Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Pílufélagið vill ekki sýna reikningana: „Ég held að það sé eitthvað tortryggilegt í gangi þarna“

Þessi mynd er samsett
Þessi mynd er sam­sett

Samkvæmt heimildum Mannlífs hefur eftirlits­deild Ríkis­skattstjóra og efnahags­brota­deild Héraðs­saksóknara verið tilkynnt um meintan vafasaman rekstur Pílu­félags Reykja­nesbæjar sem rekið er sem félaga­samtök í fríu húsnæði bæjar­félagsins. Þær upplýsingar koma heim og saman við upplýsingar frá tveimur heimildar­mönnum sem báðir eru meðlimir. Þeir vildu ekki láta nafn síns getið af ótta við að vera úthýst úr félaginu. Samkvæmt framburði þeirra á sér stað ýmis ólögleg starfsemi á meðal stjórnar­meðlima félagsins sem, í samtölum við blaðamann Mannlífs, neituðu að afhenda gögn á borð við ársreikninga eða annað sem sýnir rekstur félagsins á svörtu og hvítu.

Bifreiðakaup framhjá stjórn

„Það er alveg klárt mál að þarna á sér stað eitthvað sem ekki má líta dagsins ljós ef marka má þau viðbrögð sem ég hef fengið frá Sísí og Halldóri þegar ég hef spurt um einfalda útprentun á reikningi félagsins úr heima­banka,“ sagði einn meðlima félagsins og heimildar­maður Mannlífs. Þarna á hann við Sísí Ingólfs­dóttur, formann félagsins og Halldór Gísla Gunnarsson, gjaldkera þess.

„Hann er bara hérna úti á plani hjá mér“

Heimildar­manni Mannlífs þótti það skjóta skökku við að þegar félagið, sem telur langt undir hundrað meðlimum, keypti bifreið handa formanni þess, á síðasta ári en kaupin voru ekki rædd í stjórn félagsins þrátt fyrir að kostnaðurinn við bifreiða­kaupin væru hærri en hálf milljón króna. Formaður félagsins brást ókvæða við þegar spurt var um bifreiða­kaupin. „Hann er bara hérna úti á plani hjá mér,“ sagði Sísí við blaðamann Mannlífs.

Til saman­burðar má nefna að hvorki formenn né aðrir stjórnar­meðlimir körfu­knattleiks- og knattspyrnu­deildar Kefla­víkur eða Njarðvíkur eru á bifreiöðum sem keyptur var fyrir fjármuni félaganna. Þar telja félags­menn og iðkendur mörg hundruð, ef ekki yfir þúsund. „Ég hef starfað við alls kyns félags­störf og það allt í sjálfboða­vinnu. Auðvitað tíðkast það að keyptar séu pitsur og annað fyrir þá sem að svona stjórnum eða sjálfboða­vinnu koma en þarna virðast vera í gangi allt aðrar leik­reglur. Þegar ég frétti að það hefði verið keyptur bíll fyrir pening félags­manna til þess að formaðurinn, sem engan bíl á, gæti farið í ferðalag síðasta sumar, þá varð ég bara orðlaus. Þegar ég spurði um bílinn þá var bara hreytt í mig og sagt að þetta kæmi mér ekki við,“ sagði einn af heimildar­mönnum Mannlífs.

Kolólögleg áfengissala

Þegar formaður félagsins var spurður út í bifreiða­kaupin og í hvað bíllinn væri nýttur þá voru svörin á þá leið að hún væri notuð fyrir félagið: „Það er verið að nota hann í reksturinn, þegar það þarf að sækja vörur og fleira,“ sagði Sísí í samtali við Mannlíf. Samkvæmt heimildar­manni á formaðurinn þarna við kaup á áfengi í ÁTVR sem síðar er svo selt ólöglega bæði inni á stað félagsins að Keilis­braut 755 og einnig út úr húsi fyrir þá sem vilja. Mannlíf kannaði hvort félagið væri með gilt leyfi til áfengis­sölu en svo er ekki. Áfengis­salan er því kolólögleg. Að slíkt sé yfirhöfuð leyft í fasteign á vegum Reykja­nesbæjar sem félagið fær not af endurgjalds­laust er ámælis­vert að mati Héraðs­saksóknara, sem eins og áður segir, er að skoða málefni félagsins.

Þá hefur Mannlíf einnig upplýsingar um það að salur félagsins, sem er í samkomu­húsi Reykja­nesbæjar á Ásbrú – gamla varnarliðs­svæðinu, sé leigður ítrekað út bæði til félags­manna og annarra hópa og fyrir­tækja á svæðinu. Slík leiga er alltaf greidd með seðlum og óvíst hvar þeir fjármunir enda: „Við sem félags­menn vitum ekkert hvort þessi peningur rati inn á reikning félagsins eða hvort þeim sé stungið á aðra staði sem tengjast rekstrinum ekki beint. Ég vill ekki benda á neinn en það er frekar skrítið að ár eftir ár er sami gjaldkeri þarna við störf og virðast sætin í stjórninni skiptast á milli sama hópsins,“ segir heimildar­maður Mannlífs og bætir við að nú séu aðeins tvær vikur í aðalfund félagsins. „Það samt á ekki eftir að skipta neinu því á síðasta aðalfundi voru reikningar félagsins lagðir fram ef reikninga skyldi kalla. Þetta voru svona upptalningar eins og nemenda­félög í grunn­skóla fara með fyrir nemendur – hvað var selt fyrir mikið og hvað fékkst í mótsgjöld, sjoppan og hvað svo félagið á inni á banka­reikning. Frekari upplýsingar um það er bara ekkert hægt að fá.“

Brást ókvæða við

Þetta fékkst staðfest þegar blaða­maður Mannlífs hringdi í Halldór Gísla, gjaldkera félagsins, sem bar fyrir sig því að hafa ekki verið þarna í rúmt ár. Af hverju engin hafi séð um þessi mál í fjarveru hans var ekki útskýrt og þá var blaða­manni neitað um upplýsingar um fjárhag félagsins og þá hvert þeir peningar fara sem til dæmis eru fengnir með útleigu á sal sem er ekki einu sinni í eigu Pílu­félags Reykja­nesbæjar. Bifreiðin var sögð rekin fyrir dósa­pening – dósir sem eru í nær öllum tilfellum bjórdósir sem, eins og áður segir, eru seldar þar með ólöglegum hætti: „Ég veit ekkert hvort þú megir fá þetta yfirlit. Þetta verður birt á aðal­fundinum eftir tvær vikur.“

Aðspurður, í ljósi aðstæðna, hvort möguleiki væri að fá að sjá útprentun úr heima­banka félagsins þá var þeirri beiðni hafnað og bent á formanninn, Sísí Ingólfs­dóttur, sem brást ókvæða við öllum spurningum. Sagði blaða­manni ekki koma það við hvað þarna færi fram enda væri hún ekki meðlimur í félaginu.

Auglýsingaherferð

Þegar litið er á Facebook-síðu félagsins má sjá færslur frá því í júlí á síðasta ári. Þar sést bifreiðin, sem var keypt.  Í stöðu­uppfærslu, sem skrifuð var af formanninum, er ferða­lagið látið líta út sem auglýsingar­herferð fyrir Pílufélag Reykja­nesbæjar sem hlýtur að skjóta skökku við þar sem félagið er svæðis­bundið og því ekki tilgangur í því að auglýsa félagið, til dæmis á Akureyri þar sem er starfrækt pílufélag.

Í næstu stöðu­uppfærslu má ætla sem svo að þetta sé allt saman skemmtilegur spurningar­leikur fyrir meðlimi Pílu­félags Reykja­nesbæjar sem áttu svo að giska á hvar bifreiðin væri stödd á þessu sumar­ferðalagi formannsins. Þá ber einnig að taka fram að engar aðrar merkingar eru á bifreiðinni nema einkennis­merki félagsins. Má því ætla að engir styrktar­aðilar hafi komið að kaupunum og hún því keypt fyrir fjármuni félagsins  – sem allir félags­menn hafa lagt til með félags­gjöldum sem greidd eru ár hvert og eru um fjórtán þúsund krónur. Það eru þó ekki einu fjár­munirnir sem streyma inn í félagið því fyrir utan þá sem keypt hafa auglýsingar inni á staðnum eru greidd mótsgjöld, keyptur er bjór og þá eru heima­tilbúnar samlokur seldar á tæpar þúsund krónur á staðnum.

„Ég trúi bara ekki öðru en að lögreglan hefji rannsókn á félaginu og komist til botns í því í eitt skipti fyrir öll hvert peningar félags­manna fara og þá hvort félaginu sé ekki skylt að fara að öllum lögum og reglum líkt og önnur íþrótta­félög. Ég sé til dæmis ekki bjór úr ÁTVR seldan á júdómótum eða körfu­knattleiks­leikjum – ef það er að þá er slíkt í öllum þeim tilfellum sem ég þekki til selt með tilskyldum leyfum,“ segir heimildar­maður Mannlífs.

Þá bætir hann við að það hljóti að vera á ábyrgð Reykja­nesbæjar að þarna fari fram lögleg starfsemi sem rekin er í samræmi við núgildandi lög.

Beðið svara frá bæjarfélaginu

Pílukast er ört vaxandi íþrótt á landinu og hefur orðið gríðar­lega sýnileg í nánast öllum bæjar­félögum á Íslandi og á sjónvarpsskjám lands­manna undan­farna mánuði og vikur. Flest þeirra pílu­félaga sem starfandi eru á Íslandi eru, eftir því sem Mannlíf kemst næst, rekin í sátt við alla félags­menn og í samræmi við núgildandi lög og reglur: „Það er því ömurlegt að brotabrot af þessum hópi geti mögulega komið óorði á þessa frábæru íþrótt sem ætti að vera öllum opin því þarna koma saman ungir sem aldnir, konur og karlar og hittast þar allir á jafningja­grundvelli og kasta frá sömu línu. Það er ekki einu sinni gert upp á milli kynja sem er bara frábært því það geta allir orðið góðir í pílu enda skapar æfingin meistarann,“ sagði heimildar­maður Mannlífs að lokum.

Mannlíf hafði samband við Reykja­nesbæ en samkvæmt upplýsingum frá bæjar­félaginu er þetta mál í skoðun. Félagið heyrir undir Íþrótta­bandalag Reykja­nesbæjar en formaður þess var vant við látinn í dag. Mannlíf mun heyra í honum um leið og færi gefst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá