Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Jón Steinar: „Dómsmálaráðherra hefur ekki vald til að taka yfir ákvarðanir um mál þessa fólks“

Jón Steinar Gunnlaugsson
Jón Steinar Gunn­laugs­son

Gamli nagl­bíturinn Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður, skrifar grein á heimasíðu sinni undir yfir­skriftinni Tvískinn­ungur – þar sem meðal annars þetta kemur fram:

„Við laga­setningu um útlendinga var samstaða í þinginu um að láta stjórnsýslu­stofnanir fjalla um óskir um landvist hér en ekki ráðherra. Ein af ástæðum fyrir þessu var sú að ekki þótti heppilegt að ákvarðanir um þetta væru í höndum pólitískra ráðherra. Þær væru betur komnar í höndum hlut­lausra aðila sem létu afstöðu til stjórn­mála ekki villa sér sýn“ ritar Jón Steinar og heldur áfram:

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra

„Í árásum á dómsmála­ráðherra nú hefur því m.a. heyrst fleygt að hann hafi vald til að setja nýjar reglu­gerðir á grund­velli heimilda í lögunum, sem myndu leysa mál þeirra sem nú á að senda úr landi. M.a. heyrði ég ummæli lögmanns fólksins í þessa átt. Þetta er undarlegur málflutningur.

Er verið að óska eftir að ráðherra setji sérstaka reglugerð fyrir þennan afmarkaða hóp? Allir ættu að sjá að það er ekki unnt að gera. Reglu­gerðir verða að vera almenns eðlis en mega ekki beinast sérstak­lega að hagsmunum tiltekinna manna sem vilja fá aðra afgreiðslu mála en aðrir hafa fengið.“

Og segir að „allt ber þetta að sama brunni. Dómsmála­ráðherra hefur ekki vald til að taka yfir ákvarðanir um mál þessa fólks, nema breytt lög komi til. Heimild til að leggja fram laga­frumvörp er í höndum alþingis­manna, meðal annarra þeirra sem hæst láta um þessar mundir.“

Jón Steinar nefnir nú engin nöfn heldur segir að „er það ekki dálítið dæmigert að sumir stjórn­málamenn séu fyrst, meðan fjallað er almennt um skipan þessara mála, sammála um að ráðherra skuli ekki hafa þetta vald í höndum, en ráðast síðan á hann við fyrsta tækifæri fyrir að beita ekki því valdi sem hann hefur ekki? Eru þeir stjórn­málamenn trúverðugir sem haga sér svona? Svari nú hver fyrir sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá