Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Kynfæri hrossa skorin: „Það er eins og eggvopni hafi verið smeygt inn í skeiðina og síðan rist út,“

Sumir bændur eru með hesta – Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Sumir bændur eru með hesta – Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint.

Fyrir rúmum áratug leitaði lögreglan eftir meintum landlægum dýra­níðingi eftir fjölda tilkynninga um áverka á kynfærum hryssa. Áttu þær það allar sameiginlegt að vera illa særðar á utan­verðum jafnt sem innan­verðum kynfærum. Fyrsta fréttin um málið birtist í maímánuði 2011 þegar eigandi hryssu austur á Héraði tók eftir blæðingu úr skeiðinni. Þegar líða tók á sumarið rötuðu fleiri mál inn á borð lögreglu og fjölmiðla.

Eggvopni smeygt inn í skeiðina

„Það er eins og eggvopni hafi verið smeygt inn í skeiðina og síðan rist út,“ sagði Hjörtur Magnason dýra­læknir í viðtali við Morgun­blaðið, 13. maí 2011.

Þar sagði ennfremur:

„Þetta er mál sem ég hef ekki kynnst hér á Íslandi en maður hefur heyrt um þetta erlendis,“ segir Hjörtur Magnason, dýra­læknir á Egils­stöðum, en þar er komið upp óhugnanlegt dýra­níðsmál. „Það koma fyrir svona dýra­níðsmál oft á sumrin annars staðar á Norður­löndunum. Það fer einhver óþjóða­lýður um og sker í dýr og þá oft í kynfæri þeirra.“

Síðastliðinn sunnudag var Hjörtur kallaður til af Ólafi Guðgeirs­syni, heila- og tauga­skurðlækni, vegna áverka á hryssu sem uppgötvuðust í útreiðartúr. Grunur vaknaði fljótt um að áverkarnir væru tilkomnir af manna­völdum og var málið formlega kært til lögreglu í dag. „Hann var á reiðferð með konu sinni og öðrum hjónum þegar hann tekur eftir blóð­blettum aftan á lærunum á hestinum á undan. Það sást ekki að hryssan sjálf hefði óþægindi af þessu svo hún var bara skoðuð þegar komið var heim í hesthús. Þá sá hann blæðingu úr skeiðinni og blæðingin hafði þá sullast á innri hluta taglsins og út af óþægindum hafði hesturinn sveiflað taglinu og litað þannig aftur­hlutann á lærunum,“ segir Hjörtur.

tima­rit.is/Skjáskot af frétt Morg­un­blaðs­ins

Síðar sama ár barst lögreglu tilkynning frá Sigurþóri Gíslasyni, bónda á Meðal­felli í Kjós. Hesta­níðingarnir höfðu þrívegis á um það bil mánuði beitt haga­gönguhross hrotta­legu kynferðis­legu ofbeldi.

Í frétt Dagblaðsins Vísis, frá 19. september 2011, er rætt við Sigurþór um atvikið og viðbrögð dýralækna: „Þegar þær fara með þriðju hryssuna á dýra­spítala, þá sem er mest særð, bólgin og skorin, þá segja þeir á dýra­spítalanum að þetta sé eitthvað ankannalegt,“ segir Sigurþór. Parturinn þar sem hestarnir eru í hagagöngu yfir sumarið er ekki nálægt bæjum eða vegum, en það sést í staðinn frá mörgum bæjum í sveitinni. Sigurþór telur líklegt að dýraníðið hafi átt sér stað að næturlagi og að fleiri en einn hafi verið að verki. Menn velti fyrir sér hvernig menn vinni svona verk, en ljóst sé að þægustu hrossin í stóðinu hafi verið valin. Ýmislegt hljóti hins vegar að ganga á með jafnstóra skepnu. „Hún lætur ekki gera svona við sig einn, tveir og tíu án þess að berjast á móti.“

Olli ugg og óöryggi

Lögreglan hvatti hrossa­eigendur til að fylgjast vel með dýrunum sínum, öllum manna­ferðum við beitinga­hólf og halda til haga upplýsingum ökutækja þeirra. Borgarar voru þá hvattir til að hafa tafar­laust samband við lögreglu ef grun­semdir vöknuðu um dýraníð.

Ótti og óöryggi íbúa og hrossa­eigenda greip um sig í Kjós og í sömu frétt frá DV þann 19. september 2011 er Sigurþór spurður hvort einhver liggi undir grun íbúa.

„Nei menn hafa ekki grænan grun. Maður einhvern veginn trúir því aldrei að þetta sé einhver sem maður umgengst eða þekkir enda held ég að þá hefði þetta komið upp fyrr.“ Sigurþór segir að íbúar í Kjós hafi uppi viðbúnað eftir að upp komst um dýraníðið. „Nú eru allir grun­samlegir sem keyra um og nú fylgjast allir með,“ segir hann og tekur fram að nú athugi fólk oftar með hross í hagagöngu. „Menn eru meira á ferðinni, það er ekki hægt að neita því. Ég sé þetta ekki frá mínum bæ en núna vita allir af þessu og þá fara menn að fylgjast með. Sumir vita á hvaða bíl hver er og í hvaða hólfi. Þegar menn fara að sjá grunsamlegar ferðir þá skrifa þeir hjá sér bílnúmer, þótt maður geti ekki farið að ásaka neinn frekar en annan.“ Sigurþór er gagn­rýninn á lögregluna sem vildi ekki taka við myndum af hryssunni eða rannsaka málið. Yfir­dýralæknir hefur hins vegar krafist þess að þetta verði rannsakað. „Ég ætla ekki að segja að lögreglan myndi finna sökudólginn, en ef hún safnar engum upplýsingum þá veit hún ekki neitt. Ef lögreglan myndi þyggja myndirnar sem henni hafa verið boðnar og fara á staðinn og eiga það inni ef þetta skyldi gerast aftur gæti hún hugsanlega rakið það saman. Það minnsta sem lögreglan getur gert er að rannsaka málið, líka fólksins vegna.“

Allt er gott sem endar vel – eða hvað?

Mannlíf leitaði niður­stöðu málalykta þessa hrotta­lega máls og hafði upp á Gunnari Erni Guðmunds­syni þáverandi héraðs­dýralækni í Gull­bringu- og Kjósar­umdæmi.

Aðspurður um sannanir og afdrif málsins svarar hann: „Já, sko ég lenti í þessu í Kjósinni. Það var aldrei sannað að þetta hefði verið skorið af manna­völdum.“

Hann heldur áfram og útskýrir fyrir blaða­manni: „Hryssur hafa rosalega tilhneigingu til þess að klóra sér í rass­gatinu á staurum – og ekkert af litlum krafti. Svo miklum að þær jafnvel brjóta staura. Og þar er oft gaddavír eða eitthvað svipað og ég held að flest þessara slysa hafi verið af þess konar ástæðum. – Og EKKI perri!“

Blaða­maður andar léttar og tjáir Gunnari að honum finnist gleðilegt að geta endað samantekt þessarar gömlu fréttar á jákvæðum nótum. Hann bætir þá við: „Sko, ég skal segja þér alveg satt. Ég fór í nokkur svona tilfelli, á tímabili þar sem þetta var voðalega aktúelt – þá var ég Héraðs­dýralæknir í Reykjavík […] Í öllum tilfellum, nema einu, er ég næstum viss um að þetta voru slys af völdum girðinga eða umhverfis. Gerði eða húsnæði þar sem voru hættur sem gátu boðið upp á þetta. En aldrei var neitt hægt að sanna. En það var eitt tilfelli – aðeins eitt sem var inni í hesthúsi í Kópavogi sem var ekki nokkur leið að finna út hvernig hafði getað gerst. Og það var algjör­lega opið mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá