Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fengu martraðir og varð óglatt við að endurupplifa lífið í Playboy-höllinni

Holly Madison og Bridget Marquardt
Holly Madison og Bridget Marquardt

Þær Holly Madison og Bridget Marquardt eru báðar að endur­upplifa tíma sinn sem kærustur Hugh Hefner, ritstjóra Playboy sem lést árið 2017, og búsetu sína í Playboy-höllinni, með því að endur­horfa á þættina The Girls Next Door. Þær segjast báðar hafa átt afar erfitt með áhorfið vegna þeirrar áfalla­streitu sem tíminn í höllinni olli þeim.

Raun­veruleika­þátturinn The Girls Next Door kom fyrst út árið 2005 og fjallaði um kærustur Hugh Hefner og líf þeirra í Playboy-höllinni. Fyrstu þáttaraðirnir snerust um þáverandi kærustur Hefner, þær Holly Madison, Bridget Marquardt og Kendru Wilkinson. Þær kvöddu þó Hefner og lífið í höllinni eftir fimm þáttaraðir og nýjar kærustur tóku við.

Hugh Hefner lést árið 2017, þegar hann var 91 árs. Heimildar­þættirnir Secrets of Playboy eða Leyndarmál Playboy komu út í byrjun þessa árs. Í þeim er dökku hlið Playboy varpað fram.

Holly Madison gaf sjálf út opinskáa sjálfs­ævisögu árið 2015, þar sem hún lýsir reynslu sinni af Hefner, ofbeldi og því að vera hálf­gerður fangi í Playboy-höll mógúlsins.

„Það gerði mig svo reiða, hvernig hann ráðskaðist með okkur. Hef stjórnaði hverjum kima lífs okkar,“ sagði Madison í þátta­röðinni. Hún lýsti lífinu í Playboy-höllinni eins og í sértrúar­söfnuði.

Hugh Hefner ásamt þeim Holly, Bridget og Kendru.

Bridget Marquardt byrjaði nýverið að endur­horfa á The Girls Next Door.

„Holly varaði mig við því að það væri mjög erfitt að horfa á fyrstu þrjá þættina. Þegar hún sagði það hélt ég að hún ætti við að það þyrfti að venjast því að horfa á þá aftur, en að eftir þrjá þætti væri þetta í lagi,“ sagði hún í sameiginlegu viðtali með Madison í hlaðvarps­þættinum Juicy Scoop with Heather McDonald sem kom út í gær.

„Ég horfði á þættina í fyrra­kvöld og ég er enn í áfalli. Mér er óglatt. Ég get ekki sofið og ég bara græt.“

Madison segist sjálf hafa átt afar erfitt með að horfa á heimilda­þættina sem komu út á þessu ári. „Þau gerðu tólf þætti. Ég horfði á alla nema tvo. Mig langar ekki til þess að horfa á sjálfa mig tala um mín eigin áföll aftur. Ég get það bara ekki. En ég horfði á alla hina þættina – þeir komu út yfir tólf vikna tímabil. Ég fékk martraðir eftir að hafa horft á þá,“ sagði hún í hlað­varpinu. „Ég fékk martröð um að ég væri aftur komin í Playboy-höllina, eftir hvern einasta þátt sem ég horfði á.“

Hægt er að lesa meira um málið hjá Us Weekly.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt