Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Eins árs drengur lést eftir að hafa verið skilinn eftir í heitum bíl

Í gögnum lögreglu kemur fram að bifreiðinni hafi verið lagt í beinu sólar­ljósi

Kevin Pell með lögfræðingum sínum
Kevin Pell með lög­fræð­ingum sínum

Maður í Connecticut í Banda­ríkjunum hefur verið ákærður eftir að eins árs sonur hans lést eftir að hafa verið skilinn eftir í bifreið í miklum hita.

Samkvæmt lögreglunni í East Windsor hafði faðirinn, Kevin Pell, samband við neyðar­línuna í síðasta mánuði og greindi frá því að hann hefði skilið drenginn eftir í bílnum þar sem hann hefði verið sofandi. Pell fór á meðan til vinnu á jarðarberjabúi fjöl­skyldunnar.

Þegar hann sneri aftur að bifreiðinni var drengurinn orðinn blár og andaði ekki, að því er fram kemur í gögnum málsins. Pell hóf endur­lífgun og hélt henni áfram þar til viðbragðs­aðilar komu á vettvang og tóku við.

Samkvæmt húsleitar­heimild, sem PEOPLE hefur undir höndum, sagði Pell upphaf­lega að loft­kæling bifreiðarinnar hefði ekki verið í gangi. Hann mun síðar hafa sagt lögreglu að kveikt hefði verið á henni.

Í gögnum lögreglu kemur fram að bifreiðinni hafi verið lagt í beinu sólar­ljósi og að allir gluggar, auk sóllúgu, hafi verið lokaðir. Aðstæður í bifreiðinni hafi því ekki verið öruggar fyrir barnið.

Drengurinn var fluttur á Connecticut Children's Medical Center þar sem hann var úrskurðaður látinn.

Pell hefur verið ákærður fyrir að hafa stofnað barni í hættu. Lögregla segir rannsókn málsins enn standa yfir og að frekari ákærur kunni að verða gefnar út.

Pell kom fyrir dómara á fimmtudag en tók ekki afstöðu til sakar­gifta. Næsta þinghald í máli hans er fyrir­hugað í næsta mánuði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs