Ný vísindagrein byggð á rannsókninni Áfallasögu kvenna birtist á miðvikudaginn. Niðurstöður hennar sýna að nær fjórðungur kvenna á Íslandi glímir við alvarleg svefnvandamál.
Samkvæmt greininni eru alvarleg svefnvandamál algengari meðal kvenna á Norðurslóðum, en annars staðar, sérstaklega á veturna. Þessar niðurstöður hvetja til þróunar á fyrirbyggjandi aðferðum og inngripum fyrir konur sem búa á Norðurslóðum sem þjást af svefnvandamálum.
Alvarleg svefnvandamál
Hingað til hafa fáar rannsóknir rannsakað svefnvandamál meðal kvenna sem búa á Norðurhveli jarðar eða íslenskra kvenna, sem búa við breiddargráðu 63–66°N. Markmið þessarar íbúarannsóknar er að meta algengi alvarlegra svefnvandamála og tengdra þátta.
Þátttakendur voru 29.681, konur á aldrinu 18–69 ára. Bakgrunnsupplýsingar, heilsutengd hegðun og geðheilsueinkenni voru metin með spurningalista á netinu.
Ýmsir áhættuþættir
Á heildina litið sögðu 24,2% kvenna frá alvarlegum svefnvandamálum. Konur sem svöruðu á veturna sýndu almennt hærra algengi alvarlegra svefnvandamála, samanborið við þær sem svöruðu á sumrin.
Alvarleg svefnvandamál voru algengari meðal ungra kvenna og kvenna á miðjum aldri, þeirra sem voru einhleypar, hjá mæðrum, þeim sem voru með félagslegar- og efnahagslegar áskoranir og unnu vaktavinnu. Ennfremur voru áhættuþættir eins og offita, óheilbrigður lífstíll, of mikill skjátími og geðræn vandamál tengd alvarlegum svefnvandamálum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir