Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Twitter fer í mál við Elon Musk – Segja hann hafa dregið úr virði fyrirtækisins

Elon Musk, ríkasti maður heims.
Elon Musk, rík­asti maður heims.

Stjórn­endur Twitter hafa ákveðið að höfða mál gegn auðjöfrinum Elon Musk, eftir að hann hætti við kaup sín á fyrir­tækinu. Forsvars­menn fyrir­tækisins höfða málið fyrir dómstólum í Delaware, með það fyrir augum að láta Musk standa við 44 milljarða dala yfirtöku sína á fyrir­tækinu, en tilboð hans hljóðaði upp á 54 dali á hvern hlut.

Musk, sem er í dag ríkasti maður heims, samþykkti að festa kaup á samfélagsmiðlarisanum í apríl síðastliðnum. Í síðustu viku tilkynnti hann hins vegar að hann ætlaði sér að hætta við kaupin.

Dómstóllinn í Delaware þarf að skera úr um það hvort Musk sé sannarlega skuld­bundinn til kaupanna, eða hvort stjórn­endur Twitter hafi í raun brotið gegn skyldum sínum til þess að veita Musk þau gögn sem hann óskaði eftir, sem hafi þá veitt honum rétt til þess að hætta við kaupin.

Í kæru Twitter er Musk sakaður um að hafa viljað hætta við kaupin vegna breytinga á hlutabréfa­markaði, sem hafi haft áhrif á fjármagn hans. Hlutabréf í Tesla, fyrirtæki Musk, hafa fallið á undan­förnum mánuðum.

Musk er í kærunni sagður telja sig geta skipt um skoðun og vera þannig undan­skilinn lögum. Hann telji sig geta „talað illa um fyrir­tækið, raskað starfsemi þess, dregið úr virði hluta­bréfa þess og gengið svo á braut.“

Musk telur sig geta hætt við kaupin vegna þess að stjórn­endur Twitter hafi ekki veitt honum þau gögn sem hann óskaði eftir vegna gervi­aðganga, eða „bots“, en Musk hefur farið mikinn í tengslum við slíka aðganga í færslum sínum á Twitter. Hann hefur sagst ætla að vinna bug á gervi­aðgöngunum og eyða þeim af samfélags­miðlinum. Hann trúði ekki stað­hæfingum stjórn­enda Twitter um það að um 5 prósent virkra notenda miðilsins væru gervi­aðgangar og sagði stjórnendurna hafa komið í veg fyrir að hann fengi frekari upplýsingar á bak við töluna.

Stjórn­endur Twitter segja rökstuðning Musk einungis yfirvarp, svo hann geti „smokrað sér út úr samningnum.“

Frá undir­skrift tilboðs Musk upp á 54,20 dali á hluta hefur hlutabréfa­verð Twitter fallið um meira en 35 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Ísraelsher segir þá hafa verið liðsmenn Hamas.
Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn