Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Útskýringar á hugtökum tengdum tæknifrjóvgunum – Fósturvísar og eggheimtur

Egg og sæði
Egg og sæði

Í nýjasta tímariti Mannlífs er að finna viðtal við hjón sem meðal annars segja sögu sína af tækni­frjóvgunar­meðferð sem þau gengust undir á árunum 2008 til 2010. Þau halda því meðal annars fram að ekki hafi allar upplýsingar varðandi meðferðina verið uppi á borðum og telja spurningum sínum enn ekki hafa verið svarað.

Í viðtalinu og greinum þar sem rætt er við embætti land­læknis og yfirlækni Livio er að finna nokkur hugtök sem ef til vill reynast almennum leik­mönnum torskilin.

Hér fyrir neðan má því lesa útskýringar á helstu hugtökum tengdum tækni­frjóvgunum.

Eggheimta

Eftir að eggja­stokkar konu hafa verið örvaðir með hormónum yfir ákveðið tímabil sækir læknir egg sem eru orðin nægilega þroskuð í eggja­stokkana. Meðan á aðgerðinni stendur er sjúklingum tjáð hve mörg egg nást úr eggja­stokkum. Þau eru síðan geymd við kjör­aðstæður þar til frjóvgun á sér stað.

Glasafrjóvgun

Bæði egg og sáðfrumur eru meðhöndlaðar utan líkamans. Hægt er að nota bæði ferskt eða frosið sæði til frjóvgunar. Ef nota á ferskt sæði skilar maki, eða annar aðili ef það á við, sýni sem bestu sáðfrumurnar eru sóttar í.

Við hefð­bundna glasa­frjóvgun (IVF) er fyrirfram ákveðið magn af sáðfrumum sett saman við eggin og sáðfrumurnar sjá sjálfar um að synda að egginu og frjóvga það.

Við smásjár­frjóvgun (ICSI) er eitt egg frjóvgað í einu undir smásjá með því að koma einni sáðfrumu fyrir inni í egginu. Þetta er til að mynda gert ef um latt sæði er að ræða, sem á í erfið­leikum með að synda að egginu upp á eigin spýtur.

Frjóvgunartími

Frjóvgun gerist yfirleitt innan 18 klukku­stunda.

Fósturvísir

Egg sem hefur verið frjóvgað með sæðis­frumu. Fóstur­vísir getur orðið að barni sé hann af nægilega góðum gæðum og nái að festa sig og dafna í legi konunnar. Fóstur­vísar eru ræktaðir í 2-5 daga eftir frjóvgun. Eftir það er fóstur­vísi komið fyrir í legi konunnar. Ef fleiri fóstur­vísar eru af góðum gæðum eftir 5-6 daga ræktun er hægt að frysta þá og kona eða par getur þá valið að nota þá síðar.

Myndin sýnir fóst­ur­vísi á mis­mun­andi stigum rækt­unar (D=dagar). Mynd/Livio.is

Gæði fósturvísa

Gæði fóstur­vísa eru misjöfn og er þeim skipt í flokka. Ekki reynast allir fóstur­vísar heppilegir til uppsetningar – þá þykja þeir ekki lífvæn­legir, það er ólíklegir til þess að verða að barni. Af þeim fóstur­vísum sem verða til eftir frjóvgun, er mjög algengt að hluti sé ekki af nægilega góðum gæðum – þyki ekki lífvæn­legir.

Dæmi: Ef 10 fóstur­vísar verða til, en að frjóvgunar­tíma loknum eru aðeins 4 þeirra taldir lífvæn­legir, þá eru hinir 6 ekki notaðir og þeim fargað. Þetta eiga sjúklingar að vera upplýstir um jafnóðum og upplýsingar færðar í sjúkra­skrá.

Uppsetning á fósturvísi

Fóstur­vísir er settur upp á degi 2, 3 eða 5 eftir eggheimtu, ef hann uppfyllir skilyrði. Um lítils háttar aðgerð er að ræða, hún tekur stuttan tíma og á ekki að vera óþægileg eða sársauka­full. Eftir uppsetningu tekur við biðtími þar sem það er undir fóstur­vísinum og umhverfi hans komið hvort hann festi sig í leginu og verði í fram­haldinu að þungun og síðar barni.

Reglur um frysta fósturvísa

Samkvæmt íslenskum lögum má geyma frysta fóstur­vísa í allt að 10 ár. Eftir það er þeim fargað. Sjúklingar geta ávallt hætt meðferð og óskað eftir förgun sinna fóstur­vísa.

Förgun fósturvísa

Ef fóstur­vísum er fargað meðan á meðferð stendur, til að mynda vegna lélegra gæða, eiga sjúklingar að vera upplýstir og meðvitaðir um gang mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá