Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Anna rifjar upp sögu af kettinum Hrafnhildi: „Heitir það ekki núna fólkfólkinu?“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

„Hundar eru skynsamar skepnur, reyndar ekki eins skynsamir og kettir en skynsamir samt. Þeir gera til dæmis ekki stykkin sín innanhúss nema í ítrustu neyð, reyndar eins og kettir sem eiga venjulega sitt eigið klósett, allavega ef þeir búa í manna­bústöðum (afsakið fólk­bústöðum).“ Svona hefst nýjasta dagbókar­færsla Önnu Kristjáns í Paradís en það er gælu­heitið sem hún gefur Tenerife.

Í færslunni talar hún lítið um mann­fólkið en meira um hunda og ketti. Þó aðallega ketti. Rifjar hún upp þegar hún átti köttinn Hrafnhildi í Árbæjar­hverfinu en hún átti það til að stelast á næstu svalir til að gera stykkin sín. Síðar í færslunni segir hún frá klósett­venjum Texas el Perró sem hún á í Paradís. Grínast hún með orðið „mann­fólkið“ og spyr hvort það heiti ekki nú „fólk­fólkið“. Dagbókar­færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

„Dagur 1314 – Af hundum og köttum.

Hundar eru skynsamar skepnur, reyndar ekki eins skynsamir og kettir en skynsamir samt. Þeir gera til dæmis ekki stykkin sín innanhúss nema í ítrustu neyð, reyndar eins og kettir sem eiga venjulega sitt eigið klósett, allavega ef þeir búa í manna­bústöðum (afsakið fólk­bústöðum).Ég man að þegar ég bjó í Árbæjar­hverfinu í Reykjavík veitti ég því athygli að hún Hrafnhildur mín ofurkisa var farin að gera óvenju lítið í kassann sinn og fór að fylgjast með henni. Svo þurfti hún að gera stykkin sín, fór út á svalir og fór létt með að skríða yfir á næstu svalir, stillti sér upp yfir stóru blómakeri með litlu opi að ofan og lét stykkin sín detta þar ofaní. Skömmustuleg þurfti ég að banka upp á hjá nágrönnunum og biðjast afsökunar fyrir klær Hrafnhildar og reyna síðan að koma í veg fyrir að hún stælist þangað yfir. Reyndar voru nágrannar mínir slíkt sómafólk að öll samskipti við þau voru hin bestu, hún frá Vestmanna­eyjum (hvað annað?). Smám saman lærðist Hrafnhildi að kassinn heima var sá eini sem mátti nota innandyra. Hvað hún gerði svo af sér þegar hún var úti að skemmta sér kom engum við nema henni sjálfri.Texas el Perró er ósköp þægur og bíður þolinmóður flestar nætur eftir því að einhver vakni og hleypi sér út að sinna grunn­þörfunum. En einhverntímann síðustu dagana sem litla fjöl­skyldan var hjá mér hefur eitthvað brugðist því þegar þau voru farin, var komin vond lykt í litla herbergið og reyndist Texas þá hafa migið á gólfið.Nú er allt komið í lag, öll rúmföt þvegin, öll rúmteppi og teppin til að hlífa garð­húsgögnunum einnig, herbergið útloftað, gólfið nýskúrað og allt á leið til betri vegar.Það er ekki hægt að kenna Texas um óheppnina, frekar mann­fólkinu. (heitir það ekki núna fólk­fólkinu?)“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt