Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ekki auðvelt fyrir minni framboðin að keppa við þau stóru: „Atkvæði greidd öðrum gagnast ekki“

Sigurður Pétur Sigmundsson. Mynd/Skjáskot: Guðni Gíslason. Fjarðarfréttir
Sigurður Pétur Sig­munds­son. Mynd/Skjáskot: Guðni Gíslason. Fjarð­ar­fréttir

Sveita­stjórna­kosningar er nú í hámarki, en kosið verður næst­komandi laugardag 14. maí. Mannlíf fjallaði um skoðana­könnun sem flokkarnir í Hafnar­firði létu gera fyrir sig þar sem kom í ljós að núverandi stjórn virðist vera fallin. Við greiningu skoðana­könnunarinnar sem birtist í Frétta­blaðinu í gær má sjá að lítið framboð sem kallar sig Bæjar­listann mælist með 5% stuðning og vantar þar með 2% til að ná manni inn.

Mannlíf fór á stúfana og forvitnaðist aðeins meira um þennan tiltölu­lega nýja flokk. Á heimasíðu flokksins segir að Bæjar­listinn í Hafnar­firði sé stjórnmála­framboð sem sé skipað fólki sem vill hafa jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt og að flokkurinn sé óháður stjórn­málaflokkum.

Sigurður Pétur Sigmundsson sem skipar 1. sæti flokksins segir í samtali við Mannlíf að:  „hann leiði nú listann eftir að Guðlaug Svala Stein­unnar Kristjáns­dóttir, bæjar­fulltrúi vildi draga sig úr forystu­sætinu. Listinn saman­standi af fólki með víðtæka reynslu og þekkingu sem hefur mikinn áhuga á að vinna að framfara­málum í Hafnar­friði.“

Í grein sem birtist í Fjarðar­fréttum í gær, segir Sigurður að ekki sé auðvelt fyrir minni framboð að keppa við þau stóru.

Hann segist vilja vekja athygli á yfirgangi stærri framboða sem eigi ekkert skylt við lýðræðisleg vinnubröð að hans mati. „Nú er enda­spretturinn framundan og spurning hvort gamli maraþon­meistarinn nær að komast yfir enda­línuna og inn um bæjar­dyrnar.“

Sigurður Pétur Sig­munds­son og Hulda Sólveig Jóhanns­dóttir Mynd/Skjáskot: Guðni Gíslason. Fjarð­ar­fréttir

Flokksmaskínurnar eira engu

Sigurður útskýrir sína sýn ennfremur:

„Erfitt er fyrir minni framboðin að keppa við Sjálfstæðis­flokkinn og Samfylkinguna sem virðast hafa úr tölu­verðum fjármunum að spila ef marka má auglýsingar og útgáfu fjölda blaða. Við þessu mátti búast og lítið við það að athuga. Maskínur þessara flokka láta þó ekki þar við sitja heldur eru að störfum úthringiteymi sem ætlað er að ná í sem flesta bæjarbúa í því skyni að reyna að fá þá á sitt band sem ekki eru búnir að ákveða sig. Engu er eirt í þessum efnum, ekki einu sinni oddvitum annarra framboða. Fyrir þremur dögum hringdi í mig ungur maður frá Samfylkingunni sem spurði hvort ég gæti hugsað mér að kjósa þann flokk. Í gær var svo hringt í konuna mína frá Sjálfstæðis­flokknum. Í fyrstu fannst mér þetta fyndið en svo fer maður að hugsa hvort lýðræðið eigi að virka svona. Er þetta, kjósendur góðir, ekki merki um frekju og yfirgang? Þið veltið þessu fyrir ykkur.“

Atkvæði greidd öðrum gagnast ekki

Sigurður segir meðal annars að það hefði skotið skökku við sig þegar Kristinn Andersen, bæjar­fulltrúi og fram­bjóðandi Sjálfstæðis­flokksins, skuli hafa sagt í grein í Vísi að: „Atkvæði greidd öðrum gagnast ekki.“

Full­yrðingar Kristins koma Sigurði verulega á óvart: „Mér hefur alltaf líkað vel við Kristin sem er hinn ágætasti maður. Ólíkt honum að vera með svona hroka­fullar stað­hæfingar. Á Kristni er að skilja að hann vilji að samsetning bæjar­stjórnar sé sem einsleitust. Um þetta er ég honum algerlega ósammála. Tel mikilvægt að breiddin í bæjar­stjórn sé góð og að ólík sjónar­horn fái að koma þar fram. Þannig næst yfirleitt besta niður­staðan við úrlausn mála.“

Vinnum fyrir Hafnfirðinga

Sigurður fullyrðir að fólkið í Bæjar­listanum sé ekki valda­sjúkt. „Við viljum komast til áhrifa til að vinna að framfara­málum í þágu bæjarbúa. Við teljum okkur geta gert það vel enda innan okkar raða fólk með víðtæka reynslu og þekkingu á mörgum sviðum. Við viljum fjárfesta í framtíð barnanna og þar með unga fólksins með því að efla leik­skóla­starfið, starfið í grunn­skólunum og styðja við fjöl­breytt íþrótta – og æskulýðs­starf. Eitt það mikil­vægasta í því efni á næstunni er uppbygging knatthúss Hauka en mikil fjölgun íbúa er framundan á starfs­svæði félagsins. Við viljum líka vinna að bættri þjónustu við aldraða og fjölda annarra góðra mála.“

Að lokum ávarpar Sigurður kjósendur. „Ágæti kjósandi. Er ekki bara best að leyfa lýðræðinu að hafa sinn gang. Við treystum þér fyllilega til að ákveða hvað þú kýst. Vonum hins vegar að þú eigir samleið með okkur í Bæjar­listanum.“

Bæj­ar­list­inn í Hafn­ar­firði. Mynd/Skjáskot: Heima­síða flokks­ins
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur