Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Grímuklæddir ræningjar skutu mann fyrir utan lúxusverslun

Rannsókn málsins stendur yfir

Maðurinn var skotinn einu sinni
Maðurinn var skot­inn einu sinni Mynd: Skjáskot

Þrír grímu­klæddir menn eru eftir­lýstir eftir að maður var rændur og skotinn fyrir utan dýra fata­verslun í Vestur Hollywood í Kaliforníu á fimmtudag. Mennirnir flúðu af vettvangi á bifreið sem lenti skömmu síðar í árekstri við Ferrari-bifreið.

Atvikið átti sér stað fyrir utan verslunina Fugazi um klukkan 17.30 að staðar­tíma. Myndefni úr öryggis­myndavélum sýnir þrjá grímu­klædda menn stíga út úr bifreið skammt frá versluninni og hlaupa að fórnar­lambinu.

Mennirnir umkringdu manninn og rændu hann en skotið var á hann áður en árásar­mennirnir flúðu af vettvangi. Maðurinn varð fyrir einu skoti.

Vitni að atvikinu, Uriel Baladez, sagði í samtali við NBC4 að flótta­bifreið mannanna hefði rekist á Ferrari-bifreið þar sem maður og barn voru innanborðs. Þrátt fyrir áreksturinn héldu mennirnir áfram för sinni og óku hratt af vettvangi.

Lögregla fann fórnar­lambið á gangstétt fyrir utan verslunina. Síðar sást til hans ræða við lögreglu­menn inni í versluninni áður en hann var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Samkvæmt NBC4 er búist við að hann nái sér af skots­árinu.

Lögregla leitar nú mannanna þriggja. Samkvæmt lýsingu voru þeir allir klæddir svörtum hettu­peysum, svörtum buxum og svörtum skóm og sagðir vera meðal­vaxnir.

Rannsókn málsins stendur yfir og hefur lögregla óskað eftir upplýsingum sem gætu leitt til þess að mennirnir finnist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár