Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Stakk manninn líklega með skrúfjárni við Ingólfstorg

Tveir ungir menn hafa verið ákærðir vegna alvarlegrar árásar sem átti sér stað fyrir utan skemmtistað við Ingólfs­torg aðfara­nótt 5. mars síðastliðins. RÚV greinir frá þessu.

Mennirnir tveir réðust á þriðja manninn og eru taldir hafa stungið hann margsinnis í líkamann, að öllum líkindum með skrúf­járni.

Annar mannanna, sá sem mundaði vopnið, er ákærður fyrir tilraun til manndráps en hinn fyrir líkams­árás, með því að kýla manninn ítrekað.

Hinir ákærðu eru 22 og 23 ára, en fórnar­lambið er sömuleiðis ungur maður. Líkt og segir í ákærunni hlaut hann umtals­verða áverka vegna árásarinnar. Bæði lungu hans féllu saman og hann hlaut ótal sár og áverka á líkama og höfði.

Árásin náðist á myndband og fór í dreifingu um samfélags­miðla dagana á eftir.

Ákæra á hendur mönnunum tveimur var þingfest í Héraðs­dómi Reykja­víkur í morgun. Sá sem ákærður er fyrir líkams­árás neitaði sök fyrir dómi. Hinn, sá sem beitti vopninu og er ákærður fyrir manndrápstilraun, tók ekki afstöðu til sakar­efnis vegna forfalla verjanda síns. Hann mun þó gera það við fyrirtöku á fimmtudag.

Fórnar­lambið krefur manninn sem ákærður er fyrir að hafa stungið hann um rúmar 4,1 milljón króna í bætur og hinn manninn um 900 þúsund krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Beint úr Breiðholtinu
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá