Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Hormónaraskandi efni í ýmsum varningi ógna framtíð mannkynsins

„Þau stjórna efna­skiptum í líkamanum, hafa áhrif á beinvöxt og þroska, þau hafa áhrif aðgreiningu kynja í móður­kviði. Þau hafa áhrif á kyneinkenni, jafnvel kynvitund. Þau hafa áhrif á þroska heila í móður­kviði og svona mætti lengi telja“ segir Una Emils­dóttir, sérnáms­læknir í umhverfis­læknisfræði í þætti Kveiks.

Nýlegar rann­sóknir á styrk nokkurra hormónaraskandi efna í Íslendingum sýna að þeir eru álíka útsettir fyrir þeim og aðrir Vesturlanda­búar – til dæmis svokölluðum PFAS-efnum. Það eru manngerð þrávirk efni sem hrinda frá sér vatni og fitu. Aðeins lítill hluti þeirra hefur verið bannaður.

Í þættinum kemur fram að sumir telji hormónaraskandi efni í ýmsum varningi ógna framtíð mann­kynsins. Mikil óvissa hefur ríkt um áhrif þeirra og reglu­verkið á erfitt með að taka á þeim. Deilt er áratugum saman um hvort efni skuli leyfð eða bönnuð og á meðan þykknar efnasúpan í kringum okkur.

Eftir seinni heims­styrjöld skall flóð­bylgja á almenningi á Vestur­löndum þegar á markað komu ýmis undraefni. Á innan við öld hefur efna­framleiðsla í heiminum nær þúsund­faldast og enn eykst magnið á hverju ári. Svokölluð hormónaraskandi efni valda sérstökum áhyggjum.

Rann­sóknir benda til þess að sæðis­gæðum hafi hnignað skarpt á Vestur­löndum síðustu áratugi og sá möguleiki hefur verið nefndur að ef ekkert lát verður á þróuninni verði næstu kynslóðir hugsanlega ófærar um að eignast eigin börn, nema með tæknilegri aðstoð.

Í óbirtri rannsókn Rannveigar Óskar Jóns­dóttur fyrir ári var styrkur nokkurra PFAS-efna mældur í 140 Íslendingum. Í 7,5 prósentum kvenna á barneignar­aldri var styrkurinn yfir hættu­mörkum fyrir fóstur.

Milljón dauðsfalla á hverju ári

Sameinuðu þjóðirnar, Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunin, Umhverfis­stofnun Evrópu og Norræna ráðherra­ráðið eru meðal þeirra sem hafa reglulega sent frá sér skýrslur um hættuna af hormónaraskandi efnum.

Alþjóða­samtök fæðinga- og kven­sjúkdóma­lækna segja þau eiga þátt í milljónum dauðsfalla á ári hverju og kosta samfélagið milljarða dollara. Verið sé að drekkja heiminum í óprófuðum efnum.

Una segir efnin líkjast hormónum og bindast sömu viðtökum.

„Þau annað hvort hvetja eða hindra starfsemi eðlilegra hormóna. Ef maður fær hugmynd um það hvað hormón gera í líkamanum og hversu mikil­vægum hlut­verkum þau gegna þá veit maður að maður ætti kannski að hafa ástæðu til að óttast hormóna­truflandi áhrif,“ segir hún.

Ýmsar rann­sóknir síðustu áratugi hafa bent til þess að það sé fylgni á milli útsetningar fyrir hormóna­spillandi efnum og ótal heilsufars­vandamála, svo sem krabba­meins, sykursýki, skjald­kirtils­vandamála, offitu, ófrjósemi, ADHD, einhverfu, frávika á kynfærum drengja, fjöl­blöðru­eggjastokka­heilkennis, endómetríósu, fóstur­missis, skerts vitsmuna­þroska og lágs testósteróns. Hinsvegar er mun minna um að orskatengsl þarna á milli hafi verið staðfest. Rann­sóknunum ber heldur ekki alltaf saman.

Það er staðreynd að vestrænir karlar í dag mælast að meðaltali með helmingi færri sprækar sáðfrumur en afar þeirra gerðu, en breyturnar að baki því geta verið fjölmargar.

Fræðimenn eru langt frá því að vera sammála. Sumir hafa með tímanum styrkst í trú sinni á að hormónaraskandi efni hafi mikil og alvarleg áhrif. Aðrir eru komnir á þá skoðun að of mikil áhersla hafi verið lögð á þátt hormóna­spilla og of miklum fjármunum sé varið til rannsókna á þeim. Nærtækara væri að horfa til dæmis á þátt vestræns mataræðis og stór­aukinnar lyfja­notkunar.

Nánar er fjallað um þetta mál í þætti Kveiks sem sýndur var á RÚV í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá