Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

UN Women Íslandi og 66°Norður styðja við konur í Úkraínu – sérstök nefnd UN rannsakar nauðganir

Iryna Kamienieva afhendir Forseta Íslands bolinn. (f.v. Helgi Rúnar Óskarsson, Bjarney Harðardóttir, Stella Samúelsdóttir, Þórdís Claessen, Iryna Kamienieva, Guðni Th. Jóhannesson). Mynd/skjáskot. UN Women
Iryna Kamieni­eva afhendir Forseta Íslands bol­inn. (f.v. Helgi Rúnar Ósk­ars­son, Bjarney Harð­ar­dóttir, Stella Sam­ú­els­dóttir, Þórdís Claessen, Iryna Kamieni­eva, Guðni Th. Jóhann­es­son). Mynd/skjá­skot. UN Women

Guðni Th. Jó­hann­es­son, for­seti Íslands, fékk í dag af­hent­an styrkt­ar­bol þegar átaks­verk­efni UN Women og 66°Norður, sem er til styrkt­ar kon­um á flótta vegna inn­rás­ar Rússa í Úkraínu, var kynnt

UN Women á Íslandi og 66°Norður hafa tekið höndum saman til að styðja við konur á flótta vegna innrásar Rússa í Úkraínu. UN Women er starfandi í Úkraínu og vinnur markvisst að því að tryggja að þarfir allra kvenna og stúlkna sé mætt.

UN Women á Íslandi og 66°Norður hafa hannað bol til stuðnings konum á flótta í Úkraínu. Allur ágóði af sölu bolsins rennur til verkefna UN Women í Úkraínu.

Meiri­hluti þeirra sem eru á flótta eru mæður og börn og þótti því sér­stak­lega mik­il­vægt að tryggja kven­miðaða neyðar­aðstoð. Til að efla stuðning við kon­ur á flótta var ákveðið að hanna bol og mun all­ur ágóði af söl­unni renna til UN Women í Úkraínu.

Forsætis­ráðherra, Katrín Jakobs­dóttir, og utan­ríkis­ráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir fengu jafnframt afhenta styrktar­boli í Ráðherrabústaðinum við Tjarnar­götu í dag.

Bolurinn er hannaður af Þórdísi Claessen og Iryna Kamienieva – Ірина Камєнєва, sem er nýkomin til Íslands frá Úkraínu. Styrktar­bolurinn er samsettur af þjóðlegum Vyshyvanka mynstrum sem vernda gegn öllu illu fyrir þeim sem klæðist flíkinni og ljóði eftir úkraínsku skáld­konuna Lesia Ukrainka.

8 milljónir á flótta undan stríðinu

Samkvæmt upplýsingum á síðu UN Women á Íslandi hafa 8 milljónir flúið heimili sín frá því að innrás Rússa inn í Úkraínu hófst þann 24. febrúar, þar af 6,7 til annarra ríkja Evrópu. 90% þeirra eru konur og börn, en karl­mönnum á aldrinum 18 til 60 ára er meinað að yfirgefa landið.

Erika Kvapilova, fulltrúi UN Women í Úkraínu, segir að sérstök nefnd á vegum Mann­réttinda­ráðs Sameinuðu þjóðanna rannsaki 75 tilkynningar um að nauðgunum hafi verið beitt sem stríðs­vopni af rússneska hernum í Úkraínu.

Smellið hér til að styrkja átakið og kaupa bolinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá