Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Björn landslagsarkitekt: „Garðurinn er meira eins og framlenging af heimilinu“

Björn Jóhannsson landslagsarkitekt
Björn Jóhanns­son lands­lags­arki­tekt

„Garðarnir eru sífellt að verða meira eins og íbúð, þannig að þá daga þegar veður er gott, getur fólk búið utandyra jafnt sem innan,“ segir Björn Jóhannsson, landslags­arkitekt hjá arkitekta­stofunni Urban Beat.

„Það eru til dæmis komin smáhýsi í garða þar sem geta verið gufubað, lítið eldhús eða jafnvel útiskrifstofa. Svo eru það þessi spa-svæði sem verða æ skemmtilegri. Þar geta verið heitur pottur, kaldur pottur, sturta og gufubað. Svo höfum við verið að vinna með útieldhús sem er í raun grillsvæði undir þaki og fer það eftir því hvað húsráð­endur eru öflugir við elda­mennskuna, hvort þar sé gasgrill, kolagrill eða jafnvel pítsuofn og vín- og bjórkælar.

Sumir vilja hellur og geta þá eldað graut úti í garði. Breytingin á hugtakinu garður á síðustu árum hefur því farið frá því að vera skógur í borg eða lystigarður, í það að vera fram­lenging á íbúðinni þar sem hægt er að bralla svipaða hluti utandyra og innan.“

Björn leggur áherslu á að þeir sem hafa hug á garð­hönnun gefi sér tíma í skipulagningu verk­efnisins.

„Þegar það liggur fyrir að það eigi að gera eitthvað verulega flott í garðinum þá ætti að hafa samband við fagmann með góðum fyrirvara. Hægt er að panta hönnun hjá landslags­arkitekt að hausti þannig að þegar vorið kemur þá eru teikningar, verktaki og það sem þarf að panta í garðinn allt saman klárt.“

Björn segir að það verði æ algengara að sett séu þök yfir svæði auk þess sem margir kjósa pergólu – mannvirki reist úr staurum og láréttum sperrum – og má segja að hún sé eins konar opið þak – og markísur og þá sérstak­lega markísur og hitara, en fólk getur þá frekar setið úti í garði á vorin og haustin án þess að kuldinn bíti. „Þetta þýðir að kvöldin fara að verða meira spennandi tími til útiveru.“

Björn segist varla hanna garð í dag án þess að koma þar að lýsingar­hönnun. „Um leið og lýsingin er komin, þá breytast þessi svæði í undra­veröld; ég tala nú ekki um ef maður er að nota stýringar þar sem hægt er að dempa og auka ljósið og breyta um lit.“

Auðveldara að rækta ávaxtatré

Þegar kemur að plöntu­vali segist Björn mestmegnis velja runna og lágvaxin tré. „Ég er með nokkurn veginn sama lista og ég notaði fyrir 20 árum. Þetta eru plöntur sem ég veit að þrífast hér á landi og þola þá að vera í þessum görðum, en sums staðar þarf maður að spá í vindinn; hvort það sé mikil norðanátt eða hvort það komi salt inn á lóðina út af sjávar­roki. Aðalmálið með gróðurinn er þó, að það sé eitthvað sígrænt í honum og eitthvað skemmtilegt sem blómstrar snemma ásamt öðru sem blómstrar yfir sumar­mánuðina. Það má heldur ekki gleyma að spá í haustliti, en við eigum gríðarlegt úrval af þannig plöntum.“

Björn segir að það sé orðið auðveldara en áður að rækta ávaxtatré og nefnir í því sambandi kirsuberjatré og eplatré, þótt það þurfi að passa upp á að gróður­setja trén á skjól­sælum stað.

„Svo hef ég verið að vinna með það sem ég kalla berjaskóg. Það er svæði þar sem berja­runnum er plantað nokkuð þétt. Þar nota ég harðgerð rifs, sól- og stikilsber og runna með bláum berjum sem kallast hunangsviður. Til að lágmarka viðhald nota ég gjarnan runna sem hylja beðin vel og virka þá sem eins konar arfavörn. Þar má nefna hélurifs, kirtil­rifs, skrið­mispil og jafnvel berg­fléttu þar sem aðstæður leyfa.“

Björn segir að ef útieldhús er í garðinum sé sniðugt að rækta krydd­jurtir í 90-110 cm hæð. „Þetta kalla ég kryddjurta­barinn. Þá er hægt að rölta yfir og klippa smásteinselju eða dill til að skutla með í salatið eða á steikina.“

Að lokum vill Björn undir­strika að framkvæmdir séu vel skipulagðar. „Þar leikur teikning höfuð­hlutverkið, en hún er góð framkvæmda­áætlun sem kemur í veg fyrir tvíverknað og annan vandræða­gang.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá