Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Marta María Arnarsdóttir – Nýráðinn skólameistari Hússtjórnarskólans stýrði Covid-sýnatökum

Marta María Arnarsdóttir
Marta María Arn­ars­dóttir

„Allt frá því ég var lítil hefur mig langað til að verða skóla­stjóri,“ segir Marta María Arnars­dóttir, nýráðinn skóla­meistari Hússtjórnar­skólans í Reykjavík. „Mig langaði líka alltaf til að verða kennari og mér fannst rökrétt að byrja að kenna fyrst áður en ég spreytti mig á skólastjóra­starfinu. Mig langaði til að vera kennarinn sem ég vildi að ég hefði haft sem barn og í kennslu minni hef ég lagt ríka áherslu á að nemendum mínum líði sem allra best til dæmis með því að nota fjöl­breyttar kennslu­aðferðir til að koma til móts við alla nemendur á einhverjum tíma­punkti. Ég hef einnig verið lánsöm með marga kennara í gegnum tíðina sem hafa haft mikil og mótandi áhrif á mig. Kennarar hafa mikil áhrif á nemendur sína og mig langaði til að láta gott af mér leiða; hafa góð áhrif á aðra. Ég hef einnig fengið að upplifa mismun­andi stjórnunar­hætti yfirmanna minna og skóla­stjóra sem ég hef unnið með og það hefur gefið mér skýra sín á það hvernig skóla­stjóri ég vil vera. Í mörgum yfir­mönnum mínum hef ég séð fyrir­myndir en í öðrum hef ég lært hvernig ég vil ekki haga hlutunum. Þegar ég hef lent í mótlæti í lífinu hef ég reynt að nýta mér það til góðra verka svo aðrir þurfi ekki að upplifa hluti sem maður sjálfur hefur gengið í gegnum. Ég hugsa að það sé í grunninn þess vegna sem ég ákvað að sækja um sem skóla­stjóri, til að láta gott af mér leiða.“

Það má því segja að skól­inn sé aftur kom­inn í tísku.

Hvaða áherslur mun nýr skóla­meistari koma með? Jafnvel einhverjar nýjungar?

„Ég ber mikla virðingu fyrir sögu Hússtjórnar­skólans, þeirri mikilvægu starfsemi sem þar fer fram og tel mig geta starfað af krafti við að halda arfleifð skólans við í síbreytilegum nútímanum. Hússtjórnar­skólinn hefur vissulega breyst mikið frá því hann var stofnaður þótt grunnurinn sé að miklu leyti sá sami. Ég sé gríðarleg tækifæri í skólanum. Mikilvægt er að huga að sjálfbærni á öllum sviðum, endurnýta, endur­vinna og vera sjálf­stæður og skapandi og þetta er allt kennt nú þegar í skólanum. Það má því segja að skólinn sé aftur kominn í tísku. Ég sé ekki fyrir mér að kollvarpa öllum þeim góðu gildum sem skólinn stendur fyrir en vissulega koma einhverjar breytingar með nýjum stjórn­anda; ég held að það sé óhjákvæmilegt.“

Marta María segir að það sé fyrst og fremst gífur­legur heiður að fá að taka við taumunum í svona gömlum skóla sem á sér góða og farsæla sögu. „Ég ber ómælda virðingu fyrir skólanum og því sem hann stendur fyrir. Andinn í húsinu er ólýsanlega góður; það er eins og maður finni fyrir krafti allra þeirra nemenda og kennara sem hafa áður gengið um stofur skólans. Ég er líka verulega heppin með samstarfs­fólk sem heldur uppi mjög góðum anda og hefur tekið mér opnum örmum.“

Draumurinn hefur ræst.

„Ég vona að ég geti nýtt krafta mína til góðra verka í þeim verkefnum sem ég kem að og geti haft góð áhrif á fólkið í kringum mig. Stóri draumurinn var í raun að verða skóla­stjóri Hússtjórnar­skólans í Reykjavík þannig að núna er það bara að njóta tímans hér.“

Handavinnan veitir hugarró

Marta María var á sínum tíma nemandi við skólann og er spurð hvers vegna hún hafi farið í skólann.

„Stóra systir mín gekk í skólann þegar ég var fimm ára. Ég man eftir því að hafa farið á opið hús í skólanum þegar hún var í honum og í minningunni var það eins og að koma inn í kastala sem í raun er ekki svo fjarri lagi; mér líður enn eins og í höll eða á fínum herra­garði í hvert sinn sem ég er í skólanum. Móðir mín og amma hafa einnig verið ötular við handa­vinnuna, hafa kennt mér margt varðandi alls konar bakstur og elda­mennsku og þær smituðu mig fljótt af áhuga þeirra. Þegar ég sótti um skólavist í Húsó á sínum tíma langaði mig aðallega til að komast í kynni við alla handa­vinnuna sem er kennd við skólann og verða sjálf­stæðari í eldhúsinu. Ég er einnig mjög heilluð af uppsetningu námsins. Námið er ein önn og því afar hentugt að stoppa við í Húsó þegar maður er í einhverju millibils­ástandi líkt og ég gerði eftir mennta­skóla og áður en ég hóf nám við Háskóla Íslands.“

„Ég og amma mín og nafna, Marta María, sem gekk einnig í skól­ann á sínum tíma. Einn af mínum helstu stuðn­ings­að­ilum og fyr­ir­mynd.“
Handa­vinnan verður á þann hátt ein­hvern veg­inn ávana­bind­andi.

Hvað fannst Mörtu Maríu hún helst læra svo sem varðandi sig sjálfa?

„Í handa­vinnu felst mikil núvitund og því nær maður góðri tengingu við sjálfan sig þegar maður situr við og saumar, vefur og prjónar. Handa­vinnan verður á þann hátt einhvern veginn ávana­bindandi, maður sækir oft í hana til að öðlast hugarró. Svo er líka mjög hvetjandi að mæta á réttum tíma í Húsó þar sem allir skóla­dagar hefjast á morgun­verðar­hlaðborði. Það má því segja að ég hafi lært stundvísi þegar ég gekk sjálf í skólann.“

Marta María segir að þegar hún stundaði nám við skólann hafi hún eignast mörg áhugamál sem eru hennar helstu áhugamál í dag. „Ég met mikils að hafa orðið sjálfstæð á hinum ýmsu sviðum eins og í eldhúsinu, í handa­vinnu og í ræstingu. Í skólanum kynntist ég einnig mörgum af mínum bestu vinum og við höldum mörg enn hópinn í dag. Það er mjög dýrmætt.“

Marta María og Katrín sauma­kenn­ari við Hús­stjórn­ar­skól­ann á góðri stundu við sauma­skap­inn.

Elda­mennska, bakstur, sauma­skapur, prjóna­skapur… Hvaða máli skiptir fyrir Mörtu Maríu að kunna þetta og gera þetta vel?

„Það þurfa allir að hafa í sig og á. Fljótlega átta ungir einstaklingar sig á því að það er ekki hægt að kaupa tilbúinn mat í öll mál; það er bæði dýrt og óumhverfisvænt. Eða þá að kaupa allar flíkur dýrum dómum þegar vel er hægt að sauma eða prjóna sér þær. Einhvers staðar þarf maður að læra þá hæfni sem til þarf til að vera sjálf­stæður og sjálfbær á þessum sviðum og það er tilvalið að læra það í Húsó.“

Umsjónarkennari 19 ára

Marta María ólst upp í Reykjavík. „Ég lék mér mikið með krökkunum í götunni, æfði á fiðlu og einsöng og söng í kórum. Ég æfði einnig samkvæmis­dans, ballett og tennis og hafði gaman af öllu þessu. Mig langaði þó helst til að geta „æft” prjón, saumaskap og bakstur en það var hvergi hægt og það þyrfti kannski að bæta úr því fyrir unga krakka. Þess í stað gat ég farið í Húsó til að leggja frekari stund á þá iðju. Í grunn­skóla sleppti ég 10. bekk en ég lærði námsefni 10. bekkjarins þegar ég var í 9. bekk og eftir það lá leið mín í MH. Þar undi ég mér mjög vel á málabraut og félags­fræðabraut. Mig langaði lengi vel til að verða stærðfræði­kennari en í MH skipti ég algerlega um skoðun þar sem íslensku­kennarar skólans smituðu mig af einlægum áhuga þeirra. Áður en ég fór í BA-nám í íslensku við HÍ fór ég í Húsó. Það hentaði mjög vel þar sem ég varð stúdent í desember og hafði því akkúrat eina lausa önn til að njóta mín í Hússtjórnar­skólanum. Eftir BA-námið lá leið mín í meistaranám í kennslu­fræðum. Samhliða háskóla­náminu kenndi ég í Hvassaleitis­skóla. Ég varð fyrst umsjónar­kennari 19 ára gömul og fékk strax þá fullvissu um að ég vildi leggja mitt af mörkum í mennta­kerfinu. Ég tók við stórum og krefjandi bekk sem ég var svo heppin að fá að kenna í mörg ár. Það var ótrúlega skemmtilegur tími sem mér þykir mjög vænt um.“

Stýrði Covid-sýnatökum

Marta María gegndi starfi verkefna­stjóra hjá Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins og stýrði Covid-sýnatökum Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins á Suður­landsbraut 34 í heims­faraldrinum.

Það er í raun ótrú­legt að líta til baka á þau fjöll sem við fluttum þegar mest lét og alltaf ríkti jákvæðni, gleði og drif­kraftur í starfs­manna­hópnum.

„Eftir fimm ár í kennslu lá leið mín óvænt á Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins. Ég réð mig uppruna­lega til starfa hjá Heilsu­gæslunni þar sem ég var í kennara­sumarfríi, hafði lítið við að vera og vildi láta gott af mér leiða í faraldrinum. Eitt leiddi að öðru og áður en ég vissi af var ég nánast búin að flytja lögheimili mitt á Suður­lands­brautina þar sem Covid-sýnatökur fóru fram. Verkefna­stjóra­staðan hefur gefið mér verulega mikið. Hjá Heilsu­gæslunni ríkir mjög góður andi og ég er mjög heppin með samstarfs­fólk og yfirmenn þar. Dagarnir hafa margir verið krefjandi og síbreytilegar reglu­gerðir og bylgjur hafa ýtt undir mjög sveigjanlega starfs­hætti. Það er í raun ótrúlegt að líta til baka á þau fjöll sem við fluttum þegar mest lét og alltaf ríkti jákvæðni, gleði og drif­kraftur í starfs­mannahópnum. Einna eftir­minnilegustu stundirnar af Suður­lands­brautinni eru frá á aðventunni. Þá komu mörg þúsund skjólstæðingar til okkar dag hvern til að sækja sér hrað­prófs­vottorð fyrir hvers kyns viðburði samhliða því að smittölur fóru hækkandi og því fjölgaði einnig í PCR-sýna­tökunum. Þrátt fyrir langar raðir sem hlykkjuðust í kringum bygginguna voru skjólstæðingar duglegir að hrósa okkur fyrir gott skipulag og hvað þetta gekk allt saman hratt og vel. Náunga­kærleikurinn getur verið svo sterkur og þýðingar­mikill. Þetta var verulega skemmtilegur og lærdóms­ríkur tími. Ég hef ekki alveg sagt alveg skilið við Heilsu­gæsluna og held áfram í mínu starfi þar í sumar.“

Fyrirmynd

Marta María segir að sín helstu áhugamál í dag samtvinnist vel í nýja starfinu. „Ég hef mjög mikinn áhuga á hvers kyns handa­vinnu og bakstri og oft fer frítími minn í þær iðjur. Ég hef einnig mikinn áhuga á kennslu, uppeldi, íslensku og góðum stjórnunar­háttum. Einnig hef ég mikla ánægju af félags­skap og útiveru með hundinum mínum henni Línu og nýt þess að fara í ferðalög og hitta vinkonur mínar.“

Marta María með Línu, hund­inum sínum.

Hvaða lífs­reynsla hefur mótað hana?

„Eins og áður hefur komið fram tók ég við sem umsjónar­kennari í fyrsta skipti þegar ég var 19 ára gömul. Sú reynsla og ábyrgð sem mér var fólgin mótaði mig mjög mikið. Ég gaf mig alla í starfið og það var dýrmætt fyrir mig að finna fyrir trausti samstarfs­fólks, nemenda og foreldra. Það gaf mér mikið að sinna því mikilvæga starfi sem kennara­starfið er. Mér fannst mikilvægt að vera eins góð fyrirmynd og ég gat fyrir nemendur mína og ábyrgðin sem fólst í starfinu hvatti mig til að standa mig vel, setja mér skýr markmið og standa við þau.“

Lífið getur verið alls konar.

„Þar sem það er óhjákvæmilegt að verða fyrir áföllum í lífinu er mikilvægt að læra að takast á við þau, sækja sér aðstoð og taka ákvörðun um það hvernig maður vill lifa lífinu með þeim. Það er mjög mikilvægt að leyfa sér að dvelja í tilfinningum sínum og í sorginni þegar það á við en síðan er jafn mikilvægt að festast ekki þar. Það þarf mikinn vilja­styrk að vinna úr áföllum og láta þau ekki brjóta sig niður. Þótt það sé krefjandi getur maður alltaf lært af þeim áföllum sem maður verður fyrir og snúið þeirri reynslu upp í eitthvað jákvætt.“

Skóla­meistarinn gefur lesendum uppskrift að sívinsælu húsó­kleinum skólans. „Uppskrift sem notuð hefur verið frá upphafi skólans. Alveg guðdómlegar.“

Húsó-kleinur

Heil uppskrift:

1 kg hveiti

300 g sykur

150 g smjörlíki

6 tsk. lyftiduft

2 stór egg

2 tsk. matarsódi

6 dl súrmjólk eða AB-mjólk

2 tsk. malaðar kardimommur

  1. Blandið öllum þurrefnum saman.
  2. Myljið smjör­líkið saman við.
  3. Vætið í með sundur­slegnum eggjum og helmingnum af súrmjólkinni/AB-mjólkinni. (Myndið fjall úr þurr­efnunum og myndið holu fyrir eggin og súrmjólkina).
  4. Vætið í með afganginum af súrmjólkinni/AB-mjólkinni og hnoðið.
  5. Fletjið út og mótið kleinur.
  6. Steikið.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

„Blessuð sé minning þeirra þriggja manna sem snéru þaðan liðnir.“
Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá