Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

„Stefna stjórnvalda í útlendingamálum er höfnunarstefna, svo lengi sem þau komast upp með það“

Björn Leví Gunnarsson alþingismaður
Björn Leví Gunn­ars­son alþing­is­maður

Þing­maðurinn skeleggi, Píratinn Björn Leví Gunnarsson segir í grein sinni, sem ber yfir­skriftina Helvítis­vist að „það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem velur að vera hlutlaust á tímum siðferðislegra átaka. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir konur sem hjálpa ekki öðrum konum. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem misnotar börn. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem stelur sann­leikanum. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og vegtyllur. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir rauðvíns­glös sem passa ekki í uppþvottavél. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir manneskjuna sem fann upp á því að skrifa ógeðslega langt intro fyrir allar uppskriftir online. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem snýr út úr orðum annarra.“

Björn bætir því við að „fólk hefur gripið til þessa orða­tiltækis við ýmis tækifæri. Sum alvarlegri en önnur. Nýjasta dæmi þess að það sé gripið til þessa orða­tiltækis tengist því að það á að senda til baka vel rúmlega 200 umsækjendur um alþjóð­lega vernd.

Hvers vegna er tilefni til þess að grípa til þessara orða við það tilefni? Á milli áranna 1956 – 2019 hafði Ísland tekið á móti 778 manns sem kvóta­flóttafólki. Í tölfræði Útlendinga­stofnunnar kemur fram að auki hafa 1745 manns hafa fengið alþjóð­lega vernd frá árinu 2015. Það sem af er árinu 2022 hafa 1050 manns bæst við þá tölu, aðallega vegna stríðsins í Úkraínu. Þetta eru vel tæplega 4000 flótta­menn sem hafa fengið aðsetur á Íslandi frá árinu 1956. Í mesta lagi 1% af þjóðinni, og rúmur fjórðungur af því bara út af stríðinu í Úkraínu.“

Hann segir einnig að „stefna stjórn­valda í útlendinga­málum er höfnunar­stefna, svo lengi sem þau komast upp með það. Svo mikið er augljóst miðað við tölurnar hér að ofan. Stríð í Evrópu, þá er ekkert mál að taka við fullt af flótta­fólki. Stríð utan Evrópu, senda til baka.“

Björn er klár á því að „þessi stefna verður enn augljósari þegar umsóknir um alþjóð­lega vernd frá Venesúela eru skoðaðar, en árið 2019 voru samtals 157 umsóknir þaðan og engri var hafnað. Á sama tíma var öllum 22 umsóknunum frá Úkraínu hafnað. Þá er ágætt að minnast þess að þegar úkraínska fótbolta­liðið kom hingað til Ísland árið 2017 til þess að keppa þá var Úkraína skráð á lista yfir örugg lönd – fyrir utan héröðin Donetsk, Luhansk og Krím. Á árunum 2015 – 2021 sóttu 87 frá Úkraínu um alþjóð­lega vernd á Íslandi, 12 fengu vernd.“

Hann ljær máls á því í lok greinar sinnar að „hér hafa ráðamenn beðið okkur um að skoða tölurnar. Já, þær tala sínu máli. Ef litið er til áranna 2015 – 2021 þá tók Grikkland við rúmlega 100 þúsund flótta­mönnum á meðan Ísland tók á móti tæplega 2000. Grikkir eru um 30falt fleiri en Íslendingar sem þýðir að þeir hafa tekið á móti um helmingi fleiri flótta­mönnum en við. Það lítur því út fyrir að það sé viðeigandi tilefni til þess að grípa til vel valinna orða gagnvart stjórn­völdum í þessum mála­flokki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá