Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Tíu ára gömul stúlka skaut konu til bana: „Þú hefðir ekki átt að abbast upp á mömmu mína!“

Blóm, kross og kerti við dánarstað konunnar.
Blóm, kross og kerti við dán­ar­stað kon­unnar. Mynd: Twitter

Hin 41 árs gamla amma og sjálfboða­liði í Orlando í Florida-ríki í Banda­ríkjunum, Lashun Rodgers var stödd í grill­veislu á Minningar­degi hermanna er konu og dóttur hennar bar að garði. Var grill­veislan haldin í bakgarðinum við blokkina hennar Lashun. Reyndist þessi óvænta heimsókn mæðgnanna bannvæn.

Samkvæmt Washington Post byrjuðu konurnar tvær að öskra hvor á aðra vegna samfélags­miðla­færslu sem önnur þeirra hafði skrifað. Vitni sögðu að öskrin hefðu breyst í líkamleg átök eftir að konan kýldi Lashun, sem launaði henni kinn­hestinn.

Í skýrslu lögreglu segir að á einhverjum tíma­punkti hefði hin konan, hin 31 árs gamla Lakrisha Isaac, rétt dóttur sinni sem aðeins er 10 ára gömul, veski sitt. Í veskinu var skamm­byssa. Slags­málin héltu áfram allt þar til dóttir Lakrisha skaut Lashun tveimur skotum í höfuðið.

Vitni segir móðurina hafa öskað á dóttur sína „Þú ert búin að skjóta konuna!“ Segir vitnið stelpuna þá hafa öskrað á fórnar­lambið „Þú hefðir ekki átt að abbast upp á mömmu mína!“

Lashun lést í árásinni en saksókn­arar klóra sér nú í höfðinu og reyna að finna leið til að sækja hinn unga morðingja til saka.

„Þessi skotárás er óhugsandi harm­leikur sem ekki bíður upp á auðveldar lausnir,“ sagði Níundi ríkis­lögmaður Flórída, Monique H. Worrell í yfir­lýsingu á þriðjudaginn. „Skrif­stofa okkar mun fara varlega og aðal­áhersla okkar verður á að gera allt sem við getum til að styðja fjöl­skyldu frú Rodgers, vernda almenning og bæta heilsu þessa barns í fram­tíðinni.“

Stúlkan, sem ekki hefur verið nafn­greind, vegna aldurs hennar, var handtekin á þriðjudaginn og gæti verið kærð fyrir manndráp, samkvæmt ClickOrlando.com, þó að Worrell hafi tekið það sérstak­lega fram að ekki væri búið að ákveða hvort stúlkan verði sótt til saka eður ei. Móðirin, Lakrisha er einnig í haldi lögreglu og á yfir höfði sér nokkrar kærur, þar með talið fyrir manndráp af saknæmu gáleysi, grófa líkams­árás með skotvopni, vanrækslu barns og gáleysis­geymslu skotvopns, samkvæmt handtöku­skýrslunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum