Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair: Lykilatriði að missa ekki sjónar á því sem við gerum best

Bogi Nils Bogason
Bogi Nils Bogason

Icelandair er 85 ára.

„Við fögnuðum á föstu­daginn með starfs­fólki okkar á öllum starfs­stöðvum, bæði hér heima og erlendis, og svo að sjálfsögðu með viðskipta­vinum okkar. Allir farþegar sem flugu með félaginu á afmælis­daginn fengu 1937 vildar­punkta að gjöf,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

„Við þessi tímamót er gaman að rifja upp söguna á sama tíma og við horfum fram á veginn. Við höfum haldið merkjum Íslands á lofti um allan heim í áratugi en félagið á rætur sínar að rekja til stofnunar Flug­félags Akureyrar þann 3. júní 1937. Nafni félagsins var síðar breytt í Flugfélag Íslands sem seinna sameinaðist öðru mögnuðu flug­félagi sem var stofnað hér á landi árið 1944, Loft­leiðum. Það voru miklir frumkvöðlar í farar­broddi á fyrstu dögum og árum flugsins og það má segja að þessi mikla ástríða fyrir fluginu, kraftur og frumkvöðla­andi hafi einkennt félagið æ síðan og gerir enn.

Með þessu höfum við lagt mikið af mörkum til íslensks sam­fé­lags og efna­hags.

Svo hófst mikið tímabil uppbyggingar þar sem leiða­kerfi okkar milli Evrópu og Norður-Ameríku með Ísland sem heimahöfn var fest í sessi. Það er hjartað í starfsemi okkar og grund­völlur öflugra tenginga til, frá, um og innan Íslands. Það er jafnframt forsenda þess að við gátum byggt upp öfluga ferða­þjónustu hér á landi allan ársins hring. Þar vorum við í farar­broddi og fjár­festum bæði í innviðum og nýsköpun sem og byggðum upp hágæða hótel um allt land. Með þessu höfum við lagt mikið af mörkum til íslensks samfélags og efnahags. Við erum á fleygi­ferð inn í fram­tíðina og ætlum svo sannarlega að láta til okkar taka í framtíðar­þróun flugsins næstu 85 árin.“

Fagna allri samkeppni

Samkeppnin er mikil og starfar Icelandair í miklu samkeppnis­umhverfi.

„Hingað til Íslands fljúga um 25 flugfélög yfir sumar­tímann og um 15 yfir vetrar­tímann. Þá erum við í samkeppni við helstu flugfélög á Vestur­löndum í flugi yfir Atlantshafið milli Evrópu og Norður-Ameríku. Við fögnum að sjálfsögðu allri samkeppni hvort sem hún er innlend eða alþjóðleg. Lykil­atriðið er að missa ekki sjónar á því sem við gerum best og einblína á að standa okkur gagnvart viðskipta­vinum okkar og veita fram­úrskarandi þjónustu.“

Heims­faraldurinn hafið mikil áhrif á mörg fyrirtæki og þar á meðal Icelandair.

Far­þega­fjöld­inn snar­minnk­aði á skömmum tíma.

„Þær samkomu- og ferða­takmarkanir sem settar voru á í flestum löndum heimsins höfðu auðvitað mjög mikil áhrif á öll flugfélög. Farþega­fjöldinn snar­minnkaði á skömmum tíma og við héldum einungis út lágmarks­starfsemi til að tryggja tengingu landsins við umheiminn. Þess má þó geta að eftir­spurn eftir vöru­flutningum var alltaf mikil og við fluttum meðal annars lækninga­vörur til Íslands og annarra landa. Við höfum gengið í gegnum ýmislegt á þessum 85 árum sem félagið hefur verið starfandi, bæði mikinn uppgang en einnig niður­sveiflur. Hins vegar hefur það verið þannig í sögulegu samhengi að flugið hefur alltaf náð sér á strik á ný eftir tíma­bundnar niður­sveiflur. Nú erum við í mikilli sókn og þannig hefur flug­framboðið okkar aukist jafnt og þétt frá síðasta sumri. Við fljúgum til 44 áfanga­staða í Evrópu og Norður Ameríku í sumar auk áfanga­staða okkar hér innanlands. Þá höfum við þétt raðirnar á ný í takt við aukin umsvif og ráðið inn 1.200 starfs­menn á undan­förnum mánuðum og erum við þá 3.600 talsins. Það hefur verið mjög ánægjulegt að taka aftur á móti samstarfs­fólki okkar til starfa og einnig nýju fólki sem við hlökkum til að starfa með.“

Aukin sjálfbærni

Hver eru sóknar­færi Icelandair – tækifæri – en líka hindranir?

„Við sjáum mikil tækifæri í leiða­kerfi félagsins sem er kjarninn í starfsemi okkar. Það gerir okkur kleift að bjóða öflugar tengingar til, frá, um og innan Íslands. Þá sjáum við einnig mikil tækifæri í frakt­flutningum en það er einnig mikil­vægur hluti af starfsemi okkar; til dæmis að flytja ferskan fisk hratt og örugglega á fjöl­breytta markaði beggja vegna Atlantshafsins. Við erum sveigjanleg og tökum ákvarðanir hratt og getum þannig gripið tækifæri sem gefast í því síbreytilega umhverfi sem við störfum í. Það er jafnframt áskorun að starfa í slíku umhverfi þar sem ýmsir utan­aðkomandi þættir og oft óviðbúnir geta haft áhrif á starfsemi okkar svo sem veðurfar, heims­faraldur eins og við höfum nýlega gengið í gegnum og svo til dæmis hækkun eldsneytis­verðs sem við stöndum frammi fyrir í dag. Þess vegna er sveigjanleikinn svo mikil­vægur og að vera ávallt á tánum.

Ný tæki­færi fyrir Ísland sem mið­stöð umhverf­is­væns flugs á Norður-Atl­ants­hafi.

Til viðbótar þá tel ég að mikil sóknar­færi felist í því að vinna að aukinni sjálfbærni í flugi. Við höfum sett okkur metnaðar­full markmið á þessu sviði og erum þegar að taka mikilvæg skref í þá átt til dæmis með endurnýjun flotans hjá okkur í sparneytnari og þar með umhverfis­vænni vélar. Þetta er spennandi vegferð og við trúum því að með orku­skiptum í flugi skapist ný tækifæri fyrir Ísland sem miðstöð umhverfis­væns flugs á Norður-Atlantshafi.“

Mikil ferðatíðni

Icelandair flýgur í sumar til 44 áfanga­staða, 30 í Evrópu og 14 í Norður-Ameríku. „Við höfum hafið flug á ný til fjölmargra áfanga­staða sem voru í dvala í heims­faraldrinum en einnig kynnum við til sögunnar þrjá nýja áfanga­staði, Raleigh-Durham í Norður-Karólínu, Róm og Nice. Við hófum flug til Raleigh-Durham í maí en Róm og Nice bætast við leiða­kerfið í júlí. Þetta eru spennandi áfanga­staðir og viðtökur hafa verið mjög góðar. Það er sérlega mikil spenna í kringum Raleigh-Durham en fyrir eru litlar tengingar frá Norður-Karólínu til Evrópu og hefur þessi nýja flugleið því einfaldað ferðalag fjölda íbúa svæðisins bæði til Íslands og áfram til 25 áfanga­staða okkar í Evrópu. Við erum jafnframt að bjóða upp á mjög mikla ferða­tíðni á helstu áfanga­staði okkar. Þar má nefna allt að fimm flug á dag til Kaupmanna­hafnar, þrjú flug á dag til Boston, New York og Parísar og tvö á dag til London, Óslóar, Stokk­hólms og Amsterdam. Þannig bjóðum við viðskipta­vinum okkar mikinn sveigjanleika í ferðatíma innan dagsins til þessara vinsælu áfanga­staða.“

85 ára félagið er að lang­stærstum hluta í eigu íslenskra aðila eða ríflega 80%. „Stærsti erlendi hluthafi félagsins er Bain Capital sem fer með tæplega 15% hlut í félaginu. Innkoma þeirra fyrir ári síðan var mjög mikilvæg en hún jók fjárhagslegt bolmagn félagsins á krefjandi tímum á flug­mörkuðum. Þá er mikill akkur í því að fá inn erlenda fjárfesta sem hafa mikla þekkingu á viðfangs­efninu eins og í tilfelli Bain Capital sem sérhæfir sig meðal annars í fjár­festingum í flugi og ferða­þjónustu og koma því með mikilvæga reynslu og þekkingu að borðinu.“

Skotland í uppáhaldi

Bogi Nils hóf störf hjá Icelandair sem framkvæmda­stjóri fjármála árið 2008 og tók svo við starfi forstjóra í ágúst 2018. „Það sem ég hef haft að leiðar­ljósi í gegnum störf mín er að þetta snýst allt um fólk. Án frábærs starfs­fólks og viðskipta­vina væri lítið um að vera hjá Icelandair. Áherslur mínar felast því í því að velja rétta teymið með mér og treysta því til góðra verka. Og það sem stendur upp úr er fólkið sem ég hef starfað með. Icelandair-andinn er einstakur og fólk tilbúið að leggja mikið á sig til að finna lausnir í öllum málum, fyrst og fremst til að stuðla að ánægju­legu og þægilegu ferðalagi fyrir viðskipta­vini okkar.“

Áður en Bogi Nils hóf störf hjá Icelandair starfaði hann sem framkvæmda­stjóri fjármála hjá Askar Capital frá árinu 2007 og framkvæmda­stjóri fjármála hjá Icelandic Group frá 2004 til 2006. „Fyrir þann tíma var ég meðeigandi og endur­skoðandi hjá KPMG frá 1993 til ársins 2004. Ég er viðskipta­fræðingur að mennt frá Háskóla Ísland og löggiltur endur­skoðandi.“

Þá nota ég frí­stundir mínar tals­vert í að spila golf.

Hver er uppáhalds­staður forstjóra Icelandair erlendis?

„Ég segi alltaf að minn uppáhalds áfanga­staður sé sá staður sem ég er hverju sinni. Ef ég ætti að nefna tiltekinn stað þá nota ég frístundir mínar talsvert í að spila golf og er svo heppinn að konan mín hefur mjög gaman af því líka. Skotland er í miklu uppáhaldi hjá okkur enda frábær áfanga­staður fyrir kylfinga. Þó veðrið geti verið upp og niður þá er golf­menningin svo skemmtileg þar og golf­vellirnir frábærir.“

Þá verða vandamálin léttvæg

Bogi Nils segist eiga frábæra foreldra sem hafi verið miklar fyrir­myndir og hvatt hann áfram.

Hef alltaf unnið mikið, kannski allt of mikið.

„Ég byrjaði ungur að vinna í fiski og fleiru á Eskifirði og hef alltaf unnið mikið, kannski allt of mikið, þannig að vinnan hefur mótað mig talsvert. Í gegnum tíðina hef ég kynnst mörgum í gegnum nám, störf og áhugamál. Maður reynir að tileinka sér það jákvæða sem maður sér í fari annarra og finnst til eftir­breytni og líka að forðast það neikvæða. Ég á jafnframt frábæra fjöl­skyldu og konan mín, Björk Unnars­dóttir, er hjúkrunar­fræðingur og hefur lengi starfað við umönnun fólks sem glímir við krabba­mein. Þegar maður hugsar um hvað skjólstæðingar hennar eru að fást við þá verða vanda­málin og verkefnin sem ég er að fást við í vinnunni mjög léttvæg. Það er því mjög mikilvægt að setja hlutina reglulega í samhengi og reyna að átta sig á hvað skiptir máli í lífinu.“ Hjónin eiga þrjú börn.

Hvað með áhugamál forstjórans? „Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á íþróttum og lék til dæmis knatt­spyrnu með Austra Eskifirði og hef stundað skíði og golf frá því ég var barn. Þá er ég með fjölmörg áhugamál fyrir utan íþróttirnar en allt snýst þetta um tíma.“

Jú, hann er forstjóri Icelandair sem flytur fólk á milli landa og heimsálfa. Sér hann heiminn með öðrum augum en ella þar sem hann er í starfi hjá félagi sem tengir lönd heimsins?

„Ég sé að minnsta kosti mjög vel hversu mikil­vægar þær tengingar sem við stuðlum að eru fyrir Ísland, bæði hvað varðar farþega- og frakt­flutninga. Það er í raun ótrúlegt hversu sterkt leiða­kerfi Icelandair er hafandi í huga hversu heima­markaðurinn er lítill. Fjöldi áfanga­staða og tíðni er eins og um milljóna markað væri að ræða. Svona öflugar tengingar eru mjög mikil vítamíns­sprauta fyrir viðskipta­lífið og hagkerfið í heild sinni svo ekki sé minnst á menningarleg samskipti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá