Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Amanda Bynes nauðungavistuð á geðdeild: „Orð geta ekki lýst hvernig mér líður“

Amanda Bynes.
Amanda Bynes. Mynd: Instagram-skjáskot

Barna­stjarnan fyrr­verandi, Amanda Bynes var nauðunga­vistuð á geðdeild en hún hefur um nokkurt skeið glímt við andleg veikindi og fíkni­sjúkdóm.

Amanda, sem er hvað þekktust fyrir hlutverk sín í kvik­myndum á borð við She´s the Man og What a Girl Wants og þættina All That, hefur að sögn NBC News, hefur nú verið nauðunga­vistuð á geðdeild næstu þrjá sólar­hringana. E News! segir einnig frá málinu. „Hún hefur ekki verið í samskiptum við fjöl­skyldu sínu um nokkurt skeið,“ er haft eftir heimildar­manni.

Leikkonan átti að koma fram á Con-hátíð í Connecticut þar sem halda á upp á tíunda áratug síðustu aldar, yfir helgina. Þar átti hún að koma fram ásamt samleikurum sínum í þáttunum All that. Allt kom fyrir ekki en hin fallna stjarna mætti ekki.

Árið 2013 var Amanda tíma­bundið svipt sjálfræði eftir fjöldi árekstra við lögin sem enduðu á neyðar­vistun á geðdeild. Ári síðar var hún aftur svipt sjálfræði en móðir hennar Lynn Bynes sá um fjármál hennar, heilbrigðismál og persónuleg mál hennar, eftir að Amanda hafði skrifað fjöldi óhugnalegra færsla á samfélags­miðlum um föður hennar, Rick Bynes.

Síðan þá hefur Amanda bætt líf sitt á mörgum sviðum. Meðal annars sem því að fara í fíkniefna­meðferð og í meðferð vegna geðrænna vandamála. Þá snéri hún aftur í skóla hjá Fashion Institute of Desigh and Merchandising. Þrátt fyrir það var sjálfræðis­sviptingu hennar framlengt árið 2018. Á sínum tíma sagði lögmaður móður Amöndu, Tamar Arminak við E! News að fyrirkomu lagið „gæti endað hvenær sem er fyrir árið 2020 en bæði Amanda og foreldrar hennar eru í svo góðu sambandi og ánægð með líf Amöndu og framtíðar­horfur hennar, að sjálf­ræðið er það síðasta sem er í huga þeirra.“

Eftir að hafa eytt fjöldi ára við að bæta samband sitt við foreldra sína, sótti Amanda um að fá sjálf­ræðið aftur í febrúar 2022. Í umsókninni sagðist hún hafa „bolmagn til að veita upplýst samþykki fyrir hvers kyns læknis­meðferð“ og að „vernd frá réttinum er ekki lengur nauðsynlegt.“ Í beiðni Amöndu – sem var lögð fram með stuðningi frá Lynn – kom einnig fram að hún hefði búið í íbúða­samfélagi „fyrir konur sem eru í stakk búnar til að breyta lífstíl sínum í sjálf­stæðan lífsstíl“ og að óregluleg eiturlyfjatest sem hún hefði tekið, sýndu að hún „hafði stöðugt sýnt að hún væri ekki með ólögleg efni í blóðinu.“

Í mars 2022 fékk hún svo sjálf­ræðið sitt aftur en lögmaður Lynn sagði að fjöl­skyldan væri „ótrúlega stolt af framförum sem Amanda hafi tekið síðustu ár og að hún sé spennt varðandi næsta kafla í lífi Amöndu.“ Leikkonan sagði sjálf af tilefninu: „Orð geta ekki lýst hvernig mér líður. Yndislegar fréttir.“

Undan­farin ár hefur Amanda opnað sig við fjölmiðla um baráttu sína við fíkni­sjúkdóminn og hvernig það hefur haft áhrif á andlega heilsu hennar. Sagði hún meðal annars að hún að slæm hegðun hennar hefði alltaf haldist í hendur við eitur­lyfin og að þegar hún var edrú, varð hún alltaf venjuleg aftur. „Ég er reyndar góð manneskja. Ég myndi aldrei segja eða gera þessa hluti sem ég gerði og sagði við fólk sem ég særði á Twitter.“

Amanda bætti einnig við í viðtali að hún „skammaðist sín gríðar­lega“ vegna hegðun hennar í fortíðinni. „Ég hræðist ekki fram­tíðina,“ bætti hún við. „Ég hef gengið í gegnum það versta og lifði það af þannig að mér líður eins og nú sé leiðin bara upp á við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt