Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ásta Arnbjörg, oddviti K-lista í Eyjafjarðarsveit: Hann sagði „sjáumst á morgun“ en það varð aldrei

Ásta Arnbjörg Pétursdóttir
Ásta Arnbjörg Pét­urs­dóttir

„Það að ég ákvað að taka þátt í sveitar­stjórnar­málum er einlægur áhugi á samfélaginu og að ég hef þá trú að sem allra flestir eigi að taka þátt í einhvers lags samfélagslegri vinnu. Það er svo mikill lærdómur í því að taka þátt í félags­málum og því að skilja hvernig hlutirnir virka. Að vinna að því að koma góðum málum áfram og sjá mikilvæg samfélagsleg verkefni verða að veruleika er mjög gefandi. Samfélagið er mannanna verk og við ráðum því hvernig samfélagið okkar er,“ segir Ásta Arnbjörg Péturs­dóttir, oddviti K-listans í Eyja­fjarðar­sveit.

Hvers vegna K-listinn? „Það var hópur af frábæru fólki sem fór af stað á sínum tíma og stofnaði K-listann og þegar ég var beðin um að leiða listann þá þurfti ég lítið að hugsa mig um því áhuginn á pólitík er mikill hjá mér og þegar unnið er með frábæru fólki, sem kemur úr ólíkum áttum og með marg­vísleg sjónarmið, þá verður til kraftur og hugmyndir sem gaman er að vinna að og gera gott samfélag enn betra ef þær ná fram að ganga.“

Við verðum að hlusta á vilja íbú­anna.

Hvaða máli skiptir Ástu að vera komin í sveitar­stjórn?  „Það skiptir mig miklu máli að vera í sveitar­stjórn því ég hef skoðanir á málefnum sveitar­félagsins og vil vinna að þeim en styrk­leikar mínir liggja líka í því að ég kann vel að hlusta á fólk og það er eitt af því sem stundum vantar í pólitík. Ég lít svo á að þeir sem taka að sér setu í sveitar­stjórn séu að sinna einhvers konar þjónustu­starfi við íbúana; við verðum að hlusta á vilja íbúanna og leggja metnað okkar í að vinna að málum með þeim eins og nokkur kostur er. Ég verð að segja að mér leiðist sú leið sem er svo oft farin sem er að þeir sem eru í pólitík kunni allt og viti allt og æði áfram með lokuð eyrun. Ég held að við getum gert svo margt á svo miklu betri hátt.

Í Eyja­fjarðar­sveit er mikil uppbygging og mörg mikilvæg verkefni fram undan og verður viðbygging við skólann eitt af stóru verkefnum næstu ára og einnig er mikilvægt að hitaveita komi víðar í sveitar­félagið. Þá vil ég líka að öll þjónusta við íbúana sé til fyrir­myndar og í takt við tíðar­andann í þeim málum þarf sveitar­félagið að gera enn betur.“

Langoftast skemmtilegt ferðalag

Ásta ólst upp á Hrana­stöðum í Eyja­fjarðar­sveit næst yngst fjögurra systra. „Þetta var þriggja kynslóða heimili því föðuramma mín bjó hjá okkur sem ég kunni vel að meta. Æskuárin voru góð; að alast upp í sveit og fá að brasa með fólkinu átti vel við mig. Ég á systur sem er tæplega ári eldri en ég og höfum við alltaf verið nánar svo aldrei vantaði félags­skapinn og brösuðum við mikið saman. Mér þótti alltaf gaman í skóla og naut þess að hitta vinkonur mínar þar og þótti mér frímínútur klárlega skemmtilegastar enda gekk mér erfiðlega í lestri til að byrja með en það kom allt saman og hef ég notið þess að læra síðan; ég vil alltaf vera að bæta við þekkingu mína. Það að hafa þurft að hafa mikið fyrir lestrinum var mér aldrei svo þungbært eins og ég heyri marga lýsa því og tel ég það vera vegna þess hversu styðjandi foreldrar mínir voru. Þau voru svo dugleg að lesa fyrir mig og létu mig aldrei finna að þetta væri eitthvað vandamál heldur einungis verkefni sem þyrfti að finna lausn á og það tókst og á þann hátt efldist þraut­seigjan sem er að ég tel einn að mínum bestu styrk­leikum í dag.

Líf okkar hefur langoft­ast verið skemmti­legt ferða­lag.

Ég varð ung ástfangin og trúlofaði mig þegar ég var aðeins sautján ára gömul, en hef aldrei séð eftir því. Við erum hjón í dag og höfum fengið að þroskast saman og líf okkar hefur langoftast verið skemmtilegt ferðalag, en erfið­leikana höfum við þá tekist á saman og út úr því kemur alltaf einhver lærdómur. Við eigum þrjú uppkomin börn sem öll eru að mennta sig og koma undir sig fótunum. Það er eitt af þessu fallega í lífinu að sjá börnin sín vaxa og dafna.“

Fjölskyldur eru alls konar

Ásta er bóndi og fjölskyldu­fræðingur

„Ég hef gaman af námi enda menntað mig í ýmsu. Við hjónin fórum saman í Bænda­skólann á Hvanneyri og ákváðum svo 2001 að kaupa Hrana­staði af foreldrum mínum og höfum því verið við búskap í rúm 20 ár. Það að vera bóndi er skemmtilegt starf. Við erum með um 120 kýr í tveggja róbóta fjósi og svo höfum við síðan 2018 verið að byggja upp hænsnabú. Við höfum alltaf lagt áherslu á að byggja upp og stækka og þróa búskapinn. Til að vera í búskap þarf að vera brennandi áhugi því dýrin þurfa alltaf sitt sama hvaða dagur er og því er bindingin mikil og nauðsynlegt að hafa gott starfs­fólk til að geta litið upp. Ég hef valið mér að vera að hluta til í búskapnum og sinnt fjölskyldu­ráðgjöf að hluta eftir að ég lauk námi í fjölskyldu­fræðum frá Háskóla Íslands árið 2013. Það er krefjandi en jafnframt mjög gefandi að sinna fjölskyldu­ráðgjöf. Fjöl­skyldur eru alls konar en eiga það allar sameiginlegt að stundum koma upp mál sem þeim þykir erfitt að finna lausn á og þá er gott að fá fagaðila til að horfa á málið með þeim og sjá það úr ólíkum áttum og aðstoða fjöl­skylduna við að prófa nýjar leiðir. Það er styrk­leiki fjölskyldu­fræðinnar að horfa á málin á heild­rænan hátt en ekki út frá einstaklingnum.“

Hvernig er líf bóndans þegar bústörfum og stjórn­málum sleppir?

„Lífið er meira en vinna og snúa mín áhugamál að útivist og hreyfingu. Við hjónin göngum mikið og síðustu ár höfum við farið í lengir og styttri göngu­ferðir í góðum félags­skap. Ég hef líka mjög gaman af ferða­lögum og reyni að komast á framandi slóðir reglulega til að sjá eitthvað nýtt og upplifa aðra menningu en við þekkjum.“

Það er erfitt að missa fólkið sitt og hefur mikil áhrif á mann en um leið lærir maður að meta lífið og að það er alls ekki sjálf­sagt.

Hver er erfiðasta lífs­reynsla sem Ásta hefur gengið í gegnum?

„Erfiðasta lífs­reynsla sem ég hef lent í var þegar ungur frændi minn dó í slysi aðeins 12 ára gamall. Hann hafði verið að brasa í sveitinni hjá okkur og var á heimleið á hjóli þegar slysið varð. Við kvöddumst hress og kát og hann sagði „sjáumst á morgun“ en það varð aldrei. Einnig misstum við pabba alltof ungan frá okkur en hann var aðeins 54 ára þegar hann lést. Það er erfitt að missa fólkið sitt og hefur mikil áhrif á mann en um leið lærir maður að meta lífið og að það er alls ekki sjálfsagt. Það kennir manni að verja tíma sínum í eitthvað gefandi og taka ekki þátt í einhverjum leiðindum sem maður þarf bara alls ekkert að stíga inn í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

„Blessuð sé minning þeirra þriggja manna sem snéru þaðan liðnir.“
Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá