Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Dagdrykkja gamalmenna: „Má kannski aðeins kafa ofan í orsakarótina“

Diljá Ámundadóttir Zoëga. Mynd/skjáskot. Vísir.
Diljá Ámunda­dóttir Zoëga. Mynd/skjá­skot. Vísir.

Diljá Ámunda­dóttir Zoëga var með aðsendan pistil í dag á Vísi sem ber heitið: Aðeins um dagdrykkju gamalmenna – af hverju eru þau að drekka? Diljá er með diplómu á meistara­stigi í sálgæslu­fræðum og veltir hún fyrir sér grein sem birtist í gær í Frétta­blaðinu: Aðeins um dagdrykkju gamalmenna.

Diljá segist hafa orðið vör við umræðu, upp á síðkastið, um aukningu í áfengis­drykkju eldri borgara í samfélaginu. Hún vonast eftir því að farið verði nánar ofan í orsaka­rótin og hætt verði að beina spjótum að birtingar­mynd vandans í fréttum og viðtölum.

„Einhverjir vilja nú meina að þetta sé hið besta mál – ef einhvern tíma sé tími til að skála í smá dagdrykkju þá á þessum blessuðu ævikvöldum. Ég er sammála því en þar sem þetta er orðið að vandamáli má kannski aðeins kafa ofan í orsaka­rótina og hætta að beina spjótum að birtingar­mynd vandans – líkt og áherslan hefur verið í þeim fréttum og viðtölum sem ég hef lesið og hlustað á. Kannski hefur eitthvað farið framhjá mér.“

Diljá telur að tími sé kominn á að spyrja fólk: Hvað hafi komið fyrir það? Í stað þess að spyrja: Hvað sé að þessari manneskju?

„Sú kynslóð sem hér um ræðir er kynslóð sem ólst upp við lítið sem ekkert pláss til að finna fyrir eða ræða um erfiðar tilfinningar – en urðu að sjálfsögðu fyrir áföllum og lífsins byltum.

  • Mér er hugsað til kvenna sem fæddu börn sín andvana eða misstu börn úr sótt. En fengu aldrei að syrgja þau almennilega. Fóru áfram í gegnum lífið með brotið móður­hjartað.
  • Mér er hugsað til stúlkna og kvenna sem urðu fyrir ítrekuðu áreiti, ofbeldi og syfjaspelli og þurftu að harka það af sér og bera níðþunga skömmina á bakinu í þögn út lífið.
  • Mér er hugsað til allra sem sem voru samkyn­hneigðir, trans eða kynsegin og fengu aldrei lifa því lífi og bældu kynhneigð og kynvitund niður. Líka í skömm. Með öllum þeim geðheilsu­legu afleiðingum.
  • Allra karla sem ólust upp í eitraðri karl­mennsku og fengu aldrei verkfæri til að upplifa raun­verulegar tilfinningar né tjá sig um þær.
  • Mér er hugsað til allra sem upplifðu almennt einhverja geðheilsu­kvilla á borð við kvíða, depurð – en mættu köldu stigma og upplifðu sig sem aumingja sem ættu ekki að kvarta.

Þetta eru bara nokkur dæmi af mörgum sem mér dettur í hug að þessi kynslóð sem hér um ræðir sé að deyfa með dagdrykkju sinni. Því það er einfald­lega þannig að ótal lífsins trauma sem ekki er unnið úr leiða oft til fíkni­vanda á borð við áfengis­vanda síðar meir.

Við þurfum að hætta að spyrja sífellt að því „hvað sé eiginlega að þessari manneskju?“ – og fara að spyrja að því hvað hafi kannski komið fyrir hana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá