Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Anna Sóley gefur út nýja breiðskífu – Mörk milli fortíðar og nútíðar, raunveruleika og skáldskapar

Anna Sóley sendir frá sér ellefu laga breið­skífu, Modern Age Ophelia. Platan er gefin út af Smekk­leysu og kemur út á geisla­disk og á öllum helstu streymis­sveitum 9. september. Lögin og textarnir eru eftir Önnu Sóley fyrir utan Tíminn líður sem heitir upphaf­lega Kind Folk og samið af Kenny Wheeler en Anna samdi íslenskan texta við lagið.

Lilja María Ásmunds­dóttir hann­aði mynd­verkið á albú­m­inu

Einvala lið kemur að flutningi á plötunni. Mikael Máni Ásmundsson spilar á gítar, Magnús Jóhann Ragnarsson á píanó og Rhodes, Birgir Steinn Theodórsson á kontrabassa, Magnús Trygvason Eliassen á trommur, Lilja María Ásmunds­dóttir spilar á Hljóð­skúlptúrinn Huldu og Tumi Árnason á tenór­saxófón. Rakel Sigurðar­dóttir og Salóme Katrín Magnúsdóttir syngja bakraddir og Strok­kvartettinn Siggi spilar inn á tvö laganna. Birgir Jón Birgisson sá um upptöku, hljóð­blöndun og tónjöfnun. Upptökur fóru fram í Sund­lauginni.

Anna Sóley.

Lilja María Ásmunds­dóttir hannaði mynd­verkið á albúminu. Ágúst Ævar Gunnarsson og Kinnat Sóley sáu um umbrotið. Valdís Thor tók polaroid myndir af hljóm­sveitar­meðlimum sem sjá má á albúminu og í texta­bæklingnum sem fylgir. Myndin framan á albúminu varð upphaf­lega skyssa sem Lilja teiknaði af Önnu sitjandi við píanóið að semja tónlist sem seinna meir varð upphafið af plötunni.

Anna Sóley er laga­smiður og söngkona sem sækir innblástur frá marg­víslegum frásögum í lífi og listum. Í tónlistinni koma saman mismun­andi stefnur; módern jazz, grúf, popp og alþýðu­tónlist, ásamt textum með einn fótinn í raun­veru­leikanum og hinn í draum­heimum. Þema plötunnar eru sögur sem eiga það sameiginlegt að fjalla um mörk milli fortíðar og nútíðar, raun­veruleika og skáld­skapar, og kannski einna helst forvitnilegar persónur. Einhverjar tilraunir eru líka með ljóða­flutning eða talað mál yfir tóna.

Echo er fjórða smáskífan af plötunni og textinn innblásinn af sögu úr Ummyndunum Óvíds, Narkissus og Ekkó. Hér er sagan sögð út frá sjónar­horni og innri hugar­heimi Ekkó, aðlöguð að draum­kenndum nútíma. Í aðdrag­anda að útgáfu Modern Age Ophelia hefur Anna Sóley sent frá sér smáskífurnar I Just Smile, Brighter Day og 13 Pieces.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt