Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Conor McGregor klúðraði kynningu á vöru sinni – Sendi lukkudýr Miami Heat á bráðamóttökuna

Kynning Conors McGregor á verkja­stillandi spreyi hans misheppnaðist harkalega en hann sendi lukkudýr körfu­knattleiks­liðsins Miami Heat, á bráða­móttökuna.

Bardaga­kappinn írski, sem þekktur er fyrir slæma hegðun, birtist á körfu­bolta­vellinum í hléi í miðjum úrslita­leik Miami Heat og Denver Nuggets í NBA-deildinni, til að kynna nýja verkja­stillandi spreyið hans. Burnie, sem er lukkudýr Miami Heat kom á völlinn klæddur í skikkju og gyllta boxhanska og þóttist ætla að boxa við McGregor en það var augljós­lega sett á svið.

Til að byrja með fíflaðist McGregor með því að spreyja úr brúsa sínum yfir Bernie en svo virðist hafa orðið skamm­hlaup í heila bardakappans en hann kýldi skyndi­lega lukku­dýrið beint á trýnið, sem lá óvígt eftir á gólfinu. Ekki lét Conor þetta högg duga því hann gekk að höfði Bernie og gaf honum bylmings­fast högg í smettið. Starf­maður í húsinu sást þá draga Conor frá Bernie.

Í því komu þrír starfs­menn sem tóku þátt í auglýsinga­atriðinu og veifuðu handklæði yfir andliti lukku­dýrsins, eins og stundum er gert í boxi þegar keppendur þurfa andrými. Starfs­mennirnir drógu svo Bernie af velllinum á löppunum á meðan McGregor spreyjar aftur yfir lukku­dýrið.

Það var ekki fyrr en eftir að Bernie var dreginn af vellinu að það kom í ljós að atriðið gekk of langt. Samkvæmt Sam Amick, NBA-frétta­manni, þurfti maðurinn sem lék Bernie að fara á bráða­móttöku í nálægu sjúkra­húsi, eftir högg hins fyrr­verandi UFC-meistara.

Að sögn var manninum gefin verkjalyf en hann hefur nú verið útskrifaður og sleikir sárin heima hjá sér.

Hér má sjá hið misheppnaða auglýsinga­atriði:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár