Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Gunnhildur í Göngum saman: Safna fé til styrktar grunnrannsóknum á krabbameini

Gunnhildur Óskarsdóttir
Gunn­hildur Ósk­ars­dóttir

Laugar­daginn 4. júní verður haldinn styrktar- og göngu­viðburðurinn GÖNGUM SAMAN Í ÞÓRSMÖRK og er markmiðið að ganga hina frábæru gönguleið Þórsgötu og safna um leið áheitum til styrktar grunn­rannsóknum á brjósta­krabba­meini.

„Viðburðurinn Göngum saman í Þórsmörk var haldinn í fyrsta sinn í fyrra,“ segir Gunnhildur Óskars­dóttir, sem er í hópi þeirra sem standa að viðburðinum, en hún greindist með brjósta­krabba­mein á sínum tíma. „Bjarni Freyr hjá Volcano Trails hafði samband við mig einn daginn og spurði hvort við hjá Göngum saman værum til í samstarf. Þetta var svo kærkomið boð sem mér leist strax vel á og stjórn samþykkti strax. Það er skemmst frá því að segja að það var uppselt í ferðina, en alls tóku 300 manns þátt í henni. Einnig var uppselt í gistinguna svo færri komust þar að en vildu, en um mjög fjöl­breytta gistimöguleika er að ræða.

Fjölmargir elska Þórs­mörkina og þarna var kærkomið tækifæri til að fara í Mörkina í góðum félags­skap. Það skipti ekki máli hvort fólk kom einsamalt eða með félaga eða jafnvel allri fjöl­skyldunni; allir nutu sín vel.“

Markmið þess hefur frá upp­hafi verið að styrkja íslenskar grunn­rann­sóknir á eðli og orsökum brjóstakrabba­meins.

Það er vitað að göngur og hreyfing hafa góð áhrif á líkama og sál.

„Göngur hafa svo góð áhrif á líkama og sál og Göngum saman-ævintýrið byrjaði með göngum en félagið á rætur í grasrótar­starfi 22 kvenna sem tóku þátt í Avon-göngu í New York haustið 2007, en þar var gengið eitt og hálft maraþon til fjár­öflunar fyrir rann­sóknir og meðferð á brjósta­krabba­meini. Við heim­komuna var ákveðið að halda göngunni áfram og var félagið stofnað í september 2007. Markmið þess hefur frá upphafi verið að styrkja íslenskar grunn­rannsóknir á eðli og orsökum brjósta­krabba­meins og flýta fyrir bættri meðferð og auknum lífslíkum.“

Fyrir mér hafa göngur verið afar mik­il­vægar þó ég sjálf hafi ekki getað tekið þátt í seinni tíð.

Veita styrki

Gunnhildur greindist með brjósta­krabba­mein árið 1998 sem síðan dreifði sér. „Fyrir mér hafa göngur verið afar mikil­vægar þótt ég sjálf hafi ekki getað tekið þátt í seinni tíð vegna veikinda minna. Ég stýri á bak við tjöldin en við erum með einvalalið í stjórn og nefndum, auk öflugra félaga sem vinna vinnuna og eru alltaf til taks og halda merki félagsins á lofti. Við höfum haldið úti vikulegum göngum í Reykjavík og á Akureyri og fyrstu 10 árin stóðum við fyrir fjáröflunar­göngum á landsvísu og var þá gengið á allt að 16 stöðum á landinu þegar mest lét. Síðan höfum við verið eitt af þeim góðgerða­félögum sem hægt er að hlaupa fyrir og heita á í Reykja­víkur­maraþoninu. Stofnun Göngum saman var mér afar mikils virði og hefur gefið mér mikið. Félags­skapurinn er mjög gefandi og við höfum í gegnum tíðina gert margt skemmtilegt svo sem haldið brjósta­ball í Iðnó, prjónað lopa­brjósta­húfur og haldið skemmtanir og listaverka­uppboð.“

Við höfum veitt styrki fyrir næstum 120 millj­ónir frá upp­hafi.

Gunnhildur hefur verið formaður frá upphafi en félagið verður 15 ára í haust. „Mér þykir mjög vænt um félagið og veit að við erum að vinna gott starf. Það er svo gott að geta lagt góðu málefni lið og gott að geta boðið öðrum að taka þátt.

Við höfum veitt styrki fyrir næstum 120 milljónir frá upphafi. Styrk­þegarnir eru upp til hópa meistara- og doktorsnemar auk annarra rann­sakenda við Háskóla Íslands og Land­spítalann. Grunn­rannsóknir eru langhlaup, þær taka tíma og þolinmæði á rannsóknar­stofum um allan heim. Það þarf að skrifa um þær og kynna þær. Saman eru vísinda­menn um allan heim að vinna að því sama og við erum stolt af því að leggja okkar lóð á vogar­skálarnar ásamt öllum þeim sem styðja okkur til dæmis með þátttöku í Þórsmerkur­göngunni. Fólk er svo þakklátt fyrir að geta lagt sitt af mörkum og nú er tækifærið. Tækifærið var líka mæðradags­vikuna þegar bleikir snúðar voru til sölu í Brauð & co í Reykjavík. Nú fær fólk annað tækifæri og það sem er svo frábært við Þórsmörk að þar er alltaf gott veður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá