Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Skipstjóri dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að sigla á sker – Sagði siglingatölvu hafa bilað

Við Papey.
Við Papey. Mynd: Shadowgate á flicr.com

Skip­stjóri á 30 tonna fiskiskipi var dæmdur í Héraðs­dómi Austur­lands, í 30 daga skilorðs­bundið fangelsi fyrir yfirsjón og vanrækslu er hann sigldi bátnum á svonefnt Flyðru­sker, skammt austan við Papey.

Atvikið átti sér stað í október 2020 er skipið var á leið frá Söðvarfirði á leið á miðin úti fyrir Horna­firði. Við áreksturinn kom stærðar gat á stefni bátsins og þurfti að draga hann til hafnar á Djúpavogi. Aukreitis var skip­stjórinn dæmdur fyrir að skrá tvo skipverja ekki í skiprúm áður en haldið var á miðin.

Varðar slíkt við ákvæði siglingar­laga sem segir:

„Hafi skip­stjóri, stýri­maður eða vélstjóri orðið valdur að skip­strandi, árekstri eða öðru sjóslysi með yfir­sjónum eða vanrækslu í starfi sínu varðar það sektum eða fangelsi allt að fjórum árum.“

Sér til málsbóta hafði skip­stjórinn að bilun hefði orðið í siglinga­tölvu og skjámynd frosið. Þrátt fyrir það þótti dómurinn að hann hefði átt að taka eftir þeirri bilun og hafa sérstaka aðgát á þessum slóðum. Ekki þarf skip­stjórinn að sitja inni fyrir brot sitt haldi hann skilorði næstu tvö árin en honum er gert að greiða sakar­kostnað sem eru rúmar tvær milljónir króna.

Rúv sagði frá málinu í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá