Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Afsögn Boris Johnson: „Ég óska honum samsvarandi eymdar og hann hefur úthlutað öðrum á ferli sínum“

Boris Johnson með síld.
Boris Johnson með síld.

Öll spjót hafa staðið að Boris Johnson, forsætis­ráðherra Bretlands, undan­farið og mikill þrýstingur á að hann segi af sér. Er það vegna raða hneykslis­mála og umdeildra ákvarðana, sem má segja að hafi byrjað með gleðskap sem haldinn var í bústað Johnson og höfuð­stöðvum ríkis­stjórnarinnar í Downingstræti 10 í júní árið 2020, þegar strangt samkomu­bann var í gildi í Bretandi.

Johnson hefur nú tilkynnt yfir­vofandi afsögn sína sem formaður Íhalds­flokksins og forsætis­ráðherra. RÚV greinir frá þessu.

Frétta­stofur BBC og Sky hafa greint frá því að Boris Johnson hyggi á afsögn sem formaður Íhalds­flokksins í dag. Hann er þó sagður ætla sér að sitja sem forsætis­ráðherra fram á haust. Miklar vendingar hafa verið í stjórn­málum í Bretlandi undan­farið. 57 ráðherrar og aðrir áhrifa­menn úr bæði ríkis­stjórn og flokki Johnson hafa sagt af sér.

Von er á yfir­lýsingu forsætis­ráðherrans í dag, en talið er að hann sitji áfram í starfinu þar til eftir­maður hans hefur verið valinn, en lands­fundur Íhalds­flokksins er í október.

Miklar deilur hafa verið innan flokksins undan­farið, sem snúast um forsætis­ráðherrann sjálfan. Nadhim Zahawi, fjármála­ráðherra bresku ríkis­stjórnarinnar sem Johnson skipaði í embætti fyrir aðeins tveimur sólar­hringum, sendi frá sér bréf í morgun þar sem hann hvatti Johnson til að segja af sér embætti forsætis­ráðherra.

Samfélags­miðlar hafa ekki síður en frétta­miðlar logað í kringum Boris Johnson undan­farið. Þannig skrifaði Jenny Stevens til að mynda á Twitter í gær:

„Þegar Boris Johnson sagði mér upp (í Ráðhúsinu), var ég kölluð inn í stórt herbergi þar sem hann stóð með möppu og las kæruleysis­lega upp starfs­heiti og „verður eytt“ í fram­haldinu. Ég vona að honum verði sýnd svipuð kurteisi.“

Færslan hefur fengið töluverða athygli og uppskorið mikil viðbrögð. Libby Holden skrifar athugasemd við hana:

„Þetta var sannarlega hræðilegur tími. Ég trúi því varla að það séu komin 15 ár síðan. Ég óska honum bara samsvar­andi eymdar og hann hefur úthlutað öðrum á ferli sínum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn