Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Nýr sóttvarnalæknir ráðinn

Guðrún Aspelund.
Guðrún Aspelund. Mynd: Embætti landlæknis

Guðrún Aspelund mun taka við starfi sóttvarna­læknis af Þórólfi Guðnasyni frá og með 1. september næst­komandi. Þessu er greint frá á vef land­læknis.

Guðrún starfar sem yfir­læknir á sviði sóttvarna hjá land­læknis­embættinu, hefur embættis­próf í læknis­fræði frá Háskóla Íslands og sérfræði­menntun í almennum skurð­lækningum og barna­skurð­lækningum. Hún var lektor og barna­skurðlæknir við Columbia-háskóla á árunum 2007 til 2017.

„Ég hef öðlast góða sýn á starf sóttvarna­læknis undan­farin ár og sé í starfinu tækifæri til að láta gott af mér leiða. Ég geri mér grein fyrir að starfinu fylgir mikil ábyrgð og ég hlakka til að takast á við verkefnin sem eru framundan,“ segir Guðrún.

Þórólfur Guðnason lætur af störfum sem sóttvarna­læknir í byrjun september, en hann verður 69 ára á þessu ári. Starfið var auglýst 13. maí síðastliðinn með umsóknar­frest til og með 13. júní. Guðrún var sú eina sem sótti um stöðuna.

Á vef Land­læknis kemur fram að ráðning hafi verið ákveðin út frá mati á umsókn og ítarlegu viðtali við umsækjanda. Þau sem önnuðust ráðninguna voru Alma D. Möller, land­læknir, Óskar Reyk­dalsson, forstjóri Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins, Unnur Valdimars­dóttir, prófessor í faralds­fræði við Lækna­deild Háskóla Íslands og Þórgunnur Hjalta­dóttir, sviðs­stjóri hjá embætti land­læknis.

„Ég er mjög ánægð með ráðningu Guðrúnar í starf sóttvarna­læknis. Hún er með góða menntun og reynslu sem mun nýtast en hefur einnig til að bera nauðsyn­lega eigin­leika fyrir krefjandi starf sóttvarna­læknis, m.a. góða samskipta­hæfni, vinnusemi, skipulags­hæfni, sjálf­stæði og yfirvegun,“ segir Alma D. Möller land­læknir um ráðninguna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá