Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Dásamar Ágústu Skúladóttur: „Það sem þessi kona lætur eftir sig er hreint út sagt ótrúlegt “

Karl Ágúst sem Fíflið
Karl Ágúst sem Fíflið Mynd: Tjarnarbíó

Karl Ágúst Úlfsson, leikari, leik­stjóri og rithöfundur, dásamar leik­stjórann Ágústu Skúla­dóttur í nýlegri færslu á Facebook. Og ástæðan er ósköp skiljanleg. Ágústa er nú að leikstýra fimm leik­verkum á sama tíma, geri aðrir betur.

„- Ertu ekki að djóka í mér? sagði Ágústa.

Fyrsta svarið sem mér datt í hug var „Er ég vanur að djóka?“ en ég áttaði mig á að það væri trúlega ekki gott svar, svo ég sagði „Nei, ég er að tala um fimm sýningar. Fimm uppfærslur. Fimm leik­stjórnar­verkefni, five, fünf, cinco, cinque, fem… “– Hættu að láta eins og þú kunnir öll heimsins tungumál, sagði hún og það er rétt að taka það fram að þetta var ekki illa meint, hvorki af hennar hálfu né minni.En jú –– Þú átt sannarlega fimm (five, fünf cinco, osfrv.) leik­sýningar á íslenskum atvinnu­leiksviðum á sama tíma!– Gott og vel, sagði hún, en ég trúi þér ekki nema þú teljir þær upp.Ég vissi að þetta var gildra, en ég gekk í hana og þess vegna birti ég listann hér.“

Og svo kom listinn og þvílíkur listi!

„Og þviíkt og annað eins! Sami leikstórinn á fimm sýningar á sama tíma! Ertu ekki að djóka?En hvað um það, hér er listinn:NJÁLA Á HUNDAVAÐI í Borgar­leikhúsinu. Algjör­lega myljandi fyndin sviðs­versjón af Brennu-Njálssögu með snillingunum Hundi í óskilum.BÍDDU BARA í Gaflara­leikhúsinu. Sýning um reynslu­heim kvenna sem kemur okkur öllum við og hefur heldur betur hreyft við áhorf­endum af öllum kynjum.FÍFLIÐ i Tjarnar­bíói. Kveðju­sýning ykkar einlægs. Sýning sem ekki er ástæða til að hafa mörg orð um, en mér þykir einstak­lega vænt um af skiljanlegum ástæðum.HRÍMA í Tjarna­bíói. Algjör­lega einstök heil­grímusýning. Eftirminnlegasta grímu­sýning sem ég hef séð. Samt hef ég ferðast vítt og breitt um heiminn og horft á afsprengi fjöl­þjóðlegra hefða, en þetta snerti mig meira en allt annað sem ég hef séð í þessum leikhús­geira.MADAME TOURETTE í Tjarnar­bíói. Sýning sem ég hefði ekki treyst neinum leik­stjóra öðrum en Ágústu til að setja upp og gera að þeirri organdi snillld sem gefur áhorf­endum tækifæri til að hlæja að hlutum sem þeim hefðu þótt óþægilegir undir öllum öðrum aðstæðum, og hefðu ekki veitt lista­konunni Elvu Dögg tækifæri til að koma skila­boðum sínum á framfæri.“

Ágústa leik­stýrir 5 sýn­ingum á sama tíma!

Í lokaorðum sínum veltir Karl Ágúst fyrir sér spurningu sem á vel rétt á sér.

„Að lokum: Hefur einhver annar leiksjóri afrekað annað eins, hvort sem er hér á landi eða í öðrum löndum? Og þá er ég ekki bara að tala um magn, fjölda sýninga, heldu líka gæði. Guð minn góður, það sem þessi kona lætur eftir sig er hreint út sagt ótrúlegt í mörgum skilningi þess orðs.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt