Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kvikmyndin Volaða land helsta uppgötvun 2022 – Ekki langt í Gullpálmann sjálfan

Leikarahópurinn á Cannes kvikmyndahátíðinni. Mynd/skjáskot. Kvikmyndastöðin
Leik­ara­hóp­ur­inn á Cannes kvik­mynda­há­tíð­inni. Mynd/skjá­skot. Kvik­mynda­stöðin

Kvik­myndin Volaða land, leikstýrð af Hlyni Pálmasyni var heims­frumsýnd á miðvikudags­kvöld og hlaut mjög góðar móttökur áhorfenda á kvikmynda­hátíðinni í Cannes, Frakk­landi.  Aðstand­endur myndarinnar, leik­stjóri, leikarar og fram­leiðendur, fengu mikið lof. Að sögn Antons Mána Svans­sonar, fram­leiðanda myndarinnar, hafa viðtökur áhorfenda verið ótrúlegar og gagn­rýnendur hlaðið hana lofi. Anton segir að fáar myndir hafi hlotið eins góðar viðtökur á hátíðinni í ár og margir nefni hana sem helstu uppgötvun ársins 2022.

Ekki langt í Gullpálmann sjálfan

Cineuropa birtir gagnrýni Fabien Lemercier, sem segir að þess sé ekki langt að bíða að Hlynur keppi um aðal­verðlaun Cannes-hátíðarinnar, sjálfan Gull­pálmann, Palme d’Or.

Volaða land er stórkostlegt, epískt ferðalag sem kafar djúpt í efniviðinn og gengur nærri persónum, sem og áhorf­endum, segir Lemercier. Kvik­myndatöku Mariu von Hausswolff er jafnframt hrósað í dómi Cineuropa.

Í kvöld kemur í ljós hvort Volaða landi tekst að vinna hug og hjörtu dómnefndarinnar í flokknum Un Certain Regard, þegar verð­launin verða veitt. Kvikmyndhátiðinni lýkur með loka­athöfn á sunnudags­kvöld, þegar tilkynnt verður um vinnings­hafa Gull­pálmans 2022.

Myndin keppir í flokknum Un Certain Regard sem beinir athyglinni að nýjum kvik­myndum þar sem frumleiki og hugrekki einkenna verk leik­stjóra.

Lífshættuleg hestaferð um harðneskjulega eyju

Volaða land fjallar um Lucas, ungan danskan prest, leikinn af Elliott Crosset Hove. Hann siglir til Íslands undir lok 19. aldar, en tilgangur með ferðinni er að reisa kirkju og ljósmynda íbúa þessarar þáverandi dönsku nýlendu.

Hann heldur í lífs­hættulega hestaferð með hópi heima­manna um harðneskjulegt landið, leidda af sérvitrum leið­sögumanni, sem leikinn er af Ingvari E. Sigurðs­syni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá