Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist

Konan segist hafa komist í samband við lögmenn haustið 2024 eftir að hafa séð auglýsingu á Facebook

Jay-Z og Beyonce
Jay-Z og Beyonce Mynd: CHRIS GRAYTHEN / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / GETTY IMAGES VIA AFP

Kona sem sakaði bandaríska rapparann Jay-Z um nauðgun hefur dregið ásakanir sínar til baka og segir þær rangar. Hún kveðst aldrei hafa hitt tónlistar­manninn og biðst afsökunar á þeim skaða sem ásakanirnar hafi valdið honum og fjöl­skyldu hans.

Konan höfðaði mál undir nafnleynd og hélt því fram að Jay-Z, sem heitir réttu nafni Shawn Carter, og Sean „Diddy“ Combs hefðu nauðgað henni þegar hún var 13 ára. Lögmaðurinn Tony Buzbee lagði málið upphaf­lega fram fyrir hennar hönd í desember 2024.

Í nýjum dóms­gögnum, sem TMZ hefur undir höndum, segir konan að ekkert hæft sé í ásökunum hennar á hendur Carter. Hún tekur jafnframt fram að hún hafi ekki fengið neinar greiðslur eða aðrar fjárhagslegar bætur frá honum eða aðilum sem tengjast honum fyrir að draga ásakanirnar til baka.

Nýr lögmaður konunnar, James Blair Newman Jr., segir hana áfram halda því fram að hún hafi orðið fyrir kynferðis­ofbeldi en að hún hafi haft rangt fyrir sér þegar hún nafn­greindi Carter sem geranda. Hann hafi hvorki nauðgað henni né beitt hana kynferðis­ofbeldi og þau hafi aldrei hist.

Konan segist hafa komist í samband við lögmenn haustið 2024 eftir að hafa séð auglýsingu á Facebook þar sem leitað var að fólki sem kynni að eiga kröfur vegna kynferðis­ofbeldis gegn Combs. Auglýsingin hafi vakið upp minningar hennar um meint ofbeldi þegar hún var 13 ára.

Jay-Z hefur frá upphafi alfarið hafnað ásökununum. Árið 2025 höfðaði hann mál gegn Buzbee, lögmanns­stofu hans og konunni. Hann hefur nú fallið frá mála­rekstri gegn konunni en heldur áfram málsókn sinni gegn Buzbee.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár