Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Keanu Reeves sannaði enn og aftur prúðmennsku sína: „Þessi náungi er alveg frábær“

Keanu Reeves var rændur
Keanu Reeves var rændur

Leikarinn Keanu Reeves hefur löngum verið einstak­lega vinsæll, ekki einungis vegna hæfileika sinna heldur einnig umtalaðrar prúð­mennsku. Hann er sagður afar góðhjartaður, sem hefur sannast oftar en einu sinni, og jarð­bundinn. Raunar hefur blaða­maður aldrei rekist á þann aðila, hvorki í raun­heimum né í heimi fjöl- og samfélags­miðla, sem kann ekki að meta leikarann knáa. Auk þess virðist samstarfs­fólk hans einungis hafa góða hluti um hann að segja. Ef einhvern vantaði fleiri dæmi um innri mann Keanu Reeves, er hér eitt slíkt.

Fjölmiðla­maðurinn Andrew Kimmel birti færslu á Twitter þar sem hann segir frá því að Keanu Reeves hafi verið staddur í sama flugi og hann á dögunum, frá London til New York.

Hann lýsir því að ungur strákur hafi beðið Keanu um eiginhandar­áritun þegar farþegarnir biðu eftir töskunum sínum. Andrew segir Keanu hafa orðið við því með glöðu geði. Hinn ungi aðdáandi hafi því næst farið að spyrja leikarann spjörunum úr. Keanu hafi svarað hverri einni og einustu þeirra skilmerki­lega.

Andrew fer í færslu sinni yfir samskipti þeirra félaga. Strákurinn spurði meðal annars hvað Keanu hefði verið að gera í London, sem svaraði því til að hann hafi verið að taka upp heimilda­mynd.

Talið barst að Grand Prix keppninni, en sá stutti hafði séð á netinu að Keanu hafði verið þar. Aðspurður sagðist Keanu sjálfur ekki keyra kappaksturs­bíla en að honum þætti gaman að keyra mótorhjól. Þegar stráksi hafði fengið öllum sínum spurningum svarað og komist að því að Keanu byggi í Los Angeles, ætlaði sér að vera fimm daga í New York og hyggði á að sjá Broadway sýninguna American Buffalo hóf leikarinn að yfirheyra strákinn til baka.

Hvers vegna hann hefði verið í Evrópu, hvaða söfn hann hefði heimsótt í París og hvert þeirra hefði verið í uppáhaldi.

„Maðurinn gæti ekki hafa verið almennilegri, sérstak­lega eftir milli­landaflug,“ segir Andrew en um nokkuð langt flug er að ræða; yfir níu klukku­stundir.

„Mig langaði til að deila þessu vegna þess að þessi náungi er alveg frábær og það eru lítil augnablik eins og þetta sem geta skipt svo miklu máli í lífi fólks. Við þurfum fleiri eintök af Keanu!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt