Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Love Guru snýr aftur með nýtt lag: „Covid-tíminn var besti tími ævinnar“

Þórður Helgi
Þórður Helgi Mynd: Ruv.is

Afmælis­barn dagsins snýr aftur eftir smá hlé en í þetta sinn er það af dýrari kantinum. Það er enginn annar en dagskrár­gerðar­maðurinn góðkunni úr Njarðvíkum, Þórður Helgi Þórðarson eða Doddi litli eins og hann kallar sig sjálfur, sem á afmæli í dag. Ku hann vera 53 ára í dag.

Doddi litli hefur verið áberandi síðustu áratugina, bæði sem dagskrár­gerðarmaður á Rás 2 og tónlistar­maðurinn Love Guru þó lítið hafi heyrst af honum síðustu árin. Á því er þó breyting því hann stefni brátt á endurkomu.

Mannlíf heyrði í Dodda litla og spurði hann út í afmælis­daginn.

„Ég ætla að fagna deginum með því að vinna til svona 23 í kvöld. Ég er núna að klippa Grínland með Jakobi Magnússyni, svo tek ég upp podcast þar sem við kveðjum Andy Fletcher sem var í Depeche Mode en lést nýlega. Síðan er ég að fara að hjálpa Partyzone að taka upp þáttinn Undir diskó­kúlunni sem verður á laugar­daginn. Þannig að þetta er hörku afmælis­dagur.“

Aðspurður hvort hann fengi ekki einu sinni köku í tilefni dagsins svaraði Doddi: „Heyrðu ég fékk Lindubuff frá henni Rósu sem er með Popp­landið. Það er svona hámark dagsins hjá mér.“

Mannlíf spurði Dodda litla um það hvort hann hefði eitthvað á prjónunum á næstunni, svona almennt.

„Ég er að fara að gefa út Guru lag á föstu­daginn,“ svaraði Doddi spenntur.

En þegar Mannlíf spurði hann hvort hann ætlaði eitthvað til útlanda eins og margir um þessar mundir var hann fljótur að svara. „Nei, ég er rosalega lítið fyrir það að ferðast. Ég eiginlega hata að ferðast. Ég fer mjög sjaldan út og fer eiginlega mjög sjaldan úr húsi, ég er það spennandi og skemmtilegur karakter,“ sagði Doddi litli og bætti við: „Covid var fínt, besti tími ævinnar. Ég þurfti ekki að hitta neinn og gat bara hangið heima, gat meira að segja unnið heima.“

Mannlíf óskar Dodda litla innilega til hamingju með daginn og vonar að njóti þó vinnunnar á afmælis­deginum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá