Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Lögreglan kannast ekki við frásögn af handtöku Brians – Sofandi aðili handtekinn í Austurbænum

Mynd úr safni Mynd/Lára Garðarsdóttir.
Mynd úr safni Mynd/Lára Garð­ars­dóttir.

Aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu þjónn lög­regl­unnar á Hverf­is­götu kann­ast ekki við að það mál sem lýst er í frétt Mannlífs og fleiri miðla, um mann frá Kenía sem hand­tek­inn var á aðfanga­dag.

Mannlíf sagði frá frá­sögn Þórunnar Helga­dóttur af því hvernig stjúp­sonur hennar Brian, sem er frá Kenía, hafi verið hand­tek­inn þar sem hann gekk í átt að Hlemmi eftir vinnu­dag í Vesturbæ Reykja­víkur, þar sem hann hafði ekki verið með skil­ríki. Vildi hún meina að ástæðan á þessu væri sú að hann væri svartur á hör­und. Í dag birti Þórunn þó leið­rétt­ingu þar sem hún árétt­aði að Brian hafi ekki verið á gangi er hann var hand­tek­inn, heldur hafi hann lagt sig í bíl vinar síns á leið úr vinnu.

Sjá einnig: Brian var hand­tek­inn á aðfanga­dags­kvöld að ósekju: „Þau þurftu að vita það af því hann er svartur“

Mannlíf heyrði í Ásmundi Rúnari Gylfa­syni, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn og stöðv­ar­stjóri á Hlemmi, en hann kann­að­ist ekki við frá­sögn­ina en sagð­ist ekki geta tjáð sig um ein­stök mál. Benti hann þó á yfir­lýs­ingu lög­regl­unnar frá aðfanga­dag um ákveðið mál. „Ég vil byrja á að segja að við getum ekki tjáð okkur um ein­staka mál sem eru í umfjöllun en ég get hins vegar sagt að lög­reglan kann­ast ekki við að mál hafi komið upp hjá lög­regl­unni sem passar við þá lýs­ingu sem ég sá alla­vega á Vísi í morgun.“

Ásmundur Rúnar sagð­ist þó geta vísað í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni sem birt­ist á aðfanga­dag. „Þar sem kom fram að það væri aðili sem vistaður væri í fanga­geymslu vegna þess að hann var ekki með skil­ríki til þess að fram­vísa og gat ekki gefið upp per­sónu­upp­lýs­ingar og var ósam­vinnu­þýður. Og það kom einnig fram í til­kynn­ing­unni að lög­reglan hafi leitað allra leiða sem mögu­legar voru til að koma í veg fyrir að það þyrfti að vista ein­stak­ling­inn í fanga­klefa á aðfanga­dag. En því miður gekk það ekki upp en sá aðili, í því máli, það er þannig að það kemur til­kynn­ing til lög­reglu um aðila sem er sof­andi undir stýri á bif­reið í Aust­ur­borg­inni. Lög­reglan fer á stað­inn, hefur afskipti af þeim aðila. Hann gat ekki fram­vísað per­sónu­skil­ríkjum eins og fram kom í frétta­til­kynn­ing­unni, hann var ekki sam­vinnu­þýður við lög­reglu og þar af leið­andi fluttur á lög­reglu­stöð, hand­tek­inn. Og úr varð að það þurfti að vista hann til skammst tíma á meðan það var verið að finna út úr hans málum.“

Aðspurður hvort um væri að ræða mál Brians, sagð­ist Ásmundur ekki geta tjáð sig um það. „En þetta mál sem ég er að tala um er eina málið sem varð­aði aðila sem ekki gat fram­vísað per­sónu­skil­ríkjum. Og öll sam­skipti í því máli eru til í upp­tökum hjá lög­regl­unni og ef fólk er ósátt við vinnu­brögð lög­reglu getur það snúið sér til nefndar um eft­ir­lit með störfum lög­reglu, NEL.“

Að lokum sagð­ist Ásmundur vísa brigsl um kyn­þátta­hatur innan lög­regl­unnar á bug. „Ég vísa því bara algjör­lega á bug.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum