Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Fjölmiðlafár eftir skotárás Brynjars Þórs: Börn hjónanna á Blönduósi biðja um frið til að syrgja

Mynd/samsett
Mynd/sam­sett

„Það er erfiðara en orð fá lýst að ganga í gegn­um það sem við erum að upp­lifa núna. Það er enn þyngra þegar fjöl­miðlar flytja rang­ar og vill­andi frétt­ir af at­vik­um og ganga nærri friðhelgi einka­lífs okk­ar með mynd­birt­ing­um og sí­end­ur­tekn­um hring­ing­um í okk­ur, nán­ustu vini og ætt­ingja,“ skrifa Sandra, Hilmar, Pétur og Karen börn hjónanna sem um helgina urðu fórnar­lömb Brynjars Þórs Guðmunds­sonar bakara sem varð móður barnanna að bana og stór­slasaði föður þeirra. Morðinginn fannst sjálfur látinn á vettvangi. Lögreglan hefur sagt að ekki hafi verið um sjálfsvíg að ræða.

Fjölmiðlafár hefur verið ríkjandi á Blönduósi og hefur verið setið um þá sem eiga aðild að harm­leiknum. Morgun­blaðið sagði frá því í morgun að notuð hefði verið afsöguð hagla­byssa við verknaðinn. Það hefur ekki verið staðfest.

Brynjar Þór hafði áður verið hand­tekinn, vopnaður utan við heimili hjónanna. Hann hefur átt við andlega erfið­leika að stríða og meðal annars verið lagður inn á geðdeild. Brynjar Þór starfaði um tíma hjá Vilkó, fyrirtæki hjónanna. Hann rak seinna bakarí á Blönduósi en sá rekstur endaði illa. Engin skýring hefur komið fram um það hvað liggur að baki illvirkinu.

Börnin segja fjöl­miðla hafa flutt rang­ar og vill­andi frétt­ir af at­vik­um og þeir gangi nærri friðhelgi einka­lífs þeirra með mynd­birt­ing­um og end­ur­tekn­um hring­ing­um í þau, nán­ustu vini og ætt­ingja.

„Þess vegna vilj­um við góðfús­lega biðja fjöl­miðla um að virða friðhelgi einka­lífs okk­ar, fjöl­skyldu og heim­il­is. Við þurf­um frið til þess að tak­ast á við þetta áfall, til að syrgja móður okk­ar og hlúa að föður okk­ar. Því í dag er ekk­ert mik­il­væg­ara en að hann nái heilsu á ný,“ segja börnin.

Yf­ir­lýs­ing­in í heild sinni:

Á sunnu­dag­inn breytt­ist líf okk­ar til fram­búðar og verður aldrei aft­ur eins. Við syrgj­um móður okk­ar og faðir okk­ar er al­var­lega særður á spít­ala. Okk­ur hafa borist hlýj­ar kveðjur og stuðning­ur úr öll­um lands­horn­um. Fyr­ir það erum við þakk­lát.

Það er erfiðara en orð fá lýst að ganga í gegn­um það sem við erum að upp­lifa núna. Það er enn þyngra þegar fjöl­miðlar flytja rang­ar og vill­andi frétt­ir af at­vik­um og ganga nærri friðhelgi einka­lífs okk­ar með mynd­birt­ing­um og sí­end­ur­tekn­um hring­ing­um í okk­ur, nán­ustu vini og ætt­ingja.

Þess vegna vilj­um við góðfús­lega biðja fjöl­miðla um að virða friðhelgi einka­lífs okk­ar, fjöl­skyldu og heim­il­is. Við þurf­um frið til þess að tak­ast á við þetta áfall, til að syrgja móður okk­ar og hlúa að föður okk­ar. Því í dag er ekk­ert mik­il­væg­ara en að hann nái heilsu á ný.

Allt sem við höf­um að segja kem­ur fram hér að ofan. Við mun­um ekki tjá okk­ar frek­ar. Við ít­rek­um að við biðjum fjöl­miðla að virða það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá