Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Íslenskar stúlkur samþykktu að gerast burðardýr – 20 ára fangelsi í Bandaríkjunum

Á Íslandi eru fimm fangelsi sem vistað geta alls 136 fanga og er þar með talið fangar í afplánun sem og í gæslu­varðhaldi. Innan­ríkis­ráðherra fer með yfir­stjórn fangelsis­mála, en Fangelsis­mála­stofnun sér um fullnustu refsinga ásamt því að hafa umsjón með rekstri fangelsa. Refsing og afplánunar­tími fer eftir broti og lögum þess lands sem brotið átti sér stað og getur refsingin vissulega verið mjög ólík á milli landa fyrir sömu eða svipuð brot.

Árið 2013 sátu nær tveir af hverjum þremur Íslendingum í fangelsi erlendis í Danmörku. Á þeim tíma voru 26 Íslendinga að finna bak við lás og slá í átta ríkjum, 24 karlmenn og tvær konur og voru fangarnir tíu fleiri en þeir voru árið 2011.

Íslenskar stúlkur teknar í Prag fyrir kókaínsmygl

Tvær átján ára íslenskar stúlkur voru hand­teknar í Prag, höfuðborg Tékklands, í nóvember 2012. Þær voru með átta kíló af kókaíni í farangri sínum. Þær höfðu flogið til Prag frá Sao Paulo í Brasilíu, þar sem þær samþykktu að gerast burðardýr. Fíkni­efnin voru afar haganlega falin í farangurs­tösku stúlknanna. Upphaf­lega stóð til að þær gleyptu fíkni­efnin og smygluðu þeim á milli landa innvortis.

Þær milli­lentu í München í Þýska­landi og í Prag voru þær hand­teknar með mikið magn af kókaíni í fórum sínum. Þær voru svo síðar úrskurðaðar í sjö mánaða gæslu­varðhald.

   Afar hörð viðurlög í Tékklandi

Viðurlög við fíkniefna­smygli eru afar hörð í Tékklandi og voru þær dæmdar í sjö og sjö og hálfs árs fangelsi. Áfrýjunar­dómstóll mildaði refsinguna niður í fjögur og hálft ár. Fram að því höfðu stúlkurnar setið inni í sitthvoru fangelsinu í Prag, en eftir að dómarnir voru mildaðir voru þær báðar fluttar í Swětla-fangelsið, sem er í um 200 kílómetra fjarlægð frá höfuð­borginni. Áður voru þær hvor í sínu fangelsinu.

„Dómarinn tók tillit til þess hversu ungar þær eru og að þær hefðu ekki gert sér grein fyrir því hvað þær voru að gera. Þessi dómari var mun tillits­samari en fyrri dómari,“ sagði Þórir Gunnarsson, fyrr­verandi aðal­ræðismaður Íslands í Tékklandi.

„Nú fara þær í að sækja um flutning til Íslands og þurfa þær að gera það sjálfar. Málið er allt í farvegi en þetta tekur alltaf vissan tíma,“ sagði Þórir í samtali við Vísi, en þær þurftu að afplána tvo þriðju hluta dómsins áður en þær gátu sótt um náðun.

  Framsalsbeiðni stúlknanna

Í apríl 2014 byrjaði svo vinnan að fá þær fram­seldar til Íslands. Á Íslandi er í gildi Evrópu­samningur um framsal fanga og stóð alltaf til að fá stúlkurnar fram­seldar til Íslands til að afplána það sem eftir var af dómnum.

Að sögn Þóris Gunnars­sonar, fyrr­verandi ræðis­manns Íslands í Tékklandi, var unnið að því að gera verk­samning við lögfræðing stúlknanna um fanga­flutningana. Samkvæmt heimildum Vísis á þessum tíma, strandaði viðræðurnar á peninga­þætti. Stúlkurnar þurftu að greiða fram háan lögfræði­kostnað svo formlegt ferli gat hafist.

Þórir segir Innan­ríkis­ráðuneytið hafa verið vel upplýst um stöðu mála og undirbúið undir að fá framsals­beiðni stúlknanna inn á sitt borð. Beiðnin var afgreidd í samvinnu við lögreglu og fangelsis­mála­stofnun.

Formleg framsals­beiðni stúlknanna var send innan­ríkis­ráðuneyti Tékklands í júní byrjun árið 2014 og hófst framsals­ferlið viku síðar. Það stóð allan tímann til að stúlkurnar yrðu fram­seldar til Íslands til að afplána það sem eftir var af dómnum.

„Þær eru komnar í annað fangelsi, um 160 km frá Prag og byrjaðar að vinna í súkkulaði­verksmiðju. Ég talaði við lögmann þeirra í dag og þær hafa það ljómandi fínt og eru ánægðar,“ sagði Þórir um stöðu stúlknanna á þeim tíma.

Í desember 2014 voru stúlkurnar komnar aftur til Íslands og voru í fyrstu vistaðar í kvenna­fangelsinu í Kópavogi. Stúlkurnar tvær voru aðeins lítill hluti þeirra Íslendinga sem sátu í fangelsum á erlendri grundu á þessum tíma.

Íslendingar handteknir hinum megin á hnettinum

Árið 2013 voru þó nokkuð margir Íslendingar vistaðir í réttarkefum víðsvegar um heiminn

Þrír Íslendingar voru vistaðir í Suður-Ameríku. Þá greindi RÚV frá því að íslenskur karlmaður á þrítugsaldri hefði verið hand­tekinn á flug­vellinum í Buenos Aires í Argentínu með fjögur kíló af kókaíni árið 2013. Bætist hann í hóp Íslendinga sem voru hand­teknir í Suður-Ameríku fyrir fíkniefna­smygl. Tveir voru hand­teknir í Brasilíu, annar þeirra var hand­tekinn í Rio de Janeiro, en sá var dæmdur til 22 ára fangelsis­vistar fyrir tilraun til að smygla 46 þúsund e-töflum úr landi. Þá var annar Íslend­ingur í farbanni í Brasilíu á sama tíma.

Tveir Íslendingar á þrítugsaldri voru hand­teknir í Ástralíu, en þeir voru teknir með þrjú kíló af kókaíni og var refsingin 10 ára fangelsi við slíku broti.

Einn var í fangelsi á Spáni og annar í Noregi, grunaður um morð.

20 ára fangelsi í Bandaríkjunum

Árið 2013 hafði Geir verið sá Íslend­ingur sem lengst hefur setið í fangelsi í Banda­ríkjunum, en á þeim tíma hafði hann afplánað sextán ár af tuttugu ára dómi sem hann hlaut fyrir líkams­árás og rán í Virginíu undir lok síðustu aldar. Fram kom í umfjöllun Kastljóss um mál hans á þeim tíma að líklega hefði Geir einungis fengið tveggja eða þriggja ára fangelsisdóm hefði árásin átt sér stað í New York. Fórnar­lambið var orðum prýddur herforingi í Bandaríkjaher. Bandarískur félagi Geirs sem réðst með honum á manninn fékk fimmtán ára dóm.

Íslendingar framseldir frá Íslandi

Fjórir Íslendingar voru úrskurðaðir í gæslu­varðhald, þetta sama ár, árið 2013, vegna rann­sóknar umfangs­mikils e-töflu- og kókaíns­smygls. Þrír þeirra höfðu verið fram­seldir frá Íslandi vegna málsins en slíkt framsal á Íslendingum til útlanda vegna lögbrota hafa verið mjög fátíð.

Einn af þessum Íslendingum var árið 2013 dæmdur til tólf ára fangelsis­vistar í Danmörku. Hann var höfuð­paurinn í tilraunum til að smygla um 70 kílóum af amfetamíni til Danmerkur, frá Spáni. Alls voru ellefu ákærðir í því máli, þar af sex Íslendingar. Tveir af þeim voru dæmdir til tíu ára fangelsis­vistar vegna málsins. Annar þeirra hafði sama ár verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir smygl á fimm kílóum af amfetamíni. Þrír Íslendingar til viðbótar voru dæmdir vegna málsins, einn af þeim fékk tíu ára fangelsisdóm og tveir af þeim fengu hvor um sig sex ára dóm. Sjötti Íslend­ingurinn var úrskurðaður í geðrannsókn áður en refsing var ákveðin.

Sama ár voru tveir Íslendingar hand­teknir með fimm og hálft kíló af amfetamíni í Kaupmanna­höfn. Þeir náðust með ævintýra­legum hætti. Lögreglu­maður á frívakt rak augun í gulan hatt á höfði manns í umferðinni og mundi eftir að hafa séð hattinn í  eftirlits­myndavél.

Afþakka afskipti íslenskra yfirvalda

Í svari utan­ríkis­ráðuneytisins, vegna fyrir­spurna um stöðu Íslendinga í erlendum fangelsum kom fram að þeir sem voru í haldi vegna fíkniefna­brota, væru 23, en þrír vegna ofbeldis­brota. Þó er ekki víst að um tæmandi upptalningu hafi verið að ræða. Þetta voru þeir fangar sem íslenskum stjórn­völdum hafði verið tilkynnt um. Einhverjir kunna að hafa komist í kast við lögin erlendis án þess að óska eftir aðstoð íslenskra stjórn­valda.

Í frétt á RÚV kom fram að þetta væri mikil fjölgun frá því sem var fyrir tveimur árum áður. En í desember 2011 var vitað um 16 íslenska fanga í erlendum fangelsum.

Ekki er þó útilokað að fleiri Íslendingar hafi verið á bak við lás og slá erlendis þar sem dæmi eru um að þeir sem hljóta dóma erlendis vilji ekki að haft sé samband heim og afþakki afskipti íslenskra yfirvalda. Auk þeirra geta verið einstaklingar í erlendum fangelsum með tvöfalt ríkisfang og hafa hlotið dóma án þess að það sé tilkynnt hingað til lands.

Heimildir:

Innlendar fréttir. 17. október 2013. 26 Íslendingar í fangelsi erlendis: Langflestir vegna fíkniefna­brota. Vísir.

Innlent. 17. október. 2013. Íslendingum fjölgar í erlendum fangelsum. RÚV.

Innlent. 17. október. 2013. 26 Íslendingar í fangelsi erlendis. Morgun­blaðið.

Megin­löggjöf á þessu sviði eru lög um fullnustu refsinga nr. 49/2005. Er þar fjallað um stjórn og skipulag fangelsis­mála, atriði sem varða fanga­vistina og um réttindi fanga og samfélags­þjónustu. En einnig snerta almenn hegningarlög nr. 19/1940, Evrópu­samningur um framsal sakamanna og Samningur um flutning dæmdra manna málefni fanga.

Sunna Karen Sigurþórs­dóttir. 25. febrúar 2014. Dómur stúlknanna í Prag styttur. Vísir.

Þórhildur Þorkels­dóttir. 12. apríl 2014. Unnið að því að fá stelpurnar heim. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá