Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fjórtán verið ákærðir fyrir hatursorðræðu: „Verðum að útrýma slíkri meinsemd“

Lenya Rún
Lenya Rún

Frá árinu 2014 hefur lögreglunni borist 20 kærur vegna haturs­orðræðu. 14 ákærur hafa verið gefnar út, 5 mál hafa verið felld niður og í einu máli var rannsókn hætt.

Lenyu Rún Taha Karim, sem er fyrsti Kúrdinn á Alþingi Íslendinga, greindi frá því í viðtali við Kjarnann í síðasta mánuði að hún hefði íhugað að skila inn kjörbréfi sínu vegna persónu­árása. Frétt sem unnin var upp úr viðtalinu var síðan tekin út af vef Kjarnans vegna persónu­árása, rasisma og haturs­orðræðu.

Nærri helmingur allra kæra eða 9 þeirra sem bárust árið 2015 má rekja til umræðu á útvarps­stöðinni Útvarp Sögu um hinsegin fræðslu í grunn­skólum Hafnar­fjarðar. Af þessum níu málum voru sjö ákærur gefnar út. Sex voru sýknaðir og einn sakfelldur í héraðs­dómi. Tvö af málunum fóru fyrir Hæstarétt sem sakfelldi í þeim báðum.

Útrýma slíkri meinsemd

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra

„Niður­staða mín er að við getum lært ýmislegt af því hvernig við höfum tekist á við orðræðuna um kynbundið ofbeldi og kynferðislegt ofbeldi, og hvernig við getum reynt að vinna þvert á kerfið til að útrýma slíkri meinsemd,“ segir Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra í samtali við frétta­stofu Rúv.

Haturs­orðræða á ekki að líðast í íslensku samfélagi, segir forsætis­ráðherra. Hún vill samhæfa aðgerðir stjórn­valda og vinna markvisst gegn þessari meinsemd í samfélaginu.

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir í samtali við frétta­stofu að hún hafi velt því töluvert fyrir sér hvernig best sé að takast á við vaxandi haturs­orðræðu og umræðu um hana sem sprottið hafi upp á undan­förnum vikum og mánuðum.

Mikilvægt að nýta hæfileika sýna í öruggu rými

„Það er mikið virði fólgið í því fyrir samfélagið að fólk geti nýtt hæfileika sína og verið í öruggu rými, ef svo má segja, í samfélaginu. Algjör­lega óháð kynþætti, kynhneigð, eða hverju sem er,“ segir Katrín.

Ráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp sem fær það verkefni að gera tillögur að aðgerðum. Hún hefur þegar kallað eftir tilnefningum frá þeim stofnunum sem eiga eftir að skipa hópinn.

Þá er fyrir­hugað að hafa samráð við hagsmuna­aðila og félaga­samtök sem hafa beitt sér á þessum vettvangi. Katrín segir að hópurinn verði full­skipaður um mitt sumar og stefnt sé að þvi að vinnu ljúki fyrir lok árs.

Í minnis­blaði ráðherra segir að meðal annars verði unnið gegn haturs­orðræðu vegna kynþáttar, litar­háttar, þjóðernis­uppruna, kynhneigðar og kynvitundar fólks.

Eigi ekki að líðast

Katrín segir hópinn breiðan sem komi að vinnunni og að horft verði heild­stætt á verkefnið, þvert á stjórn­kerfið. Fyrir­byggjandi aðgerðir, fræðsla og forvarnir í skóla­kerfinu sem og á vinnu­markaði komi til álita.

„Það geta komið fram tillögur um laga­breytingar en líka tillögur um almenna vitundar­vakningu. Við sjáum að haturs­orðræða getur virkað þannig að hún fælir fólk frá og bælir það niður. Þrengir að mögu­leikum fólks til að þroska sína hæfileika. Þannig að við lítum á þetta sem stórt samfélagslegt mál, fyrir utan það að við eigum bara ekkert að líða slíkt í okkar samfélagi.“

Í hópnum verða einnig fulltrúar frá dómsmála­ráðuneyti, ríkis­lögreglu­stjóra og sveitar­félögunum. Þá hefur forsætis­ráðherra kallað eftir fulltrúum frá Mann­réttinda­skrifstofu og Jafnréttis­stofu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá