Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Jafet var nauðgað: „Ég fór í algjöra afneitun og kenndi mér sjálfum um þetta í mörg ár”

Jafet Sigfinnsson
Jafet Sig­finns­son

Jafet Sigfinnsson opnar sig upp á gátt í viðtali við vefmiðilinn DV og segir meðal annars:

„Ég reyndi að koma út úr skápnum þegar ég var 16 ára og opnaði mig við manneskju sem er mér mjög kær. Og ég veit að það kom af góðu en ég fékk að heyra áhyggjur af viðbrögðum mínum við hugsanlegu einelti. Það var til þess að ég flúði bara beint aftur inn í skápinn og var þar í fimm ár í viðbót,“ segir Jafet og bætir því við að „þetta jók einnig andúð mína á að vera öðruvísi, mig langaði alltaf að vera „venju­legur”, eins og maður sá alltaf í öllum bíómyndunum, karl og kona hamingjusöm að eilífu með börn og hund.

Það var lífið sem ég hélt að mig langaði í og reyndi að þvinga mig þangað þótt fyrir að ég fyndi fyrir þessari kynhneigð og vildi kanna hana nánar.”

En Jafet varð fyrir hræðilegri lífs­reynslu sumarið 2007, en þá var honum nauðgað:

„Ég fór í algjöra afneitun, þetta var löngu áður en ég kom út úr skápnum og kenndi mér sjálfum um þetta í mörg ár þrátt fyrir að hafa verið áfengis­dauður þegar þetta gerist.

Við höfðum sofið saman áður og eftir á fannst mér ég hafa verið að gefa honum undir fótinn fyrr um kvöldið. Þarna kemur aftur inn hvernig var, og er oft enn tala um, samkyn­hneigð. Mér fannst ég bera ákveðna ábyrgð á að vera ekki að „tæla” gagn­kynhneigða karlmenn því það væri svo rangt að vera hommi og ég bæri ábyrgð á forvitni annarra.

Auðvitað er það ekki raunin en þannig leið mér lengi vel, jafnvel eftir að ég kom út úr skápnum. Auðvitað reyndi ég alveg við gagn­kynhneigða karlmenn þegar ég var yngri en ég fór ekki yfir ákveðin mörk, tékkaði bara á hvort væri áhugi. En það þótti krípí jafnvel þótt að karlmenn mættu gera nákvæmlega það sama í samskiptum við konur. Og um leið og ég fékk nei sagði ég bless. Af hverju er krípí þegar karlmaður reynir við annan karlmann en ekki þegar að karlmaður reynir við konu? Á þessum tíma var ég þessu sammála og fannst það óviðeigandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá