Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Alma: „Mestu persónunjósnir sem fram hafa farið á Íslandi – „saurlifnaður“ íslenskra kvenna“

Alma Ómarsdóttir, fréttamaður. Mynd/skjáskot. Vísir
Alma Ómars­dóttir, frétta­maður. Mynd/skjá­skot. Vísir

„Stúlka sem ekki vildi láta skoða á sér kynfærin var neydd til þess. Og svo var hún dæmd af sakadómi. Í staðinn fyrir að stoppa hermennina við að ónáða þessa stúlku þá var hún tekin úr umferð. Tekin úr skólanum, send á Klepp­járnsreyki en síðan þegar heimilinu er lokað gat hún ekki farið aftur í skólann því búið var að reka hana og stimpla. Þannig hún endar á götunni í Reykjavík.“

Alma Ómars­dóttir, fjölmiðla­fræðingur og frétta­maður gerði heimilda­myndina Stúlkurnar að Klepp­járns­reykjum. Í hlaðvarps­þættinum Karl­mennskan með Þorsteini V. Einars­syni fer Alma yfir kvik­myndina og hvers­konar aðfarir áttu sér stað, hvernig njósnað var um íslenskar stúlkur, þær sendar í fangelsi eða upptöku­heimili, smánaðar, útskúfaðar og lokaðar í glugga­lausum rýmum svo dögum skipti. Allt með samþykki yfirvalda og stutt af almenningi og fjöl­miðlum.

Þessi tími hefur verið kallaður „ástands­árin“ í sögu­bókunum okkar þegar Bretar hernámu Ísland í seinni heims­styrjöldinni. Það sem kemur fram í þættinum er að íslensk stjórn­völd ofsóttu ungar konur, sviptu þær sjálfræði með því að hækka sjálfræðis­aldur úr 16 ár í 20 ár. Þetta var gert til þess að hægt væri að dæma þær í fangelsi fyrir að eiga í samskiptum við hermenn. Land­læknir, forsætis­ráðherra, Alþingi, lögreglan, fjöl­miðlar og almenningur tóku þátt í einum mestu persónu­njósnum sem fram hafa farið á Íslandi til þess að ná tökum á þeim „saur­lifnaði“ að íslenskar konur sýndu breskum hermönnum áhuga. Tímabil sem aldrei hefur verið gert upp af íslenskum stjórn­völdum.

Konur sviptar sjálfræði

Alma ræðir um að konur hafi verið að öðlast aukið frelsi og farið út á atvinnu­markaðinn.

„Valda­hlutföllin breytast í samfélaginu. Allt í einu hafa konur jafna möguleika á að þéna jafn mikið og karlmenn því það var komin atvinna fyrir þær. Það hafði aldrei gerst áður á Íslandi. Síðan eru þær með miklu meira úrval af mannsefni. Mörgum (körlum) fannst sér örugglega ógnað og samfélagið bregst harkalega við.“

Á sama tíma og konur virtust vera að öðlast aukið frelsi eru þær sviptar sjálfræði. „Vegna þess að það þurfti að bregðast við því að ungu konurnar voru að hitta erlenda hermenn og sjálfræðis­aldur er færður úr 16 í 18 ár (tíma­bundið í 20 ár). Konur eru sviptar sjálfræði svo hægt sé að banna þeim að hitta hermenn.“

Konur voru þvingaðar og niðurlægðar

Alma segir ennfremur að það hafi verið sárt að fyrsta lögreglu­konan á Íslandi hafi verið sett í það að njósna um þessar konur.

„Það er rosalega sorglegt að fyrsta lögreglu­konan á Íslandi hafi fengið þetta hlutverk og gengið svona fram. Það er frekar sárt að hugsa til þess.“

Konur voru þvingaðar og niður­lægðar, en Alma segir að lögreglu­konan hafi verið sett í:

„gríðarlegar persónu­njósnir. Það var talað um mestu persónu­njósnir sem fram hafa farið á Íslandi.Þær sem neituðu því að hafa átt í samskiptum við hermenn voru sendar í læknis­skoðun til þess að athuga hvort að þær væru hreinar meyjar. Þetta er náttúru­lega algjör­lega bilað.“

Að lokum vekur Alma athygli á því að:

„Eftir Breiða­víkurmálið, var ráðist í það að skoða upptöku­heimili sem voru starfrækt á Íslandi. Klepp­járnsreykir, var hins vegar ekki skoðað. Það á líka að segja rétt frá þessu í sögu­bókunum. Ég var að skoða hvernig hefur verið fjallað um þetta í grunnskóla­kennslu­bókum og þá er einmitt bara skautað á þessu. Þetta er sett upp í skemmtilegan búning. Við erum að tala um hundruðir kvenna sem var njósnað um, ásóttar af lögreglu­yfirvöldum eða hreinlega teknar úr umferð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Beint úr Breiðholtinu
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá