yrði að frétt þurfti heimild. Sérgrein blaða­manna var heimilda­rýni.

Núna ræður umræðan á samfélags­miðlum hvort eitthvað sé frétt eða ekki. Vinna blaða­manna fer í að þefa upp færslur á Twitter eða Facebook og gera úr þeim frétt. Heimilda­rýni er lítil sem engin. Í stað blaða­manna gæti sjálf­virkur teljari séð um að halda lista yfir flestar deilingar og mestan lestur á tilteknum færslum. Fréttin er sjálfs­sprottin, þarf ekki fæðingar­hjálp blaða­manna.

Til að gera sig gildandi leiðast sumir blaðamenn á braut glæpa og siðleysis. Þeir skálda fréttir og taka bullu­kolla sem trúverðugar heimildir. Í refsikerfinu eru fjórir blaðamenn undir rannsókn fyrir aðild að byrlun og gagna­stuldi. Heilir þrír fjöl­miðlar eru undir í glæpa­rann­sókninni: RÚV, Stundin og Kjarninn, RSK-miðlar. Ef þessir fjöl­miðlar væru lána­stofnanir færu þeir í ruslflokk – enginn vildi ótilneyddur eiga við þá viðskipti.

Ríkis­valdið heldur lífinu í fjöl­miðlum sem annars myndu ekki þrífast. Á meðan blaðamen eru sumpart óþarfir og að einhverju leyti lögbrjótar freistast ríkis­valdið til að halda uppi fjöl­miðlum með almannafé. Nær væri að hætta öllum styrkjum og leggja niður RÚV. Blaða­mennskan sinnti þá nauðsyn­legum verkefnum en væri síður til óþurftar. Þaggað yrði niður í Glæpa­leiti í eitt skipti fyrir öll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá