Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Frískápur rís á Akureyri: „Gríðarlega mikil matarsóun og margir í þörf en þetta er fyrir alla“

Hrönn Björgvinsdóttir.
Hrönn Björg­vins­dóttir. Mynd: Youtube

Amts­bókasafnið á Akureyri ætlar að stíga athyglis­vert skref til þess að sporna við matarsóun. Bóka­safnið hefur ákveðið að setja upp svokallaðan frískáp þar sem hægt verður að gefa mat og fólk getur náð sér í matvæli. RÚV greinir frá þessu.

Þetta er ekki fyrsti frískápurinn sem rís hér á landi en í upphafi árs komu þau Kamila Walijewska og Marco Pizzolato slíkum ísskáp fyrir við Bergþóru­götu 20 í Reykjavík.

Alþjóðleg hreyfing

Um er að ræða alþjóð­lega hreyfingu með það að markmiði að draga úr matarsóun og má ætla að með frumkvæði þeirra Kamilu og Walijewska, og svo framtaki Amts­bóka­safnsins, sé hreyfingin að taka sér bólfestu hér á landi. Hópurinn Frískápur Reykjavík á Facebook telur nú um 4.000 meðlimi, en í janúar voru meðlimir hópsins um 2.500 talsins. Þar getur fólk látið vita þegar það fyllir á frískápinn á Bergþóru­götu.

Amts­bóka­safnið á Akureyri. Mynd/skjá­skot RÚV.

Áform um fleiri frískápa

Hrönn Björgvins­dóttir, verkefna­stjóri á Amts­bókasafninu og ein þeirra sem kemur að verk­efninu, segir að um sé að ræða almennings­ísskáp þar sem einstaklingar og fyrirtæki geti skilið eftir mat og svo geti hverjir þeir sem vilja fengið sér.

Hrönn segir að ísskápar í dag þoli ekki hörku­frost eins og oft er á Akureyri. Flestir þeirra þoli ekki að standa úti í meira en 5 gráðu frosti. Þau séu því að leita eftir ákveðinni tegund af ísskáp sem þoli frosta­veturna fyrir norðan. „Þannig að við erum að leita að gömlum freon ísskáp, þeir þola ansi mikinn kulda,“ segir Hrönn í samtali við RÚV.

Hún segir áform uppi um fleiri frískápa víða um land. „Þessa dagana eru hópar víða um land að koma upp sambærilegum ísskápum.“

Hrönn segist telja mikla þörf á framtaki sem þessu. „Bæði er gríðar­lega mikil matarsóun og eins eru margir í þörf en þetta er fyrir alla.“

Hún segir þetta ekki snúast um að fólk þurfi endilega að fá ókeypis mat. Þetta sé liður í því að sporna við matarsóun og nýta það sem þegar er til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá