Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Andri Snær um orkuskiptin: „Stórvirkjanakórinn vill halda raunveruleika okkar aftengdum“

Andri Snær Magnason
Andri Snær Magnason

Andri Snær Magnason, rithöfundur og náttúru­verndar­sinni er í ham í nýjum þræði sem hann bjó til á Twitter í gær. Þar gagnrýnir hann harðlega málflutning yfirvalda og virkjana­sinna sem birst hefur síðustu daga og misseri varðandi orku og virkjana­þörf Íslands.

Byrjar Andri Snær á því að tala um nýlega skýrslu á vegum Umhverfis-, orku- og loftslags­ráðuneytisins þar sem framtíðar­horfur í orkumálum þjóðarinnar er skoðuð.

„Ný skýrsla segir þetta: „Tekjur af útflutningi ál, álafurða og kísil­járns voru 308,4 milljarðar króna árið 2021. Nemur það ríflega 39% af heildar­tekjum Íslands af útflutningi vöru á því ári. Undir­strikar þetta mikilvægi greinarinnar fyrir þjóðar­búið.“ Hér er á ferðinni draugur sem átti að vera löngu kveðinn niður. Tekjur Alcoa í milljörðum eru EKKI tekjur Íslendinga eða tekjur „okkar“. Þessi fram­setning veldur misskilningi og býr til nýlendu­áhrif.“

Andri er síður en svo ánægður með fram­setninguna en hann heldur áfram:

„Svona bókhalds­framsetning ætti yfirleitt ekki að skipta máli en þessi fram­setning er hönnuð til að skapa rang­hugmynd meðal Íslendinga um hvaðan lífgæði og tilvera hennar kemur. Venjulegt fólk sem les svona heldur að 39% af lífi okkar sé tilkomið vegna þriggja stór­fyrirtækja.“

Því næst talar Andri um andlega nýlendu­stefnu.

„Þetta er andleg nýlendu­stefna sérhönnuð til að láta þjóðina halda að fórnir á náttúru­auðlindum hafi skilað sér til þjóðarinnar. Það er óþolandi að opinber skýrsla sem er gefin út árið 2022 haldi þessum málflutningi á lofti.“ 

Í næstu undir­færslu birtir hann hlekk á frétt Rúv um að nú þurfi að byggja fimm Kárahnjúkavirkanir í orku­skiptin og ritar eftir­farandi texta við:

„Stór­virkjana­kórinn vill halda raun­veruleika okkar aftengdum og setur fram tryllta fram­tíðarsýn sem er ekki í neinum tengslum við veru­leikann.“

Að lokum bendir Andri á fyndnustu sviðsmynd skýrslunnar að hans mati:

„Fyndnasta sviðs­myndin í skýrslunni er auðvitað þessi: Sviðsmynd 6: Landvernd Náttúru­verndar­samtökin – enginn hagvöxtur.

Á Íslandi hefur þröngur hagsmuna­hópur stolið hugmyndinni um hagvöxt og beintengt hann við sjálfan sig. Skýrslu­höfundar hafa semsagt reiknað út að fólk eins og @hjalli_is og @iamharaldur eða @StefaniaBje og öll @IcelandStartups muni klikka næstu 18 árin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá