Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Einn þessara leikara gæti fengið drápsleyfið

Vanga­veltur hafa nú lengi gerjast um það hver muni taka við hlutverki sem njósn­arinn góðkunni, James Bond. Síðustu ár hafa ýmsar getgátur komið fram um það hver muni bera hið goðsagna­kennda númer 007, þegar Daniel Craig láti af störfum.

Síðsta mynd Craig í hlut­verkinu, No Time to Die, kom loks út á síðasta ári, eftir tafir vegna Covid-19 faraldursins. Eitt nafn hefur gjarnan heyrst umfram önnur í umræðunni um hlut­verkið síðustu misseri, en það er leikarinn Idris Elba. Hann virtist hugnast mörgum aðdáendum sem arftaki Craig og, að því er virðist, fram­leiðendum myndanna sömuleiðis. Nú hefur heyrst að Elba hafi raun­verulega átt í viðræðum við fram­leiðendurna vegna hlut­verksins – og gengið frá samninga­borðinu. Þessu er meðal annars sagt frá hjá breska götu­blaðinu Daily Mail.

Idris Elba

Eflaust eru margir svekktir að heyra að Elba muni ekki taka við hinu goðsagna­kennda númeri 007, þótt ekkert sé staðfest í þeim efnum. Orðrómurinn hefur hins vegar enn á ný komið af stað miklum umræðum um það hver verði næsti njósnari hennar hátignar. Raunar má víða á netinu finna veðmál um það hver muni taka að sér hlut­verkið.

Nöfn þeirra sem heyrast hvað hæst, og eru efst á blaði hjá veðmangaranum William Hill eru hér fyrir neðan.

Henry Cavill

Henry Cavill (5/2)

Henry Cavill hefur áður lýst yfir áhuga sínum á hlut­verkinu. Hann sagði meðal annars í viðtali við GQ árið 2020 að hann myndi „stökkva á tækifærið ef það byðist“.

Henry er þekktur fyrir að leika Superman, sem og fyrir hlutverk sín í kvik­myndum á borð við Enola Holmes og Immortals. Hann er einnig vel þekktur fyrir hlutverk sín í sjónvarps­þáttunum The Tudors og Netflix-seríunni vinsælu The Witcher.

Regé Jean-Page

Regé Jean-Page (4/1)

Regé Jean-Page sló í gegn í hlutverki sínu í fyrstu seríu þáttaraðarinnar Bridgerton árið 2020. Hann heillaði þar marga upp úr skónum sem Simon Basset. Jean-Page er vanur sviðs­leikari og er með ýmis járn í eldinum; til dæmis mun hann birtast á hvíta tjaldinu á næsta ári í kvik­myndinni Dungeons and Dragons. Jean-Page lét á síðasta ári hafa það eftir sér að hann væri upp með sér yfir því að nafn hans væri nefnt í vanga­veltum um næsta James Bond.

Tom Hardy

Tom Hardy (6/1)

Tom Hardy er heims­frægur leikari sem hefur markað spor sín víða. Meðal þeirra kvikmynda sem hann er hvað þekktastur fyrir eru Inception, Black Hawk Down, The Dark Knight Rises, The Revenant, Legend, Mad Max: Fury Road og Venom. Hann hefur einnig leikið í hinum ýmsu þátta­röðum, eins og Peaky Blinders og Band of Brothers. Tom hefur í raun staðfest það að vera opinn fyrir hlut­verkinu með því að vilja ekki ræða það. „Ef ég minnist á það er það farið,“ sagði hann í viðtali við The Daily Beast árið 2017.

James Norton

James Norton (6/1)

Breski leikarinn James Norton er einna helst þekktur fyrir leik sinn í þátta­röðunum Grantchester og Happy Valley, en hefur leikið í fleiri sjónvarps­þáttum, auk þess að vera sviðs­leikari. „Klikkað… Það er ótrúlegt og mikið hrós bara að vera nefndur í tengslum við þennan heim, en ef við tökum þetta lengra þá eru þetta ekkert annað en vanga­veltur,“ sagði Norton í viðtali við The Times þegar hlut­verkið barst í tal. „Ég elska þessa seríu og vona að Barbara Broccoli haldi áfram að láta hana skipta máli. Ferðalag inn í miðjuna á persónu­legum heimi Bond, í stað einfaldra frasa, eru strax miklar framfarir.“

Chiwetel Ejiofor

Chiwetel Ejiofor (7/1)

Breski leikarinn Chiwetel Ejiofor hefur leikið í hinum ýmsu kvik­myndum og sjónvarps­þáttum, eins og 12 Years a Slave, The Boy who Harnessed the Wind, Doctor Strange, The Martian og American Gangster. Nýlega lék hann í þátta­röðinni The Man who Fell to Earth, sem hefur notið mikilla vinsælda. Það heyrðist fyrst árið 2014 að Ejiofor væri fyrsta val fram­leiðanda kvik­myndanna um James Bond sem arftaki Daniel Craig. Samkvæmt heimildum Variety horfa fram­leiðendurnir enn í átt til hans en eiga eftir að koma með formlegt tilboð.

Árið 2015 sagðist Ejiofor sjálfur hins vegar vilja að leikarinn Michael Pena yrði næsti James Bond. „Það er það sem ég vil,“ sagði hann.

Idris Elba þvertók sjálfur fyrir það á síðasta ári að hann ætlaði í skó njósnara hennar hátignar. „Nei, ég mun ekki verða James Bond,“ sagði hann þegar hann var beðinn um viðbrögð við sögu­sögnunum. „Ég er líklega frægasti Bond-leikari heims og ég hef ekki einu sinni leikið hlut­verkið!“

Barbara Broccoli hefur sagt það erfitt val að finna arftaka Craig. „Þetta er stór ákvörðun,“ sagði hún í samtali við Variety. „Við ætlum að endur­uppgötva Bond. Við erum að vinna í því hvert við förum með hann, við erum í samtali um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt