Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Helga stígur fram í kjölfar dóms Gísla: „Ótrúlega mikilvægt að fá viðurkenningu á því sem gerðist“

Gísli Hauksson
Gísli Hauksson

Gísli Hauksson, einn stofnenda sjóð­stýringa­félagsins GAMMA, var í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðs­bundið fangelsi fyrir brot gegn fyrr­verandi sambýlis­konu sinni, Helgu Kristínu Auðuns­dóttur, lektor við Háskólann á Bifröst. Gísla var auk þess gert að greiða henni hálfa milljón króna í miska­bætur sem og allan sakar­kostnað. Málið var tekið fyrir í Héraðs­dómi Reykja­víkur.

Helga Kristín steig fram opinber­lega í fyrsta sinn í dag eftir að dómurinn var kveðinn upp. Í færslu á Facebook-síðu sinni segir hún frá því ofbeldi sem Gísli beitti hana á heimili þeirra árið 2020. Hann var ákærður fyrir að hafa ítrekað tekið hana kverka­taki, skellt henni utan í vegg og gripið um háls hennar svo hún átti erfitt með að ná andanum.

Fór í Kvennaathvarfið um nóttina

„Það var í maí fyrir tveimur árum sem ráðist var á mig á heimili mínu og ég flúði berfætt með svefnpoka sem ég greip með mér,“ segir Helga Kristín í færslunni. Hún segist aldrei hefðu trúað því að hún myndi upplifa svo mikla ógn og ofbeldi á heimili sínu, af hálfu manneskju sem hún treysti. „En í dag veit ég að þolandi hefur enga stjórn á ákvörðun annarra um að beita ofbeldi.“

Helga Kristín er sögð hafa reynt að komast undan Gísla en hann hafi þá farið á eftir henni, gripið um handleggi hennar og fleygt henni á rúm. Hún hlaut þónokkra áverka við árásina. Hún tognaði, hlaut ofreynslu á brjóst­hrygg og hálshrygg, auk tölu­verðra yfirborðsáverka á upphandlegg, öxl og hálsi.

„Sömu nótt hringdi ég í Kvenna­athvarfið og bað nánast um númeraðan lista yfir atriði sem ég yrði að gera til að tryggja að ég færi aldrei aftur þarna inn á heimilið. Ég fór að þeirra ráðum í einu og öllu sem gaf mér svo mikil­vægar bjargir vikurnar á eftir. Þakklæti til þeirra verður alltaf til staðar,“ segir hún í færslunni.

Hún segir starfs­menn Kvenna­athvarfsins hafa ráðlagt henni að fara á bráða­móttöku þá um nóttina vegna alvarleika áverkanna. Þangað fór hún og fékk stað­festingu.

„Það var mér ótrúlega mikilvægt að fá viðurkenningu á því sem gerðist og viðurkenningu á að ég var beitt ofbeldi. Líkamlegt ofbeldi skilur eftir merki og hefur áhrif á líðan í langan tíma. Það er því gaslýsing á hæsta stigi þegar gerandi ítrekað neitar sök. Í tvö heil ár. Að hann neitaði sök í allan þennan tíma gerði líðanina á þessum tíma margfalt verri.“

Kæruferlið gerði ofbeldisupplifunina verri

Helga Kristín segist hafa ákveðið að kæra ofbeldið daginn sem henni fannst hún geta dregið andann ofan í lungu og brost með augunum. Hún segir ferlið sem tók við hafa verið afar erfitt. „Kæru­ferlið er með því erfiðasta sem ég hef upplifað og á margan hátt upplifði ég eins og kæru­ferlið hjá lögreglu hafi gert ofbeldis­upplifunina verri.“

Hún segist þakklát þeim konum sem börðust á undan henni fyrir því að skila skömminni. Hún segir það þeim að þakka að hún finni ekki fyrir skömm í dag.

„En mig langar ekki að dvelja í því að þetta var lífreynsla sem ég bað ekki um og óska engum. Orkuna sem fór í að brotna ekki hefði ég svo gjarnan viljað nýta í eitthvað annað,“ segir Helga Kristín.

Játaði loks brotið

Brot af þessu tagi varðar allt að sex ára fangelsi og krafðist Helga Kristín miskabóta upp á þrjár milljónir króna. Dómurinn verður því að teljast afar vægur með tilliti til þessa, en saksóknari í málinu lagði til 60 daga skilorð til refsingar eftir að Gísli játaði brotið fyrir héraðs­dómi fyrir viku síðan. Játningin var talin til mildunar dómsins.

„Í dag lýkur þessu ferli,“ segir Helga Kristín í færslu sinni. „Í dag var gerandinn sakfelldur eftir að hafa loksins játað brotið. Dómstóll hefur viðurkennt ofbeldið sem átti sér stað bakvið luktar dyr í maí 2020. Einu og hálfu ári frá kæru. Tveimur árum frá árás. Léttirinn við að þessu er lokið er ólýsanlegur. Það er bjart framundan enda á ég góða að,“ segir hún að lokum.

Gísli starfaði sem forstjóri GAMMA og stýrði uppbyggingu félagsins í bæði New York og London. Hann sagði skilið við fyrir­tækið árið 2018. Hann gegndi trúnaðar­störfum fyrir Sjálfstæðis­flokkinn um árabil, sat til að mynda í miðstjórn og var formaður fjármála­ráðs á tímabili. Eins og Mannlíf greindi frá voru öll ummerki um störf Gísla fyrir Sjálfstæðis­flokkinn horfin stuttu eftir að greint var frá ákærunni í fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur