Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Ósáttir með heimastjórn Fljótsdalshéraðs: „Þá böðlast ég áfram í að vekja á þessu athygli“

Ljótt að sjá.
Ljótt að sjá. Mynd: Þórhallur Þorsteinsson

„Ef þetta verða einu viðbrögðin að vísa á einhvern annan þá gerist bara það sem hefur alltaf gerst sem er ekki neitt,“ segir Þórhallur Þorsteinsson, framkvæmda­stjóri Ferða­félags Fljótsdals­héraðs í samtali við Austur­frétt.

Þeir Þórhallur og Þorvaldur Hjarðar frá ferða­félaginu fóru á fund fyrir stuttu með heima­stjórn Fljótsdals­héraðs þar sem þeir ræddu slæmt ástand á vegslóðum og kynntu fjölmörg dæmi um utan­vegaakstur á vegum utan alfara­leiða en Múlaþing ber ábyrgð á þeim og skal viðhalda.

Drullu­svað.

Um er að ræða nokkra vegi á Brúar­dölum líkt og frá Kára­hnjúka­stíflu yfir Sauðár­stíflu, gegnum Brúardal, framhjá Fagradal og yfir á veginn við Álfadalsá að því er fram kemur hjá Austur­frétt.

Þeir félagar fóru þess á leit að Múlaþing réðist í úrbætur og löguðu vegslóða á hálendinu sem allra fyrst. Segir Þórhallur að slíkt þurfi ekki að kosta mikið og áætlar að um tíu milljónir ættu að duga.

„Við erum ekki að fara fram á mikið. Það þarf engar stór­aðgerðir til að bæta úr heldur í raun aðeins að lagfæra spotta hér og þar sem eru sérstak­lega slæmir og ferðafólk fer utanvega til að forðast. Ég myndi halda að slíkar lagfæringar yrðu varla dýrari en tíu milljónir eða svo og það strax myndi án vafa minnka allan utan­vegaakstur.“

Þórhallur segist mest vonsvikinn yfir viðbrögðum heima­stjórnar Fljótsdals­héraðs vegna erindisins en í mörg ár hefur hann barist gegn utan­vegaakstri og hefur hann hvað eftir annað óskað eftir aðstoð ríkis og sveitar­félaga í þeirri baráttu.

Samkvæmt Austur­frétt tók heima­stjórnin vel í erindið og bókaði að því yrði beint til sveita­stjórnar Múlaþings, að koma ábendingum þeirra áfram til stjórn­valda sem og Vega­gerðarinnar.

Þórhallur segist hafa fengið þessi viðbrögð áður og er hann vonlítill um að eitthvað komi út úr slíkum tilmælum frekar en áður.

„Það er segin saga þegar menn benda á einhverja allt aðra að það er að mínu viti ávísun á að ekkert gerist. En þar sem ég er þrjóskari en allt sem þrjóskt er þá böðlast ég áfram í að vekja á þessu athygli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp