Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Helgi Héðinsson er gestur Guðna: Skynsamlegt að nýta landið okkar að hluta til í þágu loftslagsmála

„Þetta sveitar­félag sem verður formlega til 29. maí verður stærsta sveitar­félag á Íslandi; þekur rétt um 12.000 ferkílómetra eða um 12% Íslands,“ segir Helgi Héðinsson í viðtali við Guðna Ágústsson.

Helgi er sveitar­stjóri Skútu­staðahrepps, formaður undir­búnings­stjórnar um sameiningu sveitar­félaganna Skútu­staðahrepps og Þing­eyjar­sveitar og vara­þingmaður Framsóknar­flokksins í Norðaustur­kjördæmi. „Þetta eru sveitar­félög sem hafa starfað náið saman og hafa átt í farsælu og góðu samstarfi. Við ákváðum að fara þessa vegferð en ekki að við þyrftum þess. Bæði sveitar­félögin eru stöndug en okkar fram­tíðarsýn er að til að sveitar­félög standi undir þeim kröfum sem fólk gerir til starfsemi sveitar­félaga til dæmis á sviði félags­þjónustu, skólamála, og skipulags­mála þá verða einingarnar að verða sterkari.“

Viðskiptafræðin

Helgi er Þing­eyingur. Mývetningur. Ólst upp á Geit­eyjarströnd við Mývatn þar sem hann býr í dag. Starfar þar sem ferða­þjónustu­bóndi og veiði­maður í Mývatni og er með sauðfjár­búskap samhliða því.

Hún er alltaf eins og ankerið mitt í til­ver­unni þegar vind­ur­inn er harður.

Hann var um 10 ára gamall þegar hann flutti frá Mývatni til Selfoss en hann svo kom aftur á jörðina fyrir norðan þar sem ræturnar eru. Hann kláraði stúdentinn frá Fjölbrauta­skóla Suður­lands og fór svo í Háskóla Íslands. Keypti sér á þessum árum gröfu og starfaði meðal annars við lagningu ljós­leiðara og fleira í samstarfi við tengda­fjölskyldu sína en hann hafði á þessum tíma kynnst unnustu sinni, Rannveigu Ólafs­dóttur. Hann segir hana vera af miklum kjúklinga­bændum; en þau kynntust kornung – 16 og 17 ára – og eiga von á sínu öðru barni í sumar. „Það var mikið lán að kynnast þessari konu en hún er alltaf eins og ankerið mitt í tilverunni þegar vindurinn er harður,“ segir Helgi um Rannveigu sem er með meistara­próf í lögfræði og viðskipta­fræði.

Helgi valdi að stúdera viðskipta­fræði. „Það var aðallega vegna þess að ég var ekki viss um hvað ég vildi verða og valdi þess vegna eitthvað sem myndi gagnast mér hvert sem leiðin myndi liggja síðar meir. En það sem var áhugavert var að þetta var haustið 2008 og það gekk nú eitt og annað á það ár og árin á eftir.“

Ég fékk tæki­færi til að efla mig enn frekar með því að kenna við skól­ann.

Hann kláraði viðskipta­fræðinámið og fór svo í framhaldsnám; fór í meistaranám í markaðs­fræði og alþjóða­viðskiptum sem hann kláraði og síðar kláraði hann einnig meistara­próf í almennri viðskipta­fræði. „Ég fékk tækifæri til að efla mig enn frekar með því að kenna við skólann en alltaf fór ég norður á sumrin; hélt í mínar rætur og veiði­skapinn og ferða­þjónustuna og sinnti rekstrinum allt árið þannig að þetta var ofboðs­lega gefandi vegferð að fá tækifæri til að reka okkar eigið fyrirtæki.“

Efla svæðið og styrkja stoðirnar

Helgi segist hafa staðið á sérkenni­legum tímamótum árið 2014. „Þá voru ákveðin tímamót í búrekstrinum og við þurftum að fara að ákveða hvernig við ætluðum að haga okkar málum. Hvort við ætluðum að leggja meiri þunga á að byggja upp ferða­þjónustuna á Geit­eyjarströnd eða hvaða leiðir við höfðum. Þarna erum við með gersemi í höndunum sem er þessi jörð, þessi stað­setning, þessi náttúra og það sem við höfum upp á að bjóða en að sama skapi gerist ekkert af sjálfu sér. Systkini mín voru ekki fyrir norðan. Pabbi hefur ekki yngst í seinni tíð en ég var farinn að skynja að hann var farinn að þreytast á þessum tíma og við tókum þá ákvörðun að flytja norður 2014 og þar byrjuðu tilviljanirnar að vinda upp á sig eða ekki tilviljanir; það fer eftir því hvernig á það er litið. Þá áttaði ég mig á því að mig langaði til að gera breytingu á samfélaginu okkar. Mig langaði til að koma á jákvæðni, fá fleira ungt fólk til að koma heim, útskýra fyrir fólki kostina sem felast í því að vera úti á landi og til þess þyrfti uppbyggingu, til þess þyrfti fleira ungt fólk og meiri kraft í samfélagið. Við fórum strax í að setja saman framboð til sveitar­stjórnar vorið 2014. Og allar götur síðan er ég búinn að vera í þeirri vegferð að vinna fyrir samfélagið mitt og leita leiða til þess að efla svæðið og styrkja stoðirnar bæði félags­lega og í öllu sem að því lítur.“

Helgi segist hafa farið hægt í þetta. Byrjaði sem fyrsti varamaður og síðan fulltrúi frá 2016 og 2018. „Það var einróma niður­staða samstarfs­fólks míns að ég hefði alla burði til að leiða þetta samfélag og fékk mjög mikinn stuðning bæði innan úr mínum hópi og svo afgerandi sigur í kosningunum 2018. Það er búin að vera mjög lærdómsrík og skemmtileg vegferð allar götur síðan.“

Mín kyn­slóð, fólk fætt upp úr 1980 og fram yfir 1990, kom mikið heim.

Helgi segir að á þessum árum hafi um 370 manns búið í Skútu­staðahreppi eins og svæðið hét þangað til það sameinast Þing­eyjarsveit núna um helgina. „Það voru um 370 manns þarna 2014 og við erum rétt um 500 núna. Við byggjum mikið á ferða­þjónustunni og síðastliðin tvö ár hafa verið strembin út af Covid en samfélagið hefur vaxið og það hefur dafnað og mín kynslóð, fólk fætt upp úr 1980 og fram yfir 1990, kom mikið heim.“

Ef það ferðamanna­iðnaðurinn sem veldur því?

„Þetta skiptist í þrennt og þetta styður hvert annað. Þetta er auðvitað land­búnaðurinn sem allar sveitir landsins byggja á í grunninn en ferða­þjónustan kemur og þetta styrkir hvert annað því við bjóðum ferða­mönnunum upp á okkar vörur og okkar menningu og okkar sögu. Svo auðvitað í bland við orku­vinnsluna. Það er mikil orka á svæðinu og virkjanir meðal annars í Kröflu og það er þetta sem helst í hendur. Svo er uppbygging í tengslum við ferða­þjónustuna kannski hvað mest áberandi. En það er fleira sem telst þarna til og á síðustu árum og með nýjum tækifærum sem felast í óstaðbundnum störfum þá hefur fólk verið að koma vegna þess að það kýs að búa í Mývatns­sveit og starfa þar. Það er hægt að vinna í Reykjavík, Seattle eða Hong Kong; núna skiptir þetta í stórum stíl engu máli sér í lagi þekkingar­starfsemi og í starfsemi á vettvangi hins opinbera og í þessu felast mikil tækifæri fyrir sveitir landsins; sér í lagi nú þegar kemur ljósleiðara­tenging á flesta bæi.“

Meiri áhersla á sjálfbærni

Hver er stærsta sýnin er Helgi horfir inn í fram­tíðina? Hvernig sér hann landið byggjast og á hverju eigum við að lifa?

„Ég sé fyrir mér að okkar stærsta áskorun sé þessi lýðfræði­þróun sem birtist okkur í því að 86% lands­manna búa núna á milli Hvítánna. Sveitir landsins eiga undir högg að sækja og þetta er þróun sem verður mikil áskorun að snúa til baka en er að einhverju leyti að gerast nú þegar sem er mjög ánægjulegt. Þetta byggir allt á því að það sé sú þjónusta sem fólk þarf sé innan seilingar í sveitunum og það eitt og sér er mikil áskorun í sambandi við skóla­starf, í samhengi við samgöngur og í samhengi við menninguna og næringuna sem fólk þarf. Svo þurfum við að hafa tækifæri til verðmæta­sköpunar á lands­byggðinni. Tækifæri til starfa. Því ef þau eru ekki þá fara börnin í skóla og mennta sig en koma ekki til baka og þá fjarar undan þessu hægt og rólega. Og við þurfum að huga að því hvernig við getum nýtt gæði landsins í takt við áskoranir samtímans. Við búum að stórkostlegri sögu land­búnaðar og eigum að geta byggt á honum áfram; aukið verðmæta­sköpun.“ Helgi nefnir áburð og orkumál – segir að á því séu lausnir til dæmis með því að nýta betur lífrænan áburð og áburð sem fellur til en flytja minna af honum eða framleiða okkar eigin.

„Eins og hagkerfið okkar er sett upp þá treystum við á innflutning en það sem við þurfum að hugsa núna er meiri áhersla á sjálfbærni; hvernig við getum nýtt okkar eigin auðlindir betur sem er samfélags­lega skynsamlegt en það er líka efnahags­lega skynsamlegt. Og þetta kemur beint inn á land­búnaðinn og tækifærin í sveitunum. Og í síauknum mæli eru menn að hugsa að kolefnis­málum og loftslags­málum í heiminum. Og okkar mestu tækifæri til þess að taka þátt í því stóra verkefni er að nýta landið okkar að hluta til í þágu loftslags­málanna, þar sem það er skynsamlegt. Við höfum úr miklu landi að moða.“

Störf án stað­setn­ingar eða óstað­bundin störf gefa fólki færi á að búa þar sem það vill búa.

Helgi segist halda að þessi innviðar­uppbygging sem hefur verið stórkostleg á liðnum árum í tengslum við samgöngu­kerfið, farsíma­kerfið og ljósleiðara­kerfið muni gefa sveitunum talsvert líf. „Störf án stað­setningar eða óstaðbundin störf gefa fólki færi á að búa þar sem það vill búa. Nú er vinnu­staðurinn ekki miðpunkturinn. Vinnu­staðurinn er bara hvar þú situr með tölvuna.“

Mývatn frekar en Austurvöllur

Helgi segir að það sem muni hjálpa land­búnaðinum, sauðfjár­búskapnum og öðru, sé að núna skynji hann miklu meiri virðingu fyrir sjónar­miðum sem áttu undir högg að sækja fyrir bara örfáum árum síðan.

Við þurfum að vera stolt af því sem við erum að gera.

„Við búum að land­búnaði sem er stórkost­legur þar sem við notum lítið af lyfjum, við búum vel að skepnunum okkar, við hugsum vel um það sem við verum að gera og við byggjum þetta á þekkingu og kraft­miklu fólki og gæðum lands sem við getum verið stolt af. Og ég held að ein af áskorunum land­búnaðarins sé að við höldum og pössum upp á þessi sjónarmið. Við hugsum um hvaðan kjötið kemur sem við borðum, úr hvaða korni brauðið var gert, hvaðan grænmetið kemur og hvort þessi blóm séu frá Suður-Ameríku og flogin í gegnum Amsterdam eða hvort þau séu frá Dalsgarði. Það verður almennt vitund um að til þess að styðja við þessa grein þá þurfum við að nýta hana og við þurfum að kynna hana og kynna hana með stolti í gegnum þá fjölmörgu ferðamenn sem koma og hjálpa okkur að halda dampi í þessu öllu saman. Og við þurfum að gæta að því að tala okkur aldrei niður. Við þurfum að vera stolt af því sem við erum að gera. Við þurfum að halda áfram að byggja upp. Við þurfum að rækta meira korn og grænmeti,“ segir Helgi og nefnir til að mynda líka við við þurfum að nýta umfram­orkuna betur. „Hvers vegna í ósköpunum ætti ég að vilja borða avókadó sem er framleitt í Suður-Ameríku og búið að trilla yfir hálfan hnöttinn? Hvers vegna erum við ekki að framleiða þetta sjálf með orkunni sem við dælum í stórum stíl upp í loftið eða niður í jörðina vegna þess að við vitum ekki hvað við eigum að gera við allt heita vatnið sem fellur til í raforku­fram­leiðslunni?“

Varaþingmaðurinn er náttúrubarn

„Þegar allt er að fara af stað þá hef ég nú stundum leitt hugann að því þegar maður er búinn að hlusta á sömu ræðuna í 15. sinn að ég er náttúru­barn inn að beini. Mér finnst áhugavert að koma inn í störf þingsins og vona að ég fái tækifæri til að gera sem mest af því en að sama skapi getur enginn neitt einn hvorki hér eða heima fyrir og ég hef engar áhyggjur vegna þess að heima fyrir er fólk sem hugsar um að þar gangi nú allt vel. En ég játa að suma daga hefur mig meira langað til þess að vera staddur á Mývatni en við Austur­völl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt