Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ekki gleyma ættingjum með Alzheimer „Besti tími dagsins þegar ég bíð eftir að Ellý sjái mig“

„Ég vil líka hvetja ykkur til verja tíma með vinum, ættingjum eða kunningjum sem sjúk­dóminn snerta. Það eigið þið ekki bara að gera þeirra vegna. Þið eigið líka gera það ykkar vegna. Lífið er fjöl­breytilegt. Það er erfitt en það er líka fallegt. Það er þroskandi að sjá og taka þátt í fjöl­breyti­leikanum. Það er sagt að heila­bilun sé löng kveðju­stund. En það má segja það sama um lífið. Verum því ekki of upptekin af kveðju­stundinni og lifum meðan lífið leyfir.“

Þetta eru lokaorð Magnúsa Karls Magnússonar, prófessors við Lækna­deild HÍ, í pistli sem hann birtir á Facebook og hefur snert marga. Eiginkona hans glímir við Alzheimer-sjúk­dóminn illvíga en Magnús leggur mikla áherslu á að lífið sé ekki búið þrátt fyrir það. Margir hafa undan­farið deilt á Facebook hugvekju um Alzheimer-sjúk­dóminn. Magnúsi hlýnar um hjarta­rætur við að sjá þá samkennd.

Hann segist þó vilja draga úr hræðslu við sjúk­dóminn. „Síðustu daga hafa margir sýnt hlýju og samkennd með því að deila texta um Alzheimer og aðrar heila­bilanir. Þetta er gert af mikilli hjarta­hlýju og mér þykir óskaplega vænt um þegar ég sé vini og kunningja deila þessari hugvekju. En Alzheimer er þó miklu marg­breytilegri og líf fólks með þennan sjúkdóm oft svo miklu innihalds­ríkara en sú mynd sem dregin er upp. Ástæða þess að ég vek athygli á þessu er sú mikla hræðsla sem er við þennan sjúkdóm og meðfylgjandi fordómar sem hræðslunni fylgja. Sjúk­dómurinn er vissulega mjög erfiður, en það er margt í lífinu sem er erfitt. Erfið­leikum fylgja líka sigrar og gleði,“ segir Magnús.

Hann segist dást af því hvernig eiginkona hans Ellý hefur tekist á við sjúk­dóminn. „Við Ellý höfum verið í sambýli við þennan sjúkdóm í sex ár og ég er alltaf að læra af Ellý minni hvernig maður tekst á við erfiða hluti. Hún tekst á við sinn sjúkdóm með reisn, hreinskilni og gleði. Hún kom út úr skápnum. Hún nýtur lífsins. Það er ekki hægt að hafa betri sessunaut á tónleikum en Ellý. Gleðin, þakklætið og innlifunin er einlæg og smitandi. Það er líka besti tími dagsins þegar ég kem á Roðasali, kíki inn í setustofu og bíð eftir að Ellý sjái mig. Hún ríkur á fætur og segir glaðlega, “Maggi minn kominn!” En það er einnig gaman að hitta yndislegar konur sem búa með Ellý, þær brosa glaðlega þegar Ellý heilsar manninum sínum. Starfs­konurnar eru líka frábærar, andinn einstakur og alltaf gleði. Svona var þetta einnig í Hlíðabæ, þegar Ellý fór þangað daglega í dagþjálfun,“ segir Magnús og bætir við að lokum:

„PS Myndin af okkur hjónum var tekin fyrir rúmri viku þegar við vorum að fara í fimmtugsafmæli hjá vinum og það var sko engin kveðju­stund.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá